31.01.1977
Efri deild: 39. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 1731 í B-deild Alþingistíðinda. (1376)
144. mál, áhrif olíuverðhækkana á hitunarkostnað íbúða
Dómsmrh. (Ólafur Jóhannesson):
Herra forseti. Ég hef síður en svo við það að athuga að hv. n. taki ábendingu hv. þm. Jóns Helgasonar til athugunar. En sá böggull fylgir náttúrlega skammrifi, að þá er hætt við að það verði minna sem kemur til úthlutunar hjá öðrum einstaklingum. Ég vil mælast til þess að n., þegar hún athugar þetta, kalli á sinn fund Yngva Ólafsson í viðskrn., sem hefur með þessi mál að gera og er þeim kunnugastur, og fari þá yfir þessar tölur og athugi hvort þær eru þess eðlis að þær leyfi eitthvert svigrúm í þessu efni.
Út af því sem hv. þm. Helgi Seljan sagði, þá er ég ekki í aðstöðu til þess hér að segja neitt til um hvernig þessir útreikningar, sem hann var með, eru fundnir eða hvort þeir standast eða ekki. Ég læt það liggja á milli hluta því að ég get ekkert um það sagt. En um hitt auðvitað þarf ekki að deila, að þessi styrkur getur ekki jafnað nema að litlu leyti þann mismun sem er í þessu efni á milli þeirra, sem búa við hitaveitur, og hinna, sem verða að nota hina dýru olíu. Því miður er nú hætta á að olían fari heldur hækkandi en lækkandi, þannig að þessi mismunur geti þá frekar aukist heldur en hitt. Þess vegna er það eitt mikilvægasta verkefnið, sem við er að fást, að reyna að koma hitaveitum sem víðast. Ég hugsa að hitaveitur séu langbesta fjárfestingin sem við getum lagt í núna, því að olíuverðið er orðið svo geysilegt að það er í raun og veru það sem, ef svo mætti segja, allt ætlar um koll að keyra, t. d. í gjaldeyrismálum, af því að olían er svo langsamlega þyngst á metum þar, olía og bensín. Það hefur því mikið að segja þrátt fyrir allt, þó að olíu þurfi auðvitað að nota til margvíslegra annarra hluta og verði ekki komist hjá því að nota hana til margra hluta, hver staðurinn, þéttbýlisstaðurinn t. d., sem kemst í samband og fær hitaveitu. Og þó að þetta geti verið og sé laukrétt hjá honum, að eins og sakir standa getur þetta komið misjafnt út eftir landshlutum, hverjir njóta þess í bili að fá þessa fyrirgreiðslu varðandi hitaveituleit og borun, þá er hinu ekki að neita, að tæknin er orðin miklu meiri en var og við jarðhitaleit kemur í ljós að jarðhiti er miklu víðar en menn létu sig dreyma um áður. Þess vegna held ég að þeim fjármunum, sem fara til jarðhitaleitar og borunar, sé ákaflega vel varið. En ég vil ekki á neinn hátt draga úr því að hér er um aðstöðumun að ræða. Það er ástæðulaust að vera að draga fjöður yfir það.
Um úthlutunarreglurnar má auðvitað lengi deila, hvort á að deila þessu út eins og gert hefur verið, að miða við fjölskyldustærð. Ég hygg samt að það sé almennt séð réttlátari niðurstaða heldur en miða við eitthvað annað. Að vísu getur þetta komið hart niður og kemur hart niður á t. d. fullorðnu fólki, hjónum, sem kannske eru orðin ein eftir í stóru húsi. Það er augljóst mál. En það er hv. Alþingis að athuga það ef það vill breyta þessum reglum. Eins og er hefur ramminn verið sniðinn. Eins og hv. þm. sagði er ekki um annað að ræða nú heldur en að lögfesta úthlutun á þessu fé innan þessa ramma.