24.01.1977
Sameinað þing: 39. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 1615 í B-deild Alþingistíðinda. (1294)

Umræður utan dagskrár

Iðnrh. (Gunnar Thoroddsen) :

Herra forseti. Ég mun að sjálfsögðu verða við óskum hv. 2. þm. Austurl. Ég vil aðeins skýra frá því að bráðabirgðaviðgerðir og lagfæringar vegna þeirra atburða, sem gerðust á Austurlandi, eru sæmilega á vegi staddar, þannig að viðgerð Eskifjarðarlínunnar, sem um 200 m breitt snjóflóð féll á, verður lokið nú í nótt, að því er rafmagnsveitustjóri ríkisins tjáði mér nú fyrir skömmu. Varðandi Stuðlaheiðarlínuna sem slitnaði, þ. e. a. s. frá Reyðarfirði til Fáskrúðsfjarðar, þá eru menn komnir þar nú til viðgerðar og er gert ráð fyrir að bráðabirgðaviðgerð verði lokið þar í kvöld þannig að skömmtun á þessu svæði verði væntanlega aflétt í nótt.

Það hafa einnig verið gerðar ráðstafanir til þess að bæta þarna úr orkuskorti með dísilvélum. Í þessari viku munu verða teknar tvær nýjar dísilvélar í notkun á Djúpavogi og Eskifirði.

Ég vil, án þess að fara frekar út í þessi atriði nú, aðeins undirstrika það, sem bæði kom fram hjá hv. 2. þm. Austurl. og margoft hefur verið bent á áður, að rafmagnsástand á Austurlandi er óviðunandi. Það eru einkum tvær meiri háttar framkvæmdir sem þar hefur verið ákveðið að ráðast í. Önnur er sú virkjun Bessastaðaár sem sett voru lög um haustið 1974. Hefur verið unnið að rannsóknum, undirbúningi og hönnun þar síðan. Ég er sammála hv. þm. um að það er auðvitað brýn nauðsyn að stór rafvirkjun verði byggð í þessum landsfjórðungi. Hin meiri háttar ráðstöfunin er sú að leggja austurlinu frá Norðurlandi til Austurlands og verður byrjað á henni nú á þessu ári. Fékkst hálfur milljarður tekinn upp í lánsfjáráætlun í því skyni, og ætlunin er að henni verði lokið á næsta ári, 1978. Þessar tvær stórframkvæmdir þurfa að komast fram sem allra fyrst. En á meðan þær eru ekki komnar, önnur hvor eða helst báðar, þarf að sjálfsögðu að reyna til hins ítrasta ekki aðeins að bæta úr því ástandi, sem nú er, heldur reyna að koma í veg fyrir að slíkt endurtaki sig.

Ég mun verða við óskum hv. þm. og kynna mér þetta mál sem best.