20.12.1976
Sameinað þing: 36. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 1536 í B-deild Alþingistíðinda. (1181)

1. mál, fjárlög 1977

Sigurlaug Bjarnadóttir:

Herra forseti. Ég kveð mér hér hljóðs í sambandi við nál. á þskj. 231 um framlög til flóabáta og fólks- og vöruflutninga. Að vísu hefur frsm. n., hv. 4. þm. Vesturl., gert mjög skýra og ítarlega grein fyrir þessu áliti. En þar sem ég hef skrifað undir það með fyrirvara þykir mér hlýða að gera í örfáum orðum grein fyrir afstöðu minni. En það er skemmst frá að segja að okkur fulltrúum vestfirðinga í samvn. samgm. þótti að gengið væri nokkuð á svig við að því er við töldum fullkomlega eðlilegar og sanngjarnar óskir um styrk til Djúpbátsins Fagraness hf. Óska okkar og tillagna um að þessi styrkur yrði 27 millj. í stað 25 millj., sem við höfðum á blaði fyrir framan okkur var í stuttu máli synjað. Erfiður rekstur Djúpbátsins að undanförnu hefur þó farið batnandi, enda hefur ítrasta aðhalds verið gætt í þessum rekstri og mjög svo skilmerkileg og skýr grein gerð fyrir öllum högum fyrirtækisins, eins og kom fram í framsögu hv. formanns. Okkur fulltrúum Vestfjarða þótti að það væri óraunhæf bjartsýni að ætla að reksturinn færi það mikið batnandi að gera ráð fyrir þetta miklu minni styrk en farið var fram á, en það voru 35 millj.

En látum það nú vera þótt felld væri till. í þessa átt frá okkur. Ég fyrir mitt leyti hefði sætt mig við það. Við vitum að við þurfum að halda í eftir því sem unnt er á öllum sviðum. Það, sem ég átti öllu verra með að skilja, var að það var synjað um hækkun á mjólkurflutningsstyrk milli Dýrafjarðar og Ísafjarðar og það því fremur sem á s. l. ári, þegar allir styrkir hækkuðu til þessa málefnis um u. þ. b. 30–40%, þá varð þessi liður út undan, að ég hygg fyrir misgáning frekar en ekki væri talin þörf á að hækka hann, þannig að þessi liður verður sérstaklega illa úti. Það var sótt um 500 þús. kr. styrk til mjólkurflutninga annars vegar úr Dýrafirði og hins vegar úr Önundarfirði, og fyrir þá, sem ekki eru kunnugir aðstæðum, vil ég benda á að á milli þessara fjarða og aðalmjólkurneyslusvæðisins á Ísafirði liggur einn allra erfiðasti fjallvegur á Íslandi sem er tepptur meiri hluta ársins af snjóum, þannig að þetta er ekkert hégómamál. Og ég vil benda á það í leiðinni, að þegar gripið er til þess ráðs að flytja mjólk flugleiðis, annaðhvort frá Akureyri eða Reykjavík, þá kostar það 23 kr. á hvern lítra, sem er náttúrlega margfalt meira en flutningur með Djúpbátnum Fagranesi kostar, þannig að þarna tel ég að óraunsæi og hugsunarleysi ráði meira en raunverulegt viljaleysi til að mæta þessum þörfum.

Það er vitað mál, að við þm. þessa síðustu og verstu dagana fyrir jól störfum undir miklu álagi, enda fannst mér það í rauninni koma fram á þessum fundi í samvinnunefnd samgöngumála sem ég vil annars segja að er skipuð af ágætismönnum öllum saman sem skilja þær þarfir og þá nauðsyn sem þessir vetrarflutningar hafa að forsendu. En mér þótti eins og tal manna yrði allt að því óráðskennt undir lokin. Það var talað um ákveðna landshluta sem skækla og viðbótarslaufur sem bæri að sníða af og þar fram eftir götunum, og allt þetta rakti ég til óhæfilegrar pressu á menn frekar en þeir meintu þetta raunverulega, enda komu fram raddir um að það væri þörf á sérfræðiaðstoð fyrir samvinnunefnd til að hugsa undir lokin, þannig að allt á þetta sennilega sinar skýringar. Ég vil til marks um það, að ég kunni að hafa eitthvað fyrir mér í þessu, geta þess, að við vorum þrír þm. sem stóðum að þessari till. um 2 millj. kr. hækkaðan styrk til Djúpbátsins og þessa litlu hungurlús til mjólkurflutninga, það voru tveir Vestfjarðarþm. og hv. 4. landsk. þm., Eggert G. Þorsteinsson, sunnlendingur í húð og hár, sem virtist skilja þetta betur en dreifbýlisþm. okkar sumir hverjir sem ættu þó að vita hvað um var að ræða.

