26.01.1977
Neðri deild: 42. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 1660 í B-deild Alþingistíðinda. (1332)
146. mál, tékkar
Þórarinn Þórarinsson:
Herra forseti. Ástæðan til þess, að ég kvaddi mér hljóðs, er sú að hv. 8. landsk. þm. datt nú ofan í sömu vökina og ég er búinn að detta ofan í fyrr á þessu ári. Hann fullyrti að vissir flutningar á áfengi hefðu átt sér stað frá Áfengisversluninni að næturlagi. Það var skrifað nokkuð mikið um það í blöðin í byrjun síðasta árs, að slíkir flutningar hefðu átt sér stað. Ég skrifaði síðar um þetta mál og hélt að hér væri rétt frá sagt, og í minni grein kom fram að umræddir flutningar hefðu átt sér stað að næturlagi. En ég fékk það strax upplýst, sem ég síðan leiðrétti að þessir flutningar hefðu átt sér stað á venjulegum afgreiðslutíma, þegar a. m. k. meiri háttar áfengispantanir eru afgreiddar. Ég held líka að sá maður, sem fyrstur varð til að halda þessu fram í blöðunum og endurtaka það nokkuð oft, sé nú búinn að leiðrétta það, eða mig minnir að ég hafi séð það í grein eftir hann.
Þá er það hins vegar framhaldið af þessum áfengisflutningum úr Áfengisversluninni í Klúbbinn. Hér var um að ræða áfengi sem ekki var merkt sérstaklega að færi til veitingahúsa, og þess vegna gat hér verið um grunsamlegan flutning að ræða, eins og líka kom í ljós. Það voru fyrstu viðbrögð forstjóra Áfengisverslunarinnar og fjmrh., sem þá var Halldór E. Sigurðsson, að láta þá tvo menn, sem afgreiddu þetta áfengi í Áfengisversluninni, hætta störfum og setja málið í sérstaka rannsókn. Það lágu ekki fyrir svo þungar sakir þá að það þætti ástæða til að láta þetta ganga til dómstólanna, en hins vegar voru tveir menn settir til að rannsaka málið. Ég held að ríkisendurskoðandi hafi verið annar þeirra og hinn hafi verið Guðmundur Ingvi Sigurðsson lögmaður. Meðan þessi rannsókn fór fram tóku umræddir starfsmenn Áfengisverslunarinnar ekki nema hálf laun, eins og venja er undir slíkum kringumstæðum. Niðurstaða þessarar rannsóknar leiddi í ljós að ekki var talið að hér hefði verið um saknæmt athæfi að ræða, vegna þess að starfsmönnunum hefði ekki endilega þurft að vera kunnugt um hvert þetta áfengi fór. Og samkv. þessum niðurstöðum fengu þeir störf sín aftur. Þetta hygg ég að sé hið rétta í málinu og þess vegna hafi verið ástæðulaust af hv. 8. landsk. að blása þetta mál út eins og hann gerði hér.
Það kom fram í máli hv. þm. að það væri rangt að það hefði verið vakinn nokkur úlfaþytur í sambandi við viss dómsmál að undanförnu. og í þeim efnum vitnaði hann til ræðu dómsrh. hér í fyrradag. Ég held að það megi einmitt draga þá ályktun af þeirri ræðu, að það hafi verið vakinn sérstakur úlfaþytur um viss mál. Dómsmrh. minntist ekki á nema um 10 mál. En við vitum að nú eru fyrir dómstólunum í landinu ekki hundruð mála, heldur þúsundir mála og mörg þeirra alveg eins stór að vöxtum og þau mál sem nú er verið að fjalla um. Og svo hefur verið á undanförnum árum líka. Það hafa á hverjum tíma verið fyrir dómstólum hundruð eða jafnvel þúsundir mála án þess að það hafi verið vakinn slíkur styrr um þau í blöðunum eða öðrum fjölmiðlum. En þessi mál, sem ráðh. gerði að umtalsefni, hafa sérstaklega verið tekin út úr, þau hafa verið gerð að sérstöku árásarefni á einstaka menn, einstaka flokka og einstaka dómara, vegna þess að það hefur verið álitið að með því að gera þau sérstaklega að umtalsefni væri hægt að ná í vissa menn. Önnur mál, sem eru alveg eins mikilsverð og alveg eins hefur dregist að rannsaka, hafa verið látin liggja í þagnarþey. Þetta er vegna þess að hér er ekki um að ræða að það sé einhver sérstök réttlætiskennd sem hafi knúið menn til þess að hafa þennan málflutning uppi, heldur hefur tilgangurinn verið fyrst og fremst að reyna að ná í vissa menn og vissan flokk.
