25.10.1976
Sameinað þing: 8. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 170 í B-deild Alþingistíðinda. (137)

Stefnuræða forsætisráðherra og umræða um hana

Benedikt Gröndal:

Herra forseti. Góðir íslendingar. Ríkisstj. hefur tvo stærstu flokka þjóðarinnar og 2/3 hluta Alþ. á hak við sig og ætti því að geta veitt þjóðinni einarðlega forustu. En bar stefnuræða forsrh. vott um slíka forustu? Nei, það gerði hún því miður ekki. Ríkisstj. ætti að geta komið fram breytingum til bóta á þjóðfélaginu til að leysa sívaxandi vanda spillingar og misréttis. En forsrh. boðaði ekkert slíkt, enda eru stjórnarflokkarnir íhaldsflokkar sem vilja sem minnstu breyta í hinu stjórnlausa frumskógaþjóðfélagi okkar.

Ríkisstj. ætti að geta borið fram úrræði og till. En í stað þess leiðir stefnuræða hæstv. forsrh. í ljós að stjórnarstefnan virðist aðallega vera á þá lund, að nú skuli „leitað ráða“ eða „kannað vandlega“ hvað skuli gera í hinum ýmsu aðsteðjandi vandamálum sem við höfum átt við að glíma árum saman, eftir að ríkisstj. hefur setið í meira en tvö ár við völd.

Það er dapurlegt að stefnuræða hæstv. forsrh. skuli vera einna líkust ársskýrslu hjá íhaldssömum bankastjóra sem þylur meira eða minna það sem hagfræðingar bankans rétta honum, föðurlegar áminningar til þjóðarinnar um að hún eyði of miklu, tekjurnar hrökkvi ekki til, við höfum tekið „forskot á sæluna“ og nú reyni á raunsæi okkar allra á næstunni.

Ekki gat ráðh. staðist mátið að lesa yfir launþegum þá íhaldskenningu að hér mundi vera atvinnuleysi ef verðbólgan væri minni og ef skuldasöfnunin erlendis væri ekki eins mikil og verið hefur. Þetta er gömul hagfræðilumma sem er fyrir löngu orðin úrelt, ef hún hefur þá nokkurn tíma verið með nokkru viti. Nútíma þjóðfélög eru miklu flóknari en svo að slíkar kenningar eigi við. Þetta sannast raunar í nágrannalöndum okkar. Þau, sem hafa mest atvinnuleysi, eins og Bretland, hafa einnig mikla verðbólgu og safna stórskuldum erlendis. Önnur lönd, sem hafa lítið atvinnuleysi, eins og Svíþjóð eða Noregur, hafa hins vegar getað haldið allvel í verðbólguna. Og ekki safna vestur-þjóðverjar skuldum erlendis þó að þeir hafi innan við 4% atvinnuleysi. Ég geri þessi orð hæstv. forsrh. sérstaklega að umræðuefni af því að í þeim felst eins konar hótun í garð launastéttanna á Íslandi, — hótun sem er byggð á röngum forsendum. Það er óverðugt að reyna að koma því inn hjá vinnandi alþýðu þessa lands að ef hún þoli ekki þegjandi verðbólguna og skuldasöfnunina erlendis, þá geti hún fengið atvinnuleysi.

Ráðh. ræddi um efnahagsmálin og hafði þann boðskap að færa að nú væri að rofa til með verðhækkunum á erlendum mörkuðum, en það mundi litlu breyta hér heima fyrir því að við værum búnir að éta upp þessar hækkanir fyrir fram. Við höfum heyrt slíkar tölur fyrr. Það má ekki bæta kjör launþeganna fyrr en skýrslurnar sýna svo og svo mikla framleiðsluaukningu eða útflutningsaukningu eða betri viðskiptakjör. Gallinn við þennan boðskap hæstv. forsrh. er frá sjónarmiði jafnaðarmanna a.m.k. sá, að hann gengur út frá því að allt sé í besta lagi með kerfið, þar þurfi engu að breyta. Hann nefnir það ekki einu orði að launamisræmið hefur farið hraðvaxandi með hverjum degi. Þeir, sem hafa föst laun eða vinna eftir umsömdum töxtum, sitja eftir. Allir hinir, sem geta að einhverju leyti ráðið launum sínum sjálfir, hækka þau stöðugt til að mæta óðaverðbólgunni.

