25.01.1977
Sameinað þing: 41. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 1626 í B-deild Alþingistíðinda. (1308)

9. mál, bann við að opinberir stafsmenn veiti umtalsverðum gjöfum viðtöku

Flm. (Sighvatur Björgvinsson) :

Herra forseti. Hv. þm. Páll Pétursson getur verið alveg rólegur. Hann skal ekki bíða tjón á sálu sinni þó að hann veiti þessu máli atfylgi. Hann þarf ekkert að óttast það, að ég hafi þegið einhverja boðsferð til NATO án þess að greiða hana sjálfur. Staðreyndin er sú, að sú ferð, sem ég fór ásamt fleiri alþm., var ekki ferð á vegum NATO, heldur ferð til þess að sækja fund Þingmannasambands NATO sem við íslendingar eigum aðild að. Alþ. borgaði ferðakostnaðinn, en ekki NATO, að vísu aðeins ferðakostnaðinn fyrir okkur þingfulltrúana. Eiginkonur nokkurra okkar fóru þessa ferð með okkur og við greiddum ferðakostnaðinn og uppihaldskostnaðinn fyrir eiginkonur okkar sjálfir úr eigin vasa. Hv. þm. getur því verið alveg rólegur með það, að hann muni ekki bíða tjón á sálu sinni þó að hann fylgi okkur alþfl.-mönnum í þessu máli.

Ég vil enn fremur vekja athygli hv. þm. á því, að þarna er rætt um að ekki eigi opinber starfsmaður, ráðinn eða kjörinn, að veita viðtöku umtalsverðum gjöfum, endurgjaldslausri þjónustu, sérstökum fríðindum eða óvenjulegri fyrirgreiðslu umfram starfsréttindi. Hann þarf því ekki heldur að óttast það, hv. þm., að það eigi t. d. að saka hann fyrir að notfæra sér starfsréttindi hans sem alþm., hvort heldur þau felast í því að Alþ. greiði fyrir hann ferðakostnað til þess að taka þátt í ráðstefnum eða fundum, sem hann sem alþm. á að sitja, né heldur að það yrði tekin af honum sú heimild sem alþm. hafa t. d. til að fá greiddan kostnað við síma sinn eða kostnað við ferð út í sitt kjördæmi. Hér er um að ræða starfsréttindi, en ekki góðvildarkaup.