Það er ekki ófróðlegt í þessu sambandi að rekja þá baráttu sem Alþfl. hefur háð frá fyrstu tíð í réttarfarsmálum. Það er hægt að gera það í tiltölulega stuttu máli.
Ég held að frá fyrstu baráttuárum Alþfl. sé ekki hægt að finna nema ein afskipti sem hann hefur haft af réttarfarsmálum og ég hygg mjög veruleg, en þau beindust öll að því að vernda rétt einstaklingsins gagnvart kerfinu, gagnvart dómstólunum og gagnvart þjóðfélagsvaldinu. Það var að halda fram rétti hins minni máttar. Það var þetta sem einkenndi afskipti Alþfl. af réttarfarsmálum á hans fyrstu starfsárum eða starfsáratugum. Seinna fór svo að Alþfl. lét þessi mál ákaflega afskiptalítil. Flokkurinn átti sæti í ríkisstj. um 15 ára skeið, frá árinu 1956–1971. Ég held að það sé ekki hægt að benda á eitt einasta dæmi þess að á þeim tíma hafi flokkurinn haft neina forystu í réttarfarsmálum eða gert neitt til þess að koma á betri skipan í þeim efnum. Ég held miklu frekar að þeir menn, sem þá fóru með dómsvaldið, hafi oft og tíðum mætt tregðu hjá samstarfsflokki sínum varðandi fjárveitingar til dómsmálanna, hann hafi átt sinn þátt í því að ýmsar till., sem t. d. Bjarni Benediktsson og Jóhann Hafstein höfðu uppi sem dómsmrh., náðu ekki fram að ganga. Við skulum segja að þetta kunni að stafa af því, að flokkurinn hafi þá verið í stjórn og ætlað samstarfsflokknum að sjá meira um þessi mál og hann hafi haft meiri áhuga á því að koma sínum málum fram. En þá hefði kannske frekar mátt búast við því, að þegar flokkurinn komst í stjórnarandstöðu hefði áhugi hans vaknað í þessum málum, eins og oft vill verða þegar flokkar komast í stjórnarandstöðu, að þeir taka sig á og taka þá upp ýmis mál sem þeir hafa ekki sinnt áður. En slíku var ekki til að dreifa um Alþfl.
Ef við lítum í stuttu máli yfir þingsöguna síðan Alþfl. komst í stjórnarandstöðu, þá kemur m. a. þetta í ljós: Ef við lítum í Alþingistíðindin frá 1971, þá eru engin mál um dómsmál sem eru flutt af Alþfl. á því þingi. Ef við lítum yfir þingtíðindin 1972, þá kemur hið sama í ljós. Ef við lítum yfir þingtíðindin 1973, þá sést hið sama, þar vottar hvergi fyrir neinum áhuga hjá Alþfl. í sambandi við þessi mál. Ef við lítum á þingtíðindin frá 1974, þá kemur líka nákvæmlega sama í ljós. Ef við lítum svo yfir þingtíðindin frá 1975, þá kemur líka í ljós að a. m. k. fram að jólum á því þingi örlar ekki á neinum áhuga Alþfl. í sambandi við dómsmálin á Alþingi.
Það gerist svo í árslok 1975 eða í ársbyrjun 1976, ég man ekki hvort heldur var, að einn af aðalmönnum Klúbbsins er settur í gæsluvarðhald, grunaður um að eiga aðild að Geirfinnsmálinu eða ákærður um það af vissum föngum sem þá sátu inni. Og það er þá fyrst sem áhugi Alþfl. vaknar á þessum málum. Og á hvern hátt vaknaði áhugi Alþfl. á þessum málum? Hann vaknaði ekki á þann hátt að það þyrfti að bæta dómskerfið og gera lagfæringu á því. Þessi áhugi hans vaknaði á þann hátt að það var reynt að tengja Geirfinnsmálið ekki aðeins við Klúbbinn, heldur líka við Framsfl. og sérstaklega dómsmrh. og halda því fram að hann hefði átt þátt í því að það hefði verið stöðvuð rannsókn á eiganda Klúbbsins er hann hafði verið grunaður um aðild að Geirfinnsmálinu.