Alþjóðlegar skýrslur sýna að þjóðartekjur á mann eru hér á Íslandi meðal hinna hæstu í heimi, ekki mjög langt á eftir Svíþjóð og Bandaríkjunum. Samt sem áður vitum við að laun fyrir hinn langa vinnutíma, sem hér tíðkast, gera okkur íslendinga rétt hálfdrættinga við þau laun sem fólk ber úr býtum fyrir sambærileg störf t.d. á Norðurlöndum. Hvernig fær forsrh. þetta dæmi til að ganga upp? Hefur hann aldrei hugsað um þetta? Hefur hann engar áhyggjur af því? Við erum ein tekjuhæsta þjóð á mann samkv. skýrslum sem virt alþjóðasamtök eins og OECD taka gildar og birta opinberlega. Samt er Ísland láglaunasvæði sem sekkur dýpra í það fen. Það hlýtur að vera meira en lítið að þessu kerfi okkar.

Bretar eru að kikna undan úreltu efnahagskerfi, það viðurkenna allir, lélegu skipulagi, lélegri stjórn fyrirtækja, úreltum hugsunarhætti. Það skyldi þó ekki vera að við íslendingar þjáumst að einhverju leyti af þessari sömu meinsemd.

Nú telja allflestir sjálfstæðismenn að tilgangur atvinnurekstrar sé að græða fé fyrir þá sem eiga peningana og hlutabréfin. En við jafnaðarmenn teljum að tilgangur atvinnurekstrar sé fyrst og fremst að skapa þjóðinni lífsviðurværi, tryggja fólkinu góða atvinnu og sem best lífskjör. Það má benda á eitt og annað sem kemur til greina í þessu sambandi, svo sem flutningskostnað á milli Íslands og annarra landa á bæði innflutningi og útflutningi. En það tapast svo mikið af hinum háu tekjum, sem okkur er sagt af alþjóðlegum stofnunum að við höfum í kerfinu, áður en launþegarnir fá útborgað, að við það megum við ekki una. Við megum ekki telja þetta kerfi sjálfsagt og óumbreytanlegt, eins og helst er að heyra af ræðu hæstv. forsrh. Það væri þakkarvert ef ríkisstj. vildi taka það upp í stefnu sína að kanna þetta vandamál og skipaði svo sem eina nefnd til að leita ráða til að bæta úr þessum alvarlegu ágöllum á hagkerfi okkar. En því er ekki að heilsa. Það eru skipaðar nefndir hver á fætur annarri til að rannsaka þetta og hitt, en ekki kerfið sjálft eða hin lágu laun sem það skilar okkur, enda þótt einhvers staðar í því eigi að vera til einhverjar hæstu meðaltekjur á mann í veröldinni.

Einn sólargeisla sá ég í myrkviði þessarar íhaldsstefnuræðu. Það voru loforð hæstv. forsrh. um nokkrar breytingar á skattalögum, þ.e.a.s. í þeirri von að efndirnar á orðum hans takist vel.

Í fyrsta lagi var sagt að nú skyldi skilja á milli atvinnurekandans og fyrirtækis hans við skattútreikning, og í öðru lagi voru nefndar breytingar á fyrningarreglum skattalaganna. Ef ríkisstj. gengur inn á verulegar breytingar á þessum tveim atriðum gætu þær reynst merkir áfangar í skattamálum. Jafnframt hefðu þá stjórnarflokkarnir báðir látið undan hinum þunga þrýstingi almenningsálits og gagnrýni stjórnarandstöðu sem magnaðist mjög á s.l. sumri er skattskrár voru birtar og í ljós kom að misrétti í skattaálögum var hrikalegra en nokkru sinni fyrr.

