24.01.1977
Sameinað þing: 39. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 1592 í B-deild Alþingistíðinda. (1287)
Umræður utan dagskrár
Forsrh. (Geir Hallgrímsson):
Herra forseti. Við höfum nú heyrt að hvaða niðurstöðu þingflokkur Alþfl. hefur komist á fundi sínum í morgun: að ríkisstj. segi af sér og boði til kosninga eins fljótt og unnt reynist. Það er eins og við höfum heyrt þetta áður. Þetta er ekki ný frétt og tæpast þess vegna ástæða til þess að kveðja sér hljóðs utan dagskrár á fyrsta fundardegi þings á þessu ári. En við skulum samt sem áður, þótt ekki sé um nýjar fréttir að ræða, íhuga hvaða röksemdir liggja til þessarar niðurstöðu.
Það er í fyrsta lagi sagt að meðferð dómsmála sé slík, að nauðsynlegt sé að ríkisstj. segi af sér og boði til kosninga eins fljótt og unnt reynist. Í tilefni af því skal ég enn á ný ítreka að það er yfirlýst stefna ríkisstj. að gera allt sem í hennar valdi stendur til að flýta meðferð dómsmála, rannsókn og uppljóstrun sakamála, svo að hreinsa megi andrúmsloftið í þjóðfélaginn. Í þessu skyni hefur dómsmrh. og ríkisstj. í heild beitt sér fyrir nýrri löggjöf á sviði dómsmála og með atbeina Alþ. fengið auknar fjárveitingar til þess að hraða málsmeðferð allri. Verður einskis látið ófreistað í þeim efnum.
En halda menn nú að það sé vænlegra til að hreinsa andrúmsloftið í þjóðfélaginu að rjúfa þing og efna til kosninga í stað þess að löggjafarvaldið sitji að störfum og veiti dómsvaldinu þau bættu starfsskilyrði sem nauðsynlegt er? Hver eru í raun og veru stefnumið Alþfl. til endurbóta á meðferð dómsmála? Hver eru hans jákvæðu viðhorf til þess að bæta starfshætti dómstólanna? Þótt ég dragi ekki í sjálfu sér í efa heilindi hv. þm. sem hér talaði áðan, þá örlar vissulega á sýndarmennsku og ég sé ástæðu til þess að gefnu tilefni orða hans og þessarar málsmeðferðar að ítreka það, sem ég sagði í áramótaávarpi mínu, m. a. á þennan veg:
„Þótt óhug hafi slegið á okkur vegna afbrotaöldu og óhjákvæmilegt sé að taka málin föstum tökum, þá skulum við ekki missa hugarjafnvægið og falla í gryfju múgsefjunar. Við megum ekki ýkja eða sverta myndina, sem er nógu slæm fyrir.“ Og enn fremur: „Við megum heldur ekki taka fram fyrir hendur löglegra dómstóla og sakfella áður en sök er sönnuð. John Stuart Mill segir í bók sinni „Frelsinu“: „Almenningsálitið hefur ekki óskoraðan rétt til afskipta af hverjum einstaklingi. Það er jafnbrýn forsenda farsæls mannlífs og varnir gegn harðstjórn að setja rétti þessum takmörk.“ Og enn fremur: „Vissulega hefur heilbrigt almenningsálit mikilvægu hlutverki að gegna. Kostir hins opna, hreinskipta þjóðfélags verða að fá að njóta sín. En því er aldrei unnt að mæla bót þegar maður eða mannorð er tekið af lífi án dóms og laga. Til þess höfum við dómstóla í réttarríki að kveða á um sekt eða sýknu“.
Mér finnst sannast að segja sú ályktun nærtæk af orðum hv. 9, þm. Reykv, að hann sé haldinn spennu. Það er alveg nægilegt að við búum í landi jarðskjálfta sem við getum ekki komið í veg fyrir. En það er of mikið af því góða þegar ábyrgir stjórnmálamenn eru haldnir straumi og skjálfta í þeim mæli sem fram kom hjá hv. þm.
Ég ítreka og legg áherslu á að það er mikið nauðsynjamál að hreinsa andrúmsloftið í þjóðfélaginu og það verður ekki gert nema með uppljóstrun þeirra sakamála sem nú eru til meðferðar fyrir dómstólum landsins. Við þm. eigum að styðja og styrkja dómstólakerfið eins og okkur er unnt og samrýmanlegt er stjórnarskránni, þar sem dómsvaldið er sjálfstætt í eðli sinn. En við eigum ekki að ýkja þær sögusagnir sem fara um þjóðfélagið, ekki að gera okkur að leik að koma á truflun í þeirri sálarró sem nauðsynlegt er að haldist ef við viljum leysa vandasöm mál.
