01.02.1977
Sameinað þing: 44. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 1771 í B-deild Alþingistíðinda. (1407)
69. mál, áhrif Framkvæmdastofnunar ríkisins og Byggðasjóðs á athugun á atvinnu- og byggðaþróun í landinu
Steingrímur Hermannsson:
Herra forseti. Aðeins örfáar aths. Ég satt að segja veit ekki eða skildi ekki hvað hv. þm., sem hér töluðu á undan mér, voru að rífast um, mér sýnist það helst hljóta að vera keisarans skegg.
Ég hef út af fyrir sig ekkert á móti þessari till. hv. þm. Alberts Guðmundssonar. Það er rétt sem hann segir, að Byggðasjóður er öflugur lánveitandi og það er nauðsynlegt að gera sér grein fyrir því hvort hann sinnir sínu mikilvæga verkefni. Verkefnið er hins vegar skýrt skilgreint í lögum um Framkvæmdastofnun, í 28. gr. þeirra laga. Þar segir:
„Hlutverk Byggðasjóðs er að stuðla að jafnvægi í byggð landsins með því að veita fjárhagslegan stuðning til framkvæmda og eflingar atvinnulífs með hliðsjón af landshlutaáætlunum, sbr. 8. gr., og til að bæta aðstöðu til búsetu í einstökum byggðarlögum og koma í veg fyrir að lífvænlegar byggðir fari í eyði.“
Þarna er vilji löggjafans tvímælalaus. Þetta er í lögunum frá 1971 og endurtekið í lögunum, sem við samþykktum í fyrra, eða breytingum, sem við gerðum á þessum lögum. Spurningin er í raun og veru eingöngu sú: Hefur Byggðasjóði tekist þetta. Það þarf að skoða, það þarf að athuga mjög vandlega. Og ég gæti fyrir mitt leyti fylgt þessari till. eins langt og hún nær. Hún fjallar fyrst og fremst um Byggðasjóð, það er tekið fram, „sérstaklega Byggðasjóðs“, segir í tillgr., svo að ég sé satt að segja ekki um hvað er verið að deila.
Hv. 4. þm. Austurl. hefur réttilega bent á að margt hefur vel tekist. Tekist hefur að snúa við óeðlilegri byggðaþróun um áratugi, — ég segi: óeðlilegri, og þá á ég við fyrir landsbyggðina alla og Reykjavík þar með talin. Ég tel ekki eðlilegt að hingað á þennan litla hluta safnist helmingur þjóðarinnar, eins og orðið er. Við þurfum ekki annað en skoða fólksfjölgunartölur undanfarna áratugi til að sjá, hvernig þetta hefur þróast og valdið gífurlegum erfiðleikum, ekki aðeins þeim landshlutum þar sem fækkað hefur, heldur einnig Reykjavíkurborg sem hefur orðið að sjá þessu fólki fyrir alls konar nauðsynjum. Það var með þetta í huga að ráðist var í ýmiss konar ráðstafanir til að sporna gegn þessari þróun, nefna má sjóði eins og Atvinnujöfnunarsjóð og margt fleira, og leiddi svo að lokum til þess að Byggðasjóður var settur á fót.
Þetta er ekkert einsdæmi hjá okkur íslendingum. Þetta hefur verið gert víða. Norðmenn hafa t. d. í mjög mörg ár haft svipaðan sjóð og hafa mjög skipulega unnið að því að viðhalda og efla byggð þar sem erfiðara hefur verið, eins og í Norður-Noregi. Þeir veita þar sérstaka fyrirgreiðslu á fjölmörgum sviðum svo að eitthvert dæmi sé nefnt.