Sjálfstfl. og Framsfl. hafa farið með stjórn fjármála íslenska ríkisins og þar með skattamála í svo að segja öllum ríkisstj. í marga áratugi, kannske að einu ári undanskildu. Þeir hafa auðvitað vitað það alla tíð að fjöldinn allur af hátekjumönnum, sem hafa rekið einkafyrirtæki, hafa getað gert fyrirtækin upp með bókhaldstapi og af þeim sökum losnað sjálfir við tekjuskatta, þó þeir lifi ríkmannlegu lífi. Ég læt hlustendum eftir að finna skýringar á því, af hverju stjórnarflokkarnir, Sjálfstfl. og Framsfl., hafa aldrei viljað taka fyrir þessi löglegu skattsvik, eins og ég tel réttast að kalla þau. Á sama hátt hafa sjálfstæðismenn og framsóknarmenn auðvitað vitað árum saman að fyrirtæki og eigendur þeirra hafa rakað saman fé í skjóli fyrningarreglnanna sem gilt hafa. Þegar búið er að afskrifa bát eða einhvers konar fyrirtæki til fulls, þá myndar eigandinn bara nýtt hlutafélag, kannske með kerlingu sinni, börnunum eða einhverjum nákomnum vinum og félögum, og svo selur hann gamla bátinn eða gamla fyrirtækið þessu nýja, græðir stórkostlega á sölunni og byrjar svo að skrifa allt saman á nýjan leik. Þetta er furðuleg svikamylla, og að tveir stærstu flokkar þjóðarinnar skuli hafa stjórnað fjármálum og skattamálum hennar í áratugi og látið þetta viðgangast, það er þeim til skammar. En guði sé lof, að þeir virðast loksins viðurkenna þessar staðreyndir og lofa því nú að gera bót og betrun þótt seint komi.

Á sama tíma og þessir brestir hafa verið í skattakerfinu hefur tekjuskatturinn orðið hreinn launþegaskattur. Þar kemur raunar enn eitt skattasvindlkerfið til, en það eru frádrættirnir. Þeir, sem komast yfir lánsfé sem á tímum óðaverðbólgu nálgast hreina fjárgjöf, fá svo viðbótarhýru hjá skattinum með frádrætti vaxtanna. Og hvers vegna skyldu stjórnarflokkarnir ekki hafa séð ástæðu til að takmarka þennan frádrátt t.d. við eina góða íbúð? Hverjum hafa þeir verið að hygla í áratugi með því að láta þetta kerfi halda áfram?

Eitt mesta ranglæti þjóðfélagsins hefur viðgengist innan skattakerfisins án þess að Sjálfstfl. eða Framsfl. notuðu aðstöðu sína allan þennan tíma til að leiðrétta það. Það væri móðgandi við forustumenn Sjálfstfl. og Framsfl. nú og undanfarin ár að halda því fram að þeir hafi ekki séð þessa hluti eða skilið þá. Skýringin er einhver önnur.

Stjórnarandstaðan hefur flutt hverja till. eftir aðra um þessi mál á undanförnum þingum og bent á margar hugmyndir um rökstuddar umbætur. Það er því nokkur sigur að ríkisstj. skuli nú loksins rumska, enda er þjóðinni nóg boðið. En mey skal að morgni lofa, og reynslan sýnir okkur að það er rétt að geyma sér frekari þakkargjörð þangað til ný og betri skattalög hafa verið afgreidd og staðfest.

Það er gömul list hér á Alþ. að gera ýmsar kúnstir í klásúlum hinna flóknu skattalaga. Það er raunar alvarlegt sjúkdómseinkenni á vel menntaðri smáþjóð að hún skuli þurfa að hafa skattalög sem eru svo flókin að allur almenningur á bágt með að skilja þau og treystir sér varla til þess að telja fram á eigin spýtur. Óttinn við að missa af einhverju eða verða fyrir einhverri skekkju í vélum kerfisins hefur hrakið fleiri og fleiri almenna borgara þessa lands til þess að leita ráða hjá sérfræðingum við skattframtöl sín, enda er slík aðstoð orðin að allblómlegri atvinnugrein. Skattakerfi í frjálsu lýðræðisríki á að vera svo skýrt og einfalt að hver miðlungsmaður geti skilið það og talið fram sjálfur og gert sér nokkra grein fyrir því hver útkoma dæmisins eigi að verða, hvað hann muni þurfa að greiða mikil gjöld. Þetta markmið eigum við að setja okkur og ekki hætta fyrr en því er náð.