Önnur röksemdin var Kröflumálið. Í tilefni af því vil ég og láta það koma hér fram vegna nýliðinna jarðhræringa við Kröflu, að að sjálfsögðu er rétt að endurmeta alla kosti um framhald framkvæmda þar. Iðnrh. hefur í samvinnu við viðkomandi aðila og sérfræðinga unnið að því og mun grg. um málið lögð fyrir ríkisstj. En halda menn nú að það sé vænlegra til þess að marka skynsama stefnu í Kröflumálinu varðandi nýtingu þeirrar fjárfestingar og þeirra orkulinda sem þar eru, en vandkvæði eru á að nýta vegna jarðhræringanna, að efna til kosninga í stað þess að þingið sitji að störfum og leggi þá sitt til málanna — eða hvaða stefnu boðar Alþfl. í þessu máli? Undir hvaða kjörorði vill hann ganga til kosninga á þessu sviði?
Í þriðja lagi er talað um að núv. ríkisstj. geti ekki staðið að kjarasamningum, sem væntanlega verða á næstunni, með þeim hætti að stuðlað geti að lausn væntanlegrar kjaradeilu. Það er sagt að það skorti á, að núv. ríkisstj. njóti trausts launþegasamtakanna og meira að segja bætt við: ýmis samtök vinnuveitenda hafa einnig lýst vantrú á ríkisstj. og stefnu hennar.
Ég held e. t. v. að af þessu megi draga þá ályktun að ríkisstj. hafi sinnt því hlutverki sínu að veita hvorum tveggja hagsmunasamtökunum, aðilum vinnumarkaðarins, nokkurt aðhald, eins og er skylda hennar. Hagsmunasamtök í þjóðfélaginu eiga vissulega rétt á sér. Þau eiga sínu hlutverki að gegna, og ríkisstj. vill virða það hlutverk. En um leið er það skylda ríkisstj. og Alþ. að gæta almenningshagsmuna, hagsmuna heildarinnar, og skapa hagsmunasamtökunum eðlilegt aðhald í því sambandi.
Nú er það yfirlýst stefna hagsmunasamtakanna í þjóðfélaginu, aðila vinnumarkaðarins, að þessu leyti, þeir vilja vera frjálsir gerða sinna, frjálsir að því að eigast innbyrðis við um gerð kjarasamninga, og það telur ríkisstj. eðlilega aðferð við gerð kjarasamninga. Þetta breytir ekki því, að ríkisstj. hefur þann skilning og hefur því aldrei dregið sig í hlé þegar hún hefur talið að hún gæti með atbeina sínum auðveldað gerð kjarasamninga þannig að þjóðarheill og hagsmunum heildarinnar væri betur borgið en ella.
Þegar rætt er um hvort ríkisstj. skorti traust, þá er rétt að það komi alveg skýrt og greinilega fram, að það, sem máli skiptir, er að ríkisstj. hafi traust meiri hluta Alþ. Samkvæmt íslenskri stjórnarskrá getur ríkisstj. setið meðan hún hefur traust Alþingis, löggjafarþings þjóðarinnar. Það er samkvæmt réttum þingræðisreglum, og þá fyrst væri þingræðið í landinu í hættu ef menn settu annað vald ofar Alþingi í þessu efni.
Það, sem hér sker úr, er auðvitað að við verðum að skapa samvinnu og samráð milli aðila vinnumarkaðarins, löggjafarsamkomunnar og ríkisstj. og milli landsmanna allra til þess að komast að skynsamlegri niðurstöðu um kjarasamningana í vor. En halda menn nú að það sé vænlegra að efna til kosninga fyrst og þeirrar baráttu sem óhjákvæmilega hlýtur að fylgja kosningum? Er það réttur undirbúningur til þess að skapa hæfilegan jarðveg er upp af gætu sprottið réttlátir kjarasamningar? Ég dreg það mjög í efa. Ef nýjar kosningar eiga að auka traust og trúnað milli þings og stjórnvalda annars vegar og almennings hins vegar, þá hlýtur það að vera skylda stjórnmálaflokka og löggjafarsamkomu að marka stefnu, marka kosti sem kjósendur geta valið á milli. Og ég spyr enn: Hver er stefna Alþfl. í kjaramálum? Það hefur farið lítið fyrir þeirri stefnumörkun hér á þingi í umræðum manna á meðal. Jú, auðvitað á að bæta kjör landsmanna, en með hvaða hætti? Væntanlega ekki með erlendri skuldasöfnun, og ef svo er, úr hvaða útgjöldum á þá að draga? Þetta eru spurningar sem rétt er að ræða hér á löggjafarsamkomunni og skýra fyrir landsmönnum, þannig að landsmenn hafi kosti um að velja þegar gengið er til kosninga.