Ég skal ekki tala meira um þetta, en ég hlýt þó, — þó að ég vilji í leiðinni geta þess og segja það sem mína meiningu að okkar ágæti formaður, hv. 4. þm. Vesturl., á allt gott skilið og hefur sýnt einstaka sanngirni og samvinnulipurð í þessari n. og þess vegna kom mér þessi afstaða hans og raunar allra hinna nokkuð á óvart, — þá hlýt ég að segja það líka, að ég var ekki alls kostar ánægð með vinnubrögð n. En þeim var þannig hagað nú, að eftir að við höfðum lauslega litið yfir allar þessar mörgu umsóknir sem vitanlega þurfa allar að skoðast rækilega, — eftir lauslega athugun var fjögurra manna undirnefnd úr 14 manna hópi, sem skipar báðar samgn. Alþ., falið að gera till., þær voru síðan lagðar á borðið hjá samvinnunefndarmönnum öllum og engu varð um þokað, það var allt búið og gert. Till. undirnefndar hafði verið vísað til athugunar fjvn., fjmrh. og samgrh. og þar varð engu um breytt. Ég hlýt að láta í ljós óánægju mína og gagnrýna þessa vinnuaðferð, og ég vona að hún endurtaki sig ekki, enda hefur þetta ekki verið svona áður og veit ég ekki hvað kemur til. Ég vil aðeins benda líka á þetta litla erindi frá Norðurfirði. Ég ætla ekki að fara náið út í það, það er búið að skýra það. Norðurfjörður, sem er nyrsta byggð í Strandasýslu, fer fram á 3 millj. kr. styrk til að endurbæta nótabát til að fara til móts við strandferðaskip og önnur skip sem færa þessu fólki varning heim. Ég aðeins spyr án þess að fara út í þetta mál frekar: Skyldi ekki vera kominn tími til að norðurfirðingar fengju eitthvað sem kallast höfn? En mér er ekki kunnugt um að annað byggðarlag á Íslandi öllu þurfi að una við það að lamma til móts við flutningaskip á sínum árabátum sem eru þeirra eini farkostur til að flytja á vörur. Ég beini þessu aðeins til hv. Alþ. ef til kynni að koma einhver hreyfing í þá átt að byggja höfn á Norðurfirði á Ströndum.

Ég skal ekki hafa fleiri orð um þetta. Mig langar aðeins, úr því að ég er komin hér upp í ræðustól, að drepa á till. á þskj. 259 um Menntaskólann á Ísafirði. Sú till. er borin fram af tveim Vestfjarðaþm. og gengur í þá átt, að í stað 19 millj. komi 44 millj. Þessi liður var í fjárlagafrv. 10 millj., hefur verið hækkaður upp í 19. Ég hlýt að lýsa vonbrigðum mínum yfir að þessi liður var ekki hækkaður meira. Þessi till. var dregin til baka við 2. umr. í von um að einhverju kynni að þoka áleiðis í meðförum fjvn. Svo hefur raunar ekki orðið, annað en það, að menntmrh., sem ég hef átt ítrekuð samtöl við um þetta mál á Ísafirði, hefur ekki heitið mér því, en látið það athugasemdalaust að ég hef lýst því yfir, að ég líti á þessa 5 millj. kr. fjárveitingarhækkun til Menntaskólans á Ísafirði, sem á að ganga til fullnaðarhönnunar á skólanum, ég lít á hana og túlka hana þannig, að áfram verði haldið með framkvæmdir næsta ár, að kyrrstöðu menntaskólamálsins á Ísafirði sé þar með lokið. Hæstv. menntmrh. er því miður ekki staddur hér og þó að hann vilji ekki gefa hér ákveðna yfirlýsingu um þetta, þá veit ég að með áframhaldandi vinnu okkar, sem stöndum að þessu máli, og er full bjartsýni um að næsti áfangi sé að hafist verði handa um byggingu kennsluhúsnæðis fyrir Menntaskólann á Ísafirði á komandi sumri. En þessu máli hefur verið lýst að nokkru marki. Þetta er í rauninni fullt eins mikið grunnskólamál og menntaskólamál. Þegar Menntaskólinn var byggður var byrjað á að byggja heimavist, síðar mötuneyti, en kennsluhúsnæði var nýtt í gömlu barnaskólahúsnæði sem barnaskóli Ísafjarðar þarf nauðsynlega á að halda og það svo að núverandi samkomusal í barnaskólanum er fjórskipt, í fjórar kennslustofur: fyrir náttúrufræði, eðlisfræði og smábarnakennslu, því að það er ekkert rými annað til. Hér er því um óhæfileg þrengsli grunnskólans að ræða sem ég vænti að muni leysast innan skamms, og því aðeins samþykki ég eða sætti ég mig við þetta nú, að ég geri ráð fyrir því að hér með sé lokið algerri kyrrstöðu í framkvæmdum við þennan skóla á Ísafirði. Nóg um það.