Oft er það svo að fjölskyldur eiga í fjárhagserfiðleikum og gengur illa að ná endum saman, safna jafnvel skuldum. En það geta verið önnur vandamál innan fjölskyldnanna sem í raun réttri eru miklu örlagarfkari og valda okkur því miklu meiri áhyggjum. Ég tel að þannig sé nú ástatt í þjóðarfjölskyldunni okkar. Við höfum t.d. allmiklar áhyggjur af geigvænlegri spillingu sem í ljós hefur komið í hinum mörgu sakamálum, er fram hafa komið í dagsljósíð hin síðustu missiri, svo og af veikleika dómskerfisins, sem lýsir sér best í því hve fá þessara mála hafa verið upplýst. Við höfum áhyggjur af þeim siðferðilega veikleika sem fram hefur komið í margs konar misnotkun á séraðstöðu einstaklinga sem margir eru í röð fremstu forustumanna þjóðarinnar. Öllum er ljóst að endurbætur dómskerfisins verða að gerast hið bráðasta. En jafnframt því verðum við að skyggnast eftir hinum dýpri orsökum þessarar þjóðarógæfu og leitast við að gera ráðstafanir sem stuðla að aukinni siðferðiskennd, sérstaklega hvað varðar meðferð fjármuna og beitingu valds og áhrifa.

Ef dæma má eftir stefnuræðu hæstv. forsrh. hefur hann ekki sérlega miklar áhyggjur af þessum málum. Hann minntist á þau í örfáum orðum í sambandi við verðbólguna, svona sem einn af hliðarkvillum hennar, en um beinar aðgerðir í dómsmálum hafði hann aðeins 13 orð að segja í allri ræðunni. Annaðhvort er ráðh. gersamlega áhugalaus um þessi vandamál — og því neita ég að trúa á hann — eða þá að dómsmálin eru feimnismál innan ríkisstj. sem hann telur hyggilegast að leiða sem mest hjá sér. Það er miklu líklegra. En heldur er það slæmur vitnisburður um hið innra ástand þessarar stjórnar sem gæti verið sterk.

Alþfl. hefur ekki látið sitja við orðin tóm í gagnrýni í þessum efnum, heldur hafa þm. hans flutt till. varðandi þau. Á þessu þingi höfum við fyrstu dagana komið með tvær tillögur. Fjallar önnur um þingrannsókn, eins og stjórnarskráin beinlínis gerir ráð fyrir að deildir Alþ. geti ákveðið, til þess að kanna alla meðferð þessara mála og ganga þannig úr skugga um hvað unnt er að gera hér á þingi til að efla dómskerfið. Í annan stað hefur Alþfl. flutt till. um að sett verði í lög bann við því að ráðamenn þjóðarinnar, háir sem lágir, þiggi óeðlilegar gjafir af þeim aðilum sem þeir hafa skipti við í embætti. Það tíðkast allmikið hér á landi að slíkar gjafir séu gefnar eða t.d. að boðið sé í glæsileg ferðalög. Hér á landi hafa þetta ekki verið kallaðar mútur, eins og gert er með öðrum þjóðum, og þar ytra tíðkast lög og reglur sem takmarka þá hámarksupphæð sem verðgildi slíkra gjafa má nema. Það væri mikils virði ef slík löggjöf yrði sett hér á landi sem till. Sighvats Björgvinssonar gerir ráð fyrir. Hitt er þó enn meira virði, ef íslendingar gerðu sér almenna grein fyrir þessu vandamáli og það almenningsálit skapaðist að slík mútustarfsemi gæti í framtíðinni ekki þrifist meðal okkar.

Hæstv. forsrh. minntist í lok ræðu sinnar lauslega á nauðsyn þess að endurskoða ríkjandi stjórnkerfi í landinu svo að það geti betur mætt hinum breyttu og auknu vandamálum samtíðarinnar og fullnægt kröfum þjóðarinnar hvað lýðræði og forustu snertir. Forsrh. fylgir í þessu máli sömu stefnu og í öðrum. Hann leggur til að leitað verði ráða til að flýta framkvæmd endurbóta og einfalda stjórnkerfið.

