21.10.1976
Sameinað þing: 7. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 143 í B-deild Alþingistíðinda. (127)
8. mál, sundlaug við Grensásdeild Borgarspítalans
Flm. (Magnús Kjartansson):
Hæstv. forseti. Ég flyt hér ásamt þremur þm. öðrum till. um að Alþingi álykti að beita sér fyrir því í samráði við ríkisstj. að á fjárlög næsta árs verði tekið framlag til sundlaugargerðar við endurhæfingardeild Borgarspítalans við Grensásveg. Við, þessir 4 flm., eigum það allir sammerkt að við höfum dvalist á þessari stofnun Borgarspítalans og erum býsna kunnugir aðstæðum þar, og við teljum að gerð slíkrar sundlaugar sé ákaflega brýn til þess að endurhæfingardeildin geti unnið að verkefnum sínum eins og til er ætlast og grein er gerð fyrir í grg. frv. af yfirlækni deildarinnar, Ásgeiri Ellertssyni doktor.
Það er nú svo, að æðimargir íslendingar þurfa á endurhæfingu að halda. Ég veit ekki hvort tiltækar eru tölulegar rannsóknir um það hér á landi. En ég veitti því einu sinni athygli, að í Danmörku var talið að þeir, sem þyrftu á endurhæfingu að halda, væru hvorki meira né minna en tíundi hluti þjóðarinnar. Þarna er um að ræða atriði sem geta verið meðfædd, afleiðingar af slysum eða sjúkdómum, og þarna er að sjálfsögðu um margar tegundir að ræða. En þessar afleiðingar, ef þær eru teknar sem ein heild, þá er þarna áreiðanlega um að ræða þann sjúkdóm sem algengastur er í öllum þjóðfélögum.
Það hefur býsna lengi verið unnið að þessum málum í heiminum. Mig minnir að ég hafi rekist á það einhvers staðar, að fyrsta félagið, sem stofnað var til aðstoðar blindra, hafi verið stofnað í París á 14. öld. Hér á Íslandi eru starfandi ákaflega mörg félög sem vinna að slíkum verkefnum. En það urðu gjörbreytingar á afstöðunni til endurhæfingar í seinustu heimsstyrjöld. Heimsstyrjaldir hafa venjulega haft býsna viðtæk áhrif á mörgum sviðum, og það, sem kemur upp í sambandi við styrjaldir, er auðvitað nauðsyn þess að geta liðsinnt þeim sem verða þar fyrir líkamlegum hörmungum. Þetta mál komst mjög á dagskrá í styrjöldinni og eftir hana, og hefur verið unnið mjög skipulega að því að byggja upp endurhæfingarstarfsemi víða um lönd, t.a.m. í Svíþjóð. Þar er búið að fella alla endurhæfingarstarfsemi að heilbrigðiskerfinu, öll deildaskipt sjúkrahús hafa endurhæfingu meðal verkefna sinna, og ég held að sú starfsemi sé þar komin á mjög hátt stig. Einnig í Bandaríkjunum hefur verið unnið mjög mikið að þessum málum og náðst ákaflega mikill árangur.
Það kemur í ljós, þegar unnið er markvisst að þessum málum, að það eru ákaflega margir sem þurfa á endurhæfingu að halda sem ná verulegum bata með skipulegum vinnubrögðum og þeirri þolinmæði sem nauðsynleg er í sambandi við það.
Ég er þeirrar skoðunar, og tala þá bara um sjálfan mig, en ekki fyrir hönd annarra flm., að þér á Íslandi sé tímabært að gera þá breytingu að flytja endurhæfingarstarfsemina frá félmrn., þar sem hún er nú, og til heilbrrn. og tengja hana við sjúkrahúskerfið í landinu, þannig að öll deildaskipt sjúkrahús á Íslandi liti á endurhæfingu sem mikilvægan þátt í verkefni sínu og að þar verði komið upp einnig opnum göngudeildum fyrir þá sem dveljast heima hjá sér, en þurfa skipulega aðstoð í sambandi við sjúkrahús. Þarna er um að ræða, eins og ég sagði áðan, ákaflega stóran hóp af fólki. Ef þessi danska tala, sem ég var að minnast á, á einnig við á Íslandi, þá er um að ræða yfir 20 þús. manns. Og ef hægt er að koma verulegum hluta þessa hóps til hjálpar á þennan hátt að hann geti tekið þátt í eðlilegum störfum í þjóðfélaginu, þá er það ákaflega mikið verkefni og skiptir miklu máli að sá árangur náist, því að þeir, sem verða varanlega fatlaðir, eru verst settir allra þegna í þjóðfélaginu, þeir verða einangraðir, og ef þeir eru háðir almannatryggingum með tekjur sinar, þá eru þær fjarskalega lágar og vafalaust þungbærara fyrir þá sem ungir eru heldur en fyrir þá sem fá ellilaun. En hér tala ég dálítið almennt um málið og framtíðarþróun þess.
Ég held að endurhæfingardeildin á Borgarspítalanum sé stærsta endurhæfingardeild sem starfandi er við sjúkrabús á Íslandi. Og við, sem þarna höfum dvalist, erum allir sammála um að þarna sé mjög myndarlega unnið og gott andrúmsloft. En ég held að það skipti ákaflega miklu máli að reynsla þessarar deildar, sem er sú stærsta, verði hagnýtt til þess að móta framtíðarstefnu okkar á þessu sviði og hvernig við eigum að takast á við þennan sjúkdóm sem getur átt margan uppruna, en birtist í ýmiss konar fötlun.
Ég tók þátt í því ásamt nokkrum öðrum, sem dvöldust á Grensásdeildinni, að fara í sundlaug á öðrum stað. En það er dálítið erfitt. það eru ekki allir sem komast það með langferðabíl. Og auk þess er sú sundlaug ekki bönnuð fyrir þarfir nándar nærri allra sem þurfa á meðferð í vatni að halda. Þess vegna höfum við, sem höfum persónulega kynnst þessari endurhæfingardeild Borgarspítalans, lagt fram þessa till., svo að reynt verði á það hvað sundlaug getur stuðlað að miklum framförum hjá þeim sem þurfa á vist að halda á endurhæfingardeildinni. Við viljum gjarnan hafa um þetta sem besta samvinnu við hæstv. ríkisstj., og það er ósk okkar að sú n., sem fær málið til meðferðar, flýti svo störfum sínum að það geti komið í ljós, hver er vilji Alþingis til þessa máls, svo snemma að hægt sé að breyta fjárlagafrv. í samræmi við það. Hæstv. heilbrrh. þyrfti þá að sjálfsögðu að fá þau gögn sem tiltæk eru um það hver kostnaður yrði þessu samfara, og mér skilst að það sé unnið að þeim málum af hálfu Reykjavíkurborgar núna, þannig að þau gögn ættu að geta legið fyrir.
Ég legg svo til, hæstv. forseti, að þegar umr. verður frestað verði málinu vísað til allshn.