21.12.1976
Neðri deild: 37. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 1572 í B-deild Alþingistíðinda. (1223)

138. mál, vörugjald

Frsm. (Ólafur G. Einarsson) :

Hæstv forseti. Fjh.- og viðskn. hefur athugað þetta frv. og er sammála um að mæla með samþykkt þess. Álit n. er á þskj. 265. Ég vil geta þess að 17. og 18. kafli tollskrárlaganna, fjalla eingöngu um breytt númer, en í 22. kafla felst hækkun á tappagjaldinu svokallaða.

Fjh.- og viðskn. mælir einróma með því að frv. verði samþykkt.