Á meðan ríkisstj. er að leita að ráðum í þessum efnum hefur Alþfl. flutt um það allmörg frv. Það væri reynandi fyrir hæstv. forsrh. að líta í nokkur þskj. og kynna sér þau úrræði sem við höfum bent á. Ekki segi ég að hugmyndir okkar hljóti alltaf að vera þær bestu. En við höfum þó ákveðnar hugmyndir og við höfum lagt þær fram í vandlega unnum frv. Hér er stjórnarandstaðan með ákveðna stefnu, mótaða sem ítarleg þingmál, en ríkisstj. er stefnulaus að leita ráða.

Alþfl. hefur í fyrsta lagi lagt fram frv. um þá stjórnarskrárbreytingu að Alþ. verði skipað í eina deild og hin konunglega deildaskipting frá 1874 afnumin, enda eru engar forsendur fyrir henni nú á dögum. Þetta er að sjálfsögðu ekki ný hugmynd, hún hefur verið rædd í 100 ár, en við höfum þó lagt hana fram formlega hér á Alþ. nú og leggjum til að það verði gengið að því að breyta skipun Alþ. til batnaðar.

Þá höfum við boðist til þess hér á þingi að hefja viðræður við aðra flokka um kjördæmamálið, jafnari kosningarétt milli héraða og persónulegri kosningar til Alþ. en verið hafa.

Enn höfum við flutt ítarlegt frv. til l. um stjórnmálaflokka og er það alger nýjung hér á landi þótt mikið hafi verið rætt um nauðsyn slíkrar löggjafar. Lög um stjórnmálaflokka eru grundvöllur að þýðingarmiklum mannréttindum og heilbrigðara vali á frambjóðendum til Alþ. en áður hefur tíðkast. En val frambjóðenda er miklu þýðingarmeiri hluti í lýðræðiskerfi okkar en flestir hafa gert sér grein fyrir hér á landi. Einnig höfum við flutt frv. um margvíslegar breytingar á starfsháttum Alþ. Og að lokum höfum við flutt hugmyndir um svokallaða umboðsnefnd Alþingis sem ætti að taka við kvörtunum landsmanna ef þeir ná ekki rétti sínum eða eru misrétti beittir af stjórnsýslu í hinu vaxandi skrifstofubákni sem virðist fylgja nútíma stjórnun.

Góðir íslendingar. Ég vík í lokin enn að stefnuræðu hæstv. forsrh. sem hér er til umr. Helstu fréttirnar, sem hann hafði að færa okkur, voru, eins og ég hef þegar bent á, að eftir meira en tveggja ára stjórn séu Sjálfstfl. og Framsfl. nú að leita ráða um lausn á efnahagsvandræðum þjóðarinnar, og þeir skipa nýjar og nýjar nefndir til þess að leita að úrræðum við lausn á vandamálum sem þeir hafa átt að vera að glíma við á þriðja ár. Við vitum nú að hæstv. forsrh. er að kanna eða leita ráða um flest önnur vandamál sem hann minntist á. Hann biður t.d. eftir því að fá fregnir frá Efnahagsbandalaginu í Brüssel svo að hann geti kannað hvað Efnahagsbandalagið hefur að bjóða okkur í landhelgismálinu. Það virðist því ekki hvarfla að hæstv. forsrh. að kanna hvort íslendingar hafi nokkurn fiskafla til að bjóða öðrum þjóðum. Hvernig væri fyrir hann að leita ráða hjá íslenskum sjómönnum í stað þess að bíða eftir fregnum og upplýsingum frá Brüssel?

Hæstv. dómsmrh. hefur litið að segja um dómsmálin og allt það mikla svið og hann hefur lítið sem ekkert að segja um orkumál eða iðnaðarmál, og hafa þó fá mál verið meira rædd og af meiri áhuga hér á landi heldur en þau. Skyldi hann vera að kanna hvernig hann geti leitað ráða um hvað eigi að gerast í dómsmrn. — eða í iðnrn. og raforkurn. Gunnars Thoroddsens?

Að lokum ætla ég að stinga því að hæstv. forsrh. hvort ekki sé kominn tími til að leita ráða hjá þjóðinni sjálfri með nýjum kosningum? Hvernig væri að kanna það, hvort íslendingum finnst ekki kominn tími til að stokka spilin í von um nýja og betri ríkisstj. en við höfum haft og höfum?

Ég þakka þeim sem hlýddu. — Góða nótt.