21.12.1976
Efri deild: 35. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 1580 í B-deild Alþingistíðinda. (1245)
138. mál, vörugjald
Helgi F. Seljan:
Herra forseti. Ég vil fagna aðalefni þessa frv. svo sannarlega. Að þessu hefur lengi verið unnið af ýmsum okkar sem að þessum málum höfum starfað sérstaklega, og ég get ekki látið hjá líða nú að færa hæstv. fjmrh. þakkir fyrir að hafa flutt þetta frv. og komið því inn í Alþ. og væntanlega hér til samþykktar, og um leið þakka hæstv. félmrh. sem einnig hefur að þessu máli unnið.
Það er ljóst að stór og aðkallandi verkefni í málefnum þroskaheftra hefðu stöðvast nær alveg ef sú tala, sem fjárl. var áður, hefði staðið. Það er í þessu frv. minnt á þau verkefni sem þegar er verið að vinna að og eru óleyst með öllu, svo sem Egilsstaðaheimilið, einnig hin mikla viðbygging við Sólborg á Akureyri og enn frekari lagfæring á Kópavogshælinu. Enn er þó eftir eitt verkefni í þessum byggingum sem ekki verður komist hjá að leysa, og það er meðferðarheimili á Vestfjörðum.
Þegar þessum heimilum verður lokið, þá er áreiðanlega rétt annaðhvort að endurskoða þetta allt saman, víkja þessum fjármunum í önnur verkefni sem þá koma til greina, eða þá, sem við skulum kannske helst vona, að þá hafi þetta fólk að fullu og öllu fallið inn í heildarramma okkar kerfis í menntakerfi, heilbrigðiskerfi og félagslegri þjónustu, þannig að við þurfum ekki neinn sérstakan sjóð til þess að styrkja það sérstaklega.
Ég vil einnig flytja hæstv. ríkisstj. sérstaka þökk frá landssamtökunum Þroskahjálp sem eru hér að ná fram einu sínu helsta baráttumáli, og er von að þau fagni því, svo nýtilkomin sem þau eru. Og þau vona að áframhaldandi gott samstarf verði milli þeirra og ríkisstj. um að vinna að málefnum skjólstæðinga sinna.