21.12.1976
Neðri deild: 37. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 1570 í B-deild Alþingistíðinda. (1217)

133. mál, lántaka vegna opinberra framkvæmda á árinu 1977

Sighvatur Björgvinsson:

Herra forseti. Ég ætla ekki að fara mörgum orðum um það frv., sem hér liggur fyrir, enda kemur fram á þskj. 269, í nál. 2. minni hl. fjh: og viðskn., að við alþfl.-menn munum láta afgreiðslu þessa frv. afskiptalausa, en leggjum áherslu á að þessi mál verði tekin til umr. á Alþ. eftir jól.

Ástæða þess, að ég kvaddi mér hljóðs, var í fyrsta lagi sú að vekja athygli hv. þm. á þeim upplýsingum sem hæstv. fjmrh. gaf áðan við fsp. minni og ekki fengust fram á fundi fjvn. með sérfræðingum fjárlaga- og hagsýslustofnunar, þ. e. að af 20 860 millj. kr. lántöku, sem ráðgerð er á næsta ári, fara 10 600 millj. kr. í að borga vexti og afborganir af þegar teknum erlendum lánum. Sem sé meira en önnur hver króna af því fé, sem taka á til láns erlendis á næsta ári, fer til þess að greiða niður eldri skuldir. Svo mjög er nú að okkur þrengt í sambandi við skuldasöfnun erlendis að við erum neydd til þess, a. m. k. að áliti hæstv. ríkisstj., að taka slík lán á næsta ári, einvörðungu til þess að standa í skilum um greiðslur afborgana og vaxta af lánum sem þegar hafa verið tekin. Menn geta sagt sér það sjálfir, hver og einn, að þegar svo er komið málum, hvort heldur er fyrir ríki, ríkisvald, ríkisstofnanir eða einstaklinga í þessu þjóðfélagi, þá er meira en lítil hætta á ferðum.

Önnur ástæða þess, að ég kvaddi mér hljóðs, var hinn furðulegi talnalegi samanburður sem hv. 4. þm. Austurl. kom fram með áðan, þegar hann ræddi um það að á umliðnum árum, næstliðnum árum hefði hlutfall nýtekinna erlendra lána á hverju ári af heildarskuldunum eða heildarlántökunum farið minnkandi og taldi að þetta stefndi í rétta átt. Þetta er skólabókardæmi um það hvernig hægt er að leika sér með tölur til þess að gefa alranga mynd af ástandinu, því að auðvitað er hér um að ræða prósenttölu af sífellt hækkandi upphæð. T. d. kemur það út úr slíkum samanburði að það stefni mjög í rétta átt, svo að notuð séu orð hv. þm., á árinu 1977. Þó að það standi skýrt og skorinort í áliti Þjóðhagsstofnunar að á því ári verði lántökur erlendis talsvert meiri en á yfirstandandi ári, þá gerir talnalegur samanburður hv. þm. það að verkum, af því að hann nemur hærri heildarfjárhæð í síðara tilvikinu en því fyrra, að þarna lækkar prósentutalan og það telur hv. þm. að stefni í rétta átt. Til þess að gefa mjög einfalt dæmi um hve villir vegar menn eru hér að fara — mjög einfalt og auðskilið dæmi, þá skulum við taka dæmi af sjúklingi sem leggst inn á spítala vegna sjúkleika. Það kemur í ljós að í fyrradag var hann með 37 stiga hita. Daginn þar á eftir hafði hitinn í þessum sjúklingi hækkað um 8%, hann var kominn með 40 stiga hita. Í gær var sjúklingurinn mældur, þá hafði hitinn aðeins hækkað um 5%, hann var kominn með 42 stiga hita. Í morgun var sjúklingurinn enn mældur, þá hafði hitinn í honum ekki hækkað nema um 2.5%, hann var kominn með 43.05 stiga hita. Það mætti e. t. v. halda á mælikvarða hv. þm. Tómasar Árnasonar að mjög stefndi í rétta átt hjá sjúklingnum, þróun hans stefndi í mjög rétta átt, því að hækkun hitastigsins dag frá degi hefði farið ört lækkandi prósentvís. En ég er ansi hræddur um að bæði sjúklingurinn sjálfur og þeir læknar, sem honum ættu að sinna, væru ekki á sömu skoðun. Ef öll fjármálaspeki hv. stjórnarsinna er með þessu markinu brennd, þá er ósköp eðlilegt að svo fari sem farið hefur.