Byggðasjóður hefur reynt að sinna þessu hlutverki sínu með því að veita lán til atvinnuuppbyggingar. Byggðasjóður hefur lagt áherslu á það hingað til og ég er sannfærður um að þar hefur vel til tekist. T. d. er það staðreynd að tekjur landsmanna hafa jafnast töluvert. Þær eru að vísu ekki enn nægilega jafnar og vissir byggðahlutar eru þar neðarlega, en þó hefur óumdeilanlega mjög batnað frá því ástandi sem áður var. Tölur um fólksfjölgun sýna þetta einnig. Á síðustu árum hefur fólksfjölgun orðið í öllum landshlutum, þó mismunandi mikil, og sumir landshlutar hafa ekki náð fólksfjölgunarmeðaltalinu. En þar hefur þó einnig mjög skánað frá því ástandi sem áður var. Nú er vitanlega erfitt að fullyrða að þetta sé allt Byggðasjóði að þakka. Erfitt er að fullyrða það. Aðrir hlutir geta komið til. En ég efast ekki um að Byggðasjóður og sú viðleitni, sem þar hefur verið sýnd til þess að efla atvinnulíf, tryggja atvinnu og bæta tekjur á landsbyggðinni, á verulegan þátt í þessari mikilvægu og heillavænlegu þróun. Og mér skilst að flm. þessarar till. sé út af fyrir sig ekkert að mæla gegn þessu.
Svo finnst mér hins vegar það önnur spurning, hvort ekki þurfi einmitt að skoða starfsemi Byggðasjóðs út frá því hvort þetta svið, sem hann hefur lagt svo mikla áherslu á, atvinnuuppbygging, sé það nauðsynlegasta enn. Ég held að skórinn kreppi að á öðrum sviðum víða, t. d. á ýmsum félagslegum sviðum, þar sem þjónusta er ekki sú sem nútíma landsmaður gerir kröfu til: læknisþjónusta, heilbrigðisþjónusta, menntamálin o. fl. Ég held einnig að það standi í vegi fyrir enn betri þróun á þessu sviði að viða eru íbúðarhús af skornum skammti, jafnvel þar sem fólk vill setjast að, þar sem atvinna er næg og tekjur miklar. Ég held að það væri athugandi hvort Byggðasjóður á ekki að lána til örvunar íbúðarhúsabygginga. Þannig held ég að athugun á verksviði Byggðasjóðs og starfsháttum sé mjög eðlileg með tilliti einmitt til þess hvað mikið hefur áunnist á undanförnum árum. Ég hef út af fyrir sig ekkert á móti því að ríkisstj. annist slíka úttekt. Hins vegar held ég að stjórn Framkvæmdastofnunar ætti að gera það einnig. Það er sjálfsagt. Og ég vil vekja athygli á því, að í skýrslum Framkvæmdastofnunarinnar hafa verið einmitt greinar um byggðaþróun. Þær hafa verið skrifaðar af forstöðumanni einnar deildarinnar, áætlanadeildar, og þar er að finna mjög aðgengilegar og miklar upplýsingar einmitt um þessa heillavænlegu þróun sem ég hef nú nefnt. Þar er hins vegar að vísu ekki beinlínis gerð tilraun til þess að meta hvað af þessu megi rekja til útiána Byggðasjóðs, en eins og ég hef áður sagt, held ég að margt megi örugglega rekja þangað.
