31.01.1977
Efri deild: 39. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 1723 í B-deild Alþingistíðinda. (1367)

150. mál, fávitastofnanir

Sjútvrh. (Matthías Bjarnason) :

Herra forseti. Þetta frv. um breyt. á l. um fávitastofnanir fjallar um breyt. á 15. gr. laganna, en lögin um fávitastofnanir voru samþ. á árinu 1967 og samkv. þeim var gert ráð fyrir að starfræktur verði Þroskaþjálfaskóli, og þá var talið nauðsynlegt að skólinn væri starfræktur við aðalfávitahæli ríkisins vegna þess að þar væri eini staðurinn sem gæfi nemendum kost á að umgangast stóran hóp vangefinna einstaklinga á ýmsum stigum og gæti veitt nemum þannig æskilega þjálfun. Nú hafa þessi mál mjög breyst, þannig að þessar stofnanir eru nú orðnar allmargar., og því er ekki ástæða til að tengja þennan skóla við þetta eina hæli í landinu. Einnig er rétt að breyta því, sem breytingin á 15. gr. gerir ráð fyrir, að skólastjóri sé ekki jafnframt forstöðumaður Kópavogshælisins, heldur verði sérstakur skólastjóri ráðinn að Þroskaþjálfaskólanum, og tekið þar fram um menntun hans, eins og hér segir, að hann hafi lokið háskólaprófi í uppeldis- og sálarfræði eða hafi lokið kennaraprófi frá viðurkenndum háskóla, og jafnframt, að skólastjóri skuli einnig hafa staðgóða þekkingu á uppeldi og umönnun fólks með sérþarfir.

Þessi breyting er eingöngu í sambandi við Þroskaþjálfaskólann og ráðningu skólastjóra, þó að þessi lög mættu gjarnan breytast meira en hér er gert ráð fyrir og þá ekki síst fyrirsögn þessara laga sem á engan veginn við að mínum dómi. En það er talið af skólastjórn Þroskaþjálfaskólans nauðsynlegt að fá þessa breytingu fram, og því er þetta frv. lagt hér fram í trausti þess að það fái afgreiðslu á yfirstandandi þingi.

Þær breytingar hafa orðið á starfsemi Þroskaþjálfaskólans að útbúið var mjög gott kennslurými í gamla Kópavogssjúkrahúsinu, holdsveikraspítalanum. Þar hefur verið búið að mínum dómi og ég held að ég megi segja að dómi bæði nemenda og kennara skólans mjög vel að skólanum, enda er almenn ánægja þar ríkjandi. Ég kom í þennan skóla fyrir stuttu. Jafnframt var fallist á að ráða tvo kennara á s. l. hausti til eins árs til þess að móta betur starf þessa skóla.

Herra forseti. Ég ætla ekki að hafa þessi orð fleiri, en legg til að frv. verði að lokinni þessari umr. vísað til hv. heilbr.- og trn.