20.12.1976
Sameinað þing: 36. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 1548 í B-deild Alþingistíðinda. (1190)

1. mál, fjárlög 1977

Stefán Jónsson:

Herra forseti. Ég mun nú ekki halda hér langa tölu og hefði raunar ekki tekið hér til máls ef störf samvn. samgm. hefði ekki borið á góma með þeim hætti sem hefur hér gerst. Ég get undir engum kringumstæðum fallist á þá skoðun hv. þm. Garðars Sigurðssonar að það hafi verið nokkur fjölskyldublær á umr. í n. ellegar að störf n. hafi á einhvern hátt verið með þeim hætti að ósæmilegt sé að ræða þau í Sþ. En það er ákaflega misjafnt hvernig tölur snerta tilfinningalíf manna, og ég hlýt, held ég, að gera annars konar grein fyrir afstöðu minni til fjárbeiðninnar handa Fagranesinu heldur en hann gerði.

Ég hefði með glöðu geði séð fjárlög hækkuð til þess að hægt hefði verið að veita Fagranesinu 27 millj. í styrk og þó að þær hefðu verið 28. Ég hef rökstuddan grun um það að við verjum fjármunum til annarra ómerkilegri hluta af meira gáleysi heldur en til samgangna við Ísafjarðardjúp. Aftur á móti var það ljóst á lokafundi okkar að við fengjum ekki hærri heildarfjárveitingu en þá lá ljóst fyrir að við fengjum, þannig að hefði fjárveitingin til Fagranessins verið hækkuð, þá hefðu þeir peningar verið teknir af einhverjum öðrum liðum sem þegar var búið að ákveða skiptingu á. Ég bar þá fram þá till. og hygg að það sé, úr því sem komið er, ærlegast að gangast við henni, að 2 millj. kr. hækkunin til Fagranessins, sem hlaut prósentvís minni hækkun til síns rekstrar heldur en Akraborgin, — þessar 2 millj. yrðu þá teknar af Skallagrími, af Akraborginni. Með þessari till. minni greiddi ég einn atkv., en hv. þm. Vestf. t n. sátu hjá með þeirri drengilegu skýringu að þeir vildu ekki taka þessa peninga af öðrum. Hinu er náttúrlega ekki að neita, að á góma hafði borið í n. sú staðreynd eða það almenna álit, að raunar væri útgerð Fagranessins, Baldurs og Drangs ekki sambærileg við útgerð Akraborgarinnar fyrir ýmissa hluta sakir.

Ég vil sem sagt ítreka þá skoðun mína að gjarnan hefðu fjárlög mátt hækka um þessar 2 millj. sem þau fóru fram á, hv. þm. Sigurlaug Bjarnadóttir og Karvel Pálmason. Beri þau fram till. á þessa lund nú við 3. umr., þá mun ég greiða henni atkv.