Ég vil taka undir það, sem kom fram hjá hv. flm., og undirstrika það, að vitanlega getur enginn haft á móti eðlilegri þróun landsbyggðarinnar og einstakra byggðarlaga. Mér þykir vænt um að heyra að hann leggur áherslu á að ekkert slíkt er í hans huga og hann er því mótfallinn að lífvænlegar byggðir fari í eyði, svo að ég noti það orðalag sem er í lögum um Byggðasjóð. En staðreyndin er hins vegar sú, að oft hefur munað litlu að svo færi, mjög litlu, og nokkur dæmi held ég að hafi verið nefnd í ítarlegri og góðri ræðu hv. 4. þm. Austurl. Ég þekki líka fjölmörg slík dæmi úr mínu kjördæmi. Sums staðar hefur þetta raunar ekki tekist. Þar hafa hreppar farið í eyði því að þar hefur verið of seint gripið inn í. Við getum hins vegar nefnt sveitarfélag eins og Árneshrepp þar sem sannarlega munaði litlu þegar 50 manns fluttu þaðan á brott fyrir örfáum árum, en nú hefur tekist að snúa þeirri þróun víð. Þar hefur Byggðasjóður að nokkru hlaupið undir bagga. Hann hefur aðstoðað með mjög mikilvægri aðstoð við uppbyggingu útihúsa á því svæði. Og fleira hefur komið til. Þar hafa margir lagst á eitt. Ég held að það sé alveg tvímælalaust að það er þjóðhagslega mjög mikilvægt að þetta tókst. Þarna eru 200 manns, og það kostar mikið að flytja þetta fólk búferlum auk þess sem þarna eru landsgæði sem þarf að nýta og eru mikilvæg fyrir okkur. Þarna tókst því vel. Víða annars staðar hefur tekist vel, eins og hefur komið fram, og mér þykir vænt um að heyra frá hv. flm., eins og ég sagði áðan, að hann er þessu meðmæltur.
En hvernig á þá að gera þetta? Á ekki að gera þetta einmitt eins og gert hefur verið, með því að veita til slíks sérstakt fjármagn? Ég held að hv. flm. sé mér sammála um að fjármagnið er mikilvægt í þessu sambandi sem öðrum. Hins vegar hafa heyrst þær raddir að Byggðasjóður eigi að lána jafnt til allra landshluta. Þetta heyrir maður mjög oft í þessum sölum. Ég skil þetta ekki satt að segja. Þá er þetta ekki lengur Byggðasjóður. Þá hefur hann ekki lengur það hlutverk að reyna að halda lífvænlegum byggðum frá því að fara í eyði. Ómögulegt er að samræma þessi tvö sjónarmið. Byggðasjóður er settur upp sem sérstakur sjóður til þess að koma í veg fyrir, að lífvænlegar byggðir fari í eyði, og stuðla að jafnvægi í byggð landsins, eins og ég hef lesið úr lögunum, og meðan hann hefur það hlutverk hlýtur hann að mismuna byggðarlögum eftir því hvernig ástandið er að þessu leyti, og það er mikill mismunur í okkar landi. Það er því um tómt mál að tala að Byggðasjóður eigi að lána jafnt til allra landshluta. E. t. v. fer einhvern tíma svo að Reykjavík þurfi á sérstökum lánum að halda til þess að halda í horfinu við landsbyggðina, en ég held að svo sé alls ekki enn, sem betur fer. Hins vegar get ég tekið undir það, sem stundum hefur komið fram, að sumir staðir t. d. á Suðurnesjum eru þannig í stakk búnir að þeir þurfa aðstoð, t. d. Hafnirnar. Og ég held að Byggðasjóður ætti að vera opinn fyrir slíku.
Á þetta vil ég leggja sérstaka áherslu. Byggðasjóður hefur þetta hlutverk: að stuðla að jafnvægi í byggð landsins. Lögin eru tvímælalaus í þessu sambandi. Hann hlýtur því að mismuna byggðarlögum eftir því hvernig ástandið er að þessu leyti. En ég tek undir það, að við þurfum að skoða vel hvernig hann sinnir sem best þessu hlutverki. Ekki er víst að það sé með því að lána áfram nánast eingöngu til atvinnuuppbyggingar og sveitarfélaga. Önnur svið geta orðið að koma þar inn, og vel getur verið að við þurfum að mismuna eitthvað meira byggðarlögum um landið því að ástandið er að þessu leyti mjög breytilegt. En Byggðasjóður sinnir ákaflega mikilvægu hlutverki, ekki aðeins fyrir landsbyggðina, heldur fyrir landið allt.