01.02.1977
Sameinað þing: 43. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 1753 í B-deild Alþingistíðinda. (1399)
111. mál, kennsla sjúkraliða
Fyrirspyrjandi (Ingi Tryggvason):
Herra forseti. Ég vil þakka hæstv. ráðh. fyrir þau svör sem hann hefur gefið, þó mér finnist raunar að það sé ekki að fullu skýrt hvers vegna þetta nám var lagt niður á Akureyri í haust eða ekki gert meira til þess að sjúkraliðaskólinn gæti starfað þar áfram án hléa eins og hann hefur gert undanfarin 11 ár. En samkvæmt þeim heimildum, sem ég hef, kom aldrei jákvætt svar og raunar ekki neikvætt heldur við erindi formanns stjórnar sjúkrahússins þar sem hann gerði grein fyrir því á hvern hátt þeir hefðu hugsað sér að skipa sjúkraliðanáminu á þessum vetri ef því hefði verið haldið áfram.
En mér þykir gott að heyra að það er unnið að því að þetta nám geti hafist á ný á Akureyri, og ég tel að það sé mjög nauðsynlegt. Það er staðreynd, sem ekki verður fram hjá gengið, að það er eitt af helstu sjálfstæðismálum dreifbýlisins, ef svo mætti að orði kveða, að það geti í auknum mæli menntað það starfsfólk sem þar þarf og ætlar sér að vinna. Það er reynsla þeirra, sem að slíkum málum hafa starfað sem þessu, að þeir, sem nema eða ljúka námi sínu á þeim stöðum þar sem þeir eru uppaldir, verða fastari við fyrri heimkynni heldur en þeir sem þurfa að sækja námið langt að. Og af því umfangi sem augsjáanlega er orðið á Sjúkraliðaskólanum, sem hefur eftir áramótin mikið á annað hundrað nemenda, er greinilegt að þarna er um stóra starfsgrein að ræða. Ég tel mjög mikilvægt að ekki verði gleymt þeirri forustu, sem sjúkrahúsið á Akureyri vissulega hafði í þessum málum, og menn sameinist um að endurnýja þessa kennslu á Akureyri í samvinnu við þá skóla sem fyrir eru, og þar á ég fyrst og fremst við Gagnfræðaskólann og svo Fjórðungssjúkrahúsið á staðnum.