Ég ítreka það, að það er ekki ástæða til þess að ganga til kosninga meðan ríkisstj. nýtur trausts Alþ., þegar svo stendur á sem nú er, að við ýmis vandamál er að glíma eins og oft endranær.
Ég mundi hins vegar ekki vera hikandi við að veita atbeina minn til þess að þingrofsvaldinu yrði beitt ef ég héldi að það gerði þjóðinni gagn og nauðsynlegt væri að fá staðfestingu þjóðarinnar á ákvörðunum Alþingis. En allajafna hygg ég að það sé affarasælast að ríkisstjórnir, sem myndaðar eru, sitji út kjörtímabilið, nema einhver sérstök atvik komi til. Ég held þess vegna að hv. 9. þm. Reykv. hafi smitast af flokksbróður sínum, forsrh. dana, og vilji stuðla að sams konar sviðsetningu hér á Íslandi eins og frændur okkar í Danmörku reyna nú. En það er ekki af hinu góða hjá þeim að þurfa að ganga til kosninga eftir hálfnað kjörtímabil. Það er vegna þess að þar skortir þingmeirihluta til úrlausnar málum miðað við fyrra samkomulag sem gert var meðal stjórnmálaflokka þar.
Ég vil leggja áherslu á það, að núv. ríkisstj. hefur fengið mörgu og miklu áorkað: eytt óvissu í öryggismálum, tryggt yfirráð yfir 200 mílna fiskveiðilögsögu með samstöðu landsmanna allra og varist svo og sótt fram eftir eitthvert alvarlegasta efnahagsáfall, sem þjóðin hefur orðið fyrir lengi, að atvinnuleysis hefur ekki gætt, gagnstætt því sem er í nágrannalöndum okkar, en atvinnuöryggi verið tryggt, að viðskiptahalli hefur lækkað úr nær 12% í 3% og verðbólga hjaðnað, þótt á því sviði hafi engan veginn fullnægjandi árangri verið náð. Það er að baráttunni gegn verðbólgunni sem við verðum að einbeita okkur. Halda menn að það sé liður í baráttunni gegn verðbólgunni að stofna nú til harðvítugra átaka milli flokka og ganga til kosninga? Er ekki nær að sinna þeim málum sem líkleg eru til þess að skapa grundvöll fyrir heilbrigðum kjarasamningum án þess að verðbólguþróun þurfi á eftir að fylgja? Er ekki nær að gefa okkur starfsfrið til þess að íhuga hvernig lífeyrismálum landsmanna skuli fyrir komið, skattamálum eða húsnæðismálum, sem allt eru mikilvægir málaflokkar og lausn þeirra getur ráðið því, hvort við fáum búið hér í þjóðfélagi þar sem efnahagslegt jafnvægi og jafnrétti ríkir?
Nei, það væri fullkomið ábyrgðarleysi ef þingrofsvaldi væri nú beitt til þess að þm. gæfust upp við verkefni sín. Ég mun hvorki sem forsrh. né munu aðrir samráðh. mínir, — þess er ég fullviss, — ljá máls á því að hlaupast af hólmi frá skyldum sínum, og ég hygg að þegar alþm. skoða hug. sinn í alvöru, þá finni þeir og það jafnt hv. 9. þm. Reykv, sem aðrir alþfl.-þm., að skylda okkar nú er að sinna störfum okkar, leysa vandamál þjóðfélagsins og sýna með þeim störfum okkar hver stefna okkar er, en ganga síðan fram fyrir dóm kjósenda á grundvelli starfs okkar og stefnu, hafandi markað með eðlilegum hætti þann skoðanaágreining, sem eðlilegur er og sjálfsagður í lýðræðisríki. Jafnframt verða alþm. og stjórnmálamenn að sýna að þeir séu menn sem ýti ekki undir öfgar, falli ekki í múgsefjun og örvi ekki til múgmennsku, heldur standi í fararbroddi fyrir skynsamlegri úrlausn mála er allri þjóðinni megi verða til heilla. Ég er mér þess meðvitandi að ábyrgð fylgir starfi mínu, en með þessum eina hætti tel ég að ég bregðist ekki þeirri ábyrgð.