Hér er önnur till. á þskj. 259, um hafnarframkvæmdir í Bolungarvík, um lánsheimild til að taka 80 millj. kr. lán til hafnarframkvæmda í Bolungarvík vegna loðnulöndunar. Að sjálfsögðu hefði maður gjarnan viljað fá þessar 80 millj. og það hefur verið reynt, en ekki tekist nú. Hins vegar er jafnframt nauðsyn á að stækka loðnuverksmiðju í Bolungarvík til þess að geta tekið ekki einasta við loðnu frá Vestfjarðabátum, heldur frá landinu öllu. Þetta er ekki Vestfjarðamál. Þetta er stórt hagsmunamál landsins alls, og eftir samtöl við ráðh. okkar í ríkisstj., þ. á m. hæstv. sjútvrh., vil ég vænta þess að það sé öruggt að a. m. k. verksmiðjuaukningin komi til framkvæmda nú í sumar. Það hefur verið bent á það af reyndum skipstjórum, sem ég tek mikið mark á í þessum málum, að slík verksmiðjubygging í Bolungarvík mundi borga sig á einu ári, einfaldlega vegna þess að eins og nú er högum háttað, þá þurfa loðnuskip, sem veiða út af Vestfjörðum, að sigla annað hvort til Reykjavíkur eða Siglufjarðar. Það kostar 7–8 tíma stím, og í þessu er sparnaðurinn fólginn við að geta lagt upp í Bolungarvík að þurfa ekki að leggja í þessa löngu keyrslu með rándýrri olíu.

Ég skal ekki hafa fleiri orð hér um, það er orðið áliðið kvölds. Hér liggur fyrir að venju sandur af brtt., að sjálfsögðu allar þarfar og góðar í sjálfu sér, en sumar hverjar bornar fram af harla lítilli ábyrgðartilfinningu. Ég fæ nú ekki varist því að benda á síðustu till. á þskj. 259, frá hv. 3. þm. Reykv., þar sem farið er fram á heimild til að taka innanlands eða utan ekki nema einar litlar 8000 millj. kr. til þess að gera landið allt að einu rafveitukerfi. 8 milljarðar, það er svo sem ekki mikið til viðbótar við skuldasúpuna við útlönd sem mér heyrist stjórnarandstæðingar hafa gagnrýnt ekki síður en við stjórnarliðsmenn. Og ég vil ítreka það enn einu sinni hér, að það verður aldrei of varlega farið nú í að bæta við þær skuldir. Ég minnist þess líka að hv. 3. þm. Reykv., sem því miður er ekki hér nú, hafði við þau orð í umr. um geðdeild Landsspítalans, að þegar hann var heilbrrh. hefði hann séð fyrir öllum áætlunum í þessu máli, það hefði ekkert verið sem núv. heilbrrh. þyrfti að gera nema útvega fjármagnið. Mér finnst þessar ábendingar tvær segja nóg um þá ábyrgðartilfinningu og það raunsæi sem liggur á bak við tillöguflutning stjórnarandstæðinga á þessu þingi nú sem fyrr.