01.02.1977
Sameinað þing: 43. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 1746 í B-deild Alþingistíðinda. (1391)
82. mál, viðgerðir fiskiskipa
Iðnrh. (Gunnar Thoroddsen):
Herra forseti. Í fsp. er óskað upplýsinga um hve miklum fjárhæðum hafi verið varið árið 1975 til viðhalds, viðgerða og breytinga erlendis á íslenskum fiskiskipum, íslenskum farskipum og íslenskum varðskipum.
Fyrir tilmæli iðnrh. hefur á undanförnum mánuðum verið gerð athugun á þörfum íslenska skipaflotans fyrir viðgerðaþjónustu og á getu innlendra viðgerðarstöðva til að anna þeim verkefnum, en þau munu fyrirsjáanlega aukast á næstu árum. Að þessu verkefni vinna eftirtaldir aðilar: Iðnþróunarstofnun Íslands, Landssamband iðnaðarmanna, Rannsóknastofnun iðnaðarins og Samband málm- og skipasmiðja. Þeirra upplýsinga, sem hér fara á eftir, hefur fyrst og fremst verið aflað af hálfu framangreindra aðila og hafa verið hafðar til hliðsjónar upplýsingar frá Seðlabanka Íslands um gjaldeyrisyfirfærslur, lánveitingar sjóða vegna viðgerða, breytinga og endurbóta á skipum, enn fremur upplýsingar frá tryggingafélögum, Landhelgisgæslu og fleiri aðilum.
Áætlað er að heildarkostnaður við viðgerðir, viðhald og breytingar skipaflota íslendinga hafi numið á árinu 1975 samtals 6370 millj. kr. Þá er miðað við flotann í heild, að undanskildum tréskipum undir 20 brúttólestum og stálskipum undir 45 brúttólestum.
Þegar sundurliðað er annars vegar í fiskiskip og hins vegar farskip og varðskip kemur í ljós að kostnaður vegna viðgerða á fiskiskipum mun hafa verið 4710 milljónir kr. Hann skiptist þannig að 3970 milljónir voru innanlandsviðgerðir, en 740 millj. erlendis.
Kostnaður vegna farskipa og varðskipa nam samtals 1660 millj. kr., þar af 630 millj. kr. innanlands, en 1030 millj. erlendis. Eitt varðskip fór utan til viðgerða og breytinga á árinu 1975, varðskipið Óðinn. Um var að ræða svokallaða hólfaskiptingu sem gerð var vegna öryggissjónarmiða, en framkvæmdar voru um leið ýmsar minni háttar lagfæringar. Verkið var unnið í skipasmiðastöð í Álaborg í Danmörku og nam heildarkostnaður um 135 millj. kr. Er sú upphæð innifalin í þeirri fjárhæð sem áður var getið um kostnað vegna varðskipa og farskipa, samtals 1660 millj. kr.
Sé þetta dregið saman kemur fram, eins og áður getur, að heildarkostnaður við viðgerðir, viðhald og breytingar á skipaflotanum á árinu 1975 var 6370 millj., þar af innanlands 4600 millj. og erlendis 1770 millj.
Varðandi 2. lið fsp. verður að sjálfsögðu að telja eðlilegt að reynt verði með öllum tiltækum ráðum að framkvæma sem allra mest af viðgerðum, viðhaldi og breytingum íslenska skipaflotans innanlands. Ekki er talið líklegt að í bráð verði unnt að flytja allan þennan iðnað inn í landið, m. a. vegna þess að verulegur hluti viðgerða erlendis er vegna farskipa. Hvað viðhald, viðgerðir og breytingar á fiskiskipaflotanum snertir verður auðvitað að þessu að stefna sem og að hinu, að það sem unnt er af viðgerðum farskipa verði einnig unnið innanlands.
Í skipaviðgerðum ríkir mjög hörð samkeppni milli landa þannig að tiltölulega lítill mismunur á kostnaði og framkvæmdahraða getur ráðið úrslitum um hvort verkefni eru framkvæmd erlendis. Í því sambandi eru miklar vonir bundnar við það verkefni sem unnið er að og ég gat um í upphafi máls míns.
Þau atriði, sem ég tel mestu máli skipta til að stuðla að því og vinna að því að sem allra mest af viðhaldi, viðgerðum og breytingum skipaflotans fari fram innanlands, eru einkum þessi:
1. Að tryggð sé jöfn fjárhagsleg fyrirgreiðsla við framkvæmd verkefna hér innanlands og unnt er að fá hjá hinum erlendu keppinautum. Í þessu efni vantar mikið á að það sé í lagi, og er unnið að því að reyna að kippa því í lag. Þetta er mjög mikilvægt atriði, að þeir, sem þurfa á skipaviðgerðum að halda, geti fengið fjárhagslega fyrirgreiðslu að því er greiðslufrest, lán og annað slíkt snertir ef verkið er unnið innanlands ekki síður en erlendis.
2. Þá er unnið að gerð áætlana um þörf fyrir skipaviðgerðir næstu árin og getu innlendra viðgerðarstöðva til að sinna þeim verkefnum.
3. Markvísar aðgerðir þarf til að bæta aðstöðu íslensku skipasmíðastöðvanna til þess að þær geti sinnt aukinni viðgerðaþörf.
4. Aukið samstarf þarf milli samtaka viðgerðarstöðva og útgerðar í þeim tilgangi m. a. að reyna að tryggja hagkvæma nýtingu stöðvanna með því að dreifa reglubundnu viðhaldi sem jafnast yfir árið.
5. Beinar aðgerðir þarf hjá viðgerðarstöðvunum sjálfum til að auka framleiðni þeirra og afköst, en tækniaðstoð á þessu sviði er í þann veginn að hefjast með tilstuðlan opinberra aðila.