Það var í sambandi við þetta sem áhugi Alþfl. vaknaði í dómsmálum, en ekki fyrr. Og það var alveg augljóst hvaða tilgangur lá þar á bak við. Menn gerðu sér vonir um að með því að bera þessar þungu sakir á dómsmrh. væri hægt að koma honum á kné og þá væri kannske hægt að koma núverandi stjórnarsamstarfi fyrir kattarnef. Þetta er upphafið að áhuga Alþfl. á dómsmálum, og allt það, sem hann hefur síðan gert og foringjar hans og sagt í þessum málum, það hefur verið bundið þessum eina tilgangi. Fram hjá þessu er ekki hægt að ganga.
Ég hefði gjarnan viljað komast hjá því að rekja þessa sögu hér, en það verður ekki látið ógert, vegna þess að þessum málflutningi af hálfu Alþfl. er stöðugt haldið áfram og það er stöðugt haldið áfram og það er stöðugt verið að dylgja um það af hálfu ýmissa forustumanna hans og blaða hans að Framsfl. sé sá flokkur sem hafi mest af misindismönnum innan sinna vébanda. Það er reynt að nota þessi fáu mál til sönnunar um það. En þó munu framsóknarmenn ekki koma við nema eitt eða tvö af þessum málum. Og að halda því fram, að t. d. samskipti Húsbyggingarsjóðs Framsfl. og Klúbbsins tengi Framsfl. á einhvern hátt við Klúbbmálið, er náttúrlega fyrir neðan allar hellur, enda ekki minnstu röksemdir færðar fyrir því. Ég sé ekki ástæðu til þess að rekja það mál ítarlega nú, vegna þess að það hefur oft áður verið gert. En ef þeir alþfl.-menn vilja fara út í umr. um það mál, þá skal ekki standa á mér að gera það.
Ég held að ég láti þetta nægja til að sýna hvernig dómsmálaáhugi Alþfl. er til kominn. En áður en ég lýk máli mínu finnst mér rétt að víkja nokkrum orðum að því frv. sem hér liggur fyrir, því að mér finnst mikil spurning hvort ekki vanti í það frekari ákvæði sem lýtur að bönkunum alveg sérstaklega. Mér skilst að það hafi komið í ljós við rannsókn svonefnds tékkamáls eða ávísanamáls, sem hefur verið til rannsóknar að undanförnu, a. m. k. í sambandi við suma þá menn sem hafa verið ákærðir, að þeir telji að þeir hafi haft leyfi bankanna til að gefa út falska tékka eða gefa út tékka sem engar innistæður voru fyrir, og út á þennan vitnisburð bankanna eigi að koma fram sýknun vissra manna. Ég tel að það sé fyrir neðan allar hellur að bankar eða bankastjórar hafi leyfi til þess að heimila mönnum að gefa út falskar ávísanir, eins og hér virðist hafa átt sér stað. Í þessum efnum eiga sömu lög að gilda um alla, og það á að vera saknæmt ef menn gefa út falska ávísun. Það er ekkert sem heimilar bankastjórum að gera slíkt. Ef þeir vilja veita viðkomandi manni lán, þá eiga þeir að gera það eftir venjulegum bankareglum, en ekki á þann hátt sem hér virðist hafa viðgengist, ef því er þá ekki beinlínis til að dreifa að bankastjórar hafi sagt það eftir á vegna kunningsskapar að vissir menn hafi haft heimild til þess að gefa út falska tékka með þeirra leyfi. Ég álít að það þurfi að setja inn í tékkalögin þung viðurlög við því að bankar eða bankastjórar heimili mönnum að gefa út falskar ávísanir, það eigi að vera jafnrefsivert hjá bönkunum að leyfa slíkt eins og hjá þeim mönnum sem gera slíkt.
Ég get tekið undir margt af því sem kom fram í ræðu hv. 8. landsk. þm. og hann sagði um bankana. Ég veit að einhver mesti misbrestur í okkar fjármálalífi er fólginn í því hvernig bönkunum er að mörgu leyti stjórnað og hvernig það er margs konar misferli sem þar fær að vaða uppi. Ég álít að það sé ekki Alþýðubankinn sem sé einn sekur í þeim efnum. Ég hygg að það sé hægt að finna dæmi um svipuð mál líka í stóru bönkunum og það sé ekki óalgengt að þegar einhver maður er nógu skuldugur eða fyrirtæki, þá sé reynt að fleyta þeim rekstri áfram með nýjum og nýjum lánum sem gera svo ekkert annað en að auka skuldirnar. Bankarnir eru áreiðanlega eitt af því sem þarfnast hvað mest aukins aðhalds í okkar þjóðlífi.