01.02.1977
Sameinað þing: 44. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 1792 í B-deild Alþingistíðinda. (1417)

83. mál, dreifikerfi sjónvarps

Helgi F. Seljan:

Herra forseti. Það eru aðeins örfá orð. Ég get ekki látið hjá líða að lýsa yfir stuðningi við þessa till., ekki síst þegar haft er í huga að á þinginu í fyrra var flutt frv. til breyt. á útvarpslögum sem fór í nokkuð aðra átt og ég andmælti þá í Ed. Það má segja að þau séu kannske að nokkru leyti í sömu áttina, þetta frv. og þessi till., en sú leið, sem till. gerir ráð fyrir, er mér þó miklu geðfelldari. Hún er alveg sérstaklega geðfelldari fyrir þá sök að þar var reiknað með því að fólk, sem meira og minna missir úr sjónvarpsdagskrá nú, það yrði bætt ofan á það sérstöku gjaldi til þess að fá viðunandi sjónvarpsaðstöðu. En hér er reiknað með því að af afnotagjaldinu verði tekin ákveðin prósenta, eins og ég vék að í ræðu í Ed. í fyrra um þetta mál. Þá einmitt sagði ég orðrétt, með leyfi forseta: „Hví ekki að fara þá leið ásamt með hinu að ákvarða vissa prósentu af heildartekjum Ríkisútvarpsins núverandi til þessara verkefna, og sú prósenta mætti gjarnan vera nokkuð há? — þ. e. a. s. í staðinn fyrir það sem var í 2. gr. þessa frv., að leggja viðbótargjald ofan á sjónvarpsgjaldið. Ég sagði þá um leið að ég efaði ekki að þarna lægi góð hugsjón að baki og í raun og veru sama hugmynd og ég hefði um þetta mál, en ég vildi aðeins fara aðra leið. Ég held að hv. frsm. hafi áðan bent á ýmsar þær sparnaðarleiðir sem okkur hafa komið í hug varðandi þessa ágætu stofnun.

Ég hef allt gott að segja um nál. frá mþn., sem ég hef lesið ítarlega, um það hvernig eigi að fara að því að fjármagna þetta mikla verkefni og þá um leið ýmislegt til viðbótar eins og að koma sjónvarpi út á fiskimiðin og því um líkt. Þar er um margt um góðar till. að ræða. En ég held að það liggi fyrir nokkuð góð úttekt á þessari stofnun, og ég held að það hafi aldrei verið gert neitt með hana. Ég held að sú úttekt hafi einmitt verið nokkuð dýr, hún hafi bæst þarna ofan á og kostað nokkrar millj., að mig minnir. Það munu vera nokkur ár síðan hún var framkvæmd. En ég held að það hafi aldrei verið neitt gert í því að hreyfa við þeim augljósu annmörkum sem þessi úttekt leiddi í ljós.

Ég hef áður fullyrt að margt mætti betur fara í rekstri sjónvarpsins, og það var mér mikið gleðiefni t. d. að orð mín hér höfðu orðið til þess að forráðamenn Sjónvarpsins höfðu hætt að greiða þm. aukaþóknun fyrir að mæta í viðtalsþáttum í sjónvarpi vegna þess að það þætti svo sjálfsagt. Þetta gerðist eftir að ég hafði deilt á það hér á Alþ. að ég hefði fengið greiðslu fyrir ákveðnar gamanvísur sem hefðu verið svo dýrt kveðnar að áliti þeirra sjónvarpsmanna að greiðsla fyrir þær væri svimhá miðað við það sem ég á að venjast varðandi minn kveðskap. Það gladdi mig sem sagt að þarna sá Sjónvarpið ástæðu til þess að spara og hætta að greiða þessum voðalegu hálaunamönnum sem þm. eru, fyrir að koma fram í sjónvarpi, ég hygg næstum einum allra manna. Þó munu forstöðumenn einhverra stofnana einnig vera í þeim flokki.

Ég held að það væri þá um leið ástæða til þess að framkvæma eitthvað af því sem þessi úttekt leiddi í ljós. Þá fengist örugglega töluvert fjármagn í dreifikerfið sem hefur verið algerlega vanrækt að undanförnu, þ. e. a. s. í mínum landsfjórðungi — algerlega vanrækt. Það eru að vísu núna loforð uppi um að á því verði gerðar endurbætur á þessu ári, og við skulum vona að við það verði staðið. En einnig hefur orðið alger stöðvun tvö eða þrjú síðustu ár á því að þeir, sem ekki höfðu sjónvarp fyrir, fengju það, og vafalaust verður eitthvað að því unnið líka með þessari ákvörðun sem tekin var nú á dögunum.

Auðvitað er í miklu fleiri stofnunum full ástæða til að kanna möguleika á sparnaði. Fyrir mér eru ríkisstofnanir ekkert heilagar í þessum efnum, síður en svo, enda eru þær sumar byggðar upp og þeim stjórnað af beinum óvinum alls ríkisrekstrar. Þeir sjá sjálfsagt ekki mikla ástæðu til þess víða að vera að haga þeim rekstri á hagkvæmasta veg.

En ég vildi sem sagt nota þetta tækifæri til þess að styðja þessa till. Hún er nákvæmlega að mínu skapi og miklu meir en það frv. sem kom til umr. í Ed. í fyrra. Ég hét því þá að flytja brtt. einmitt í þá átt sem þessi till. fjallar um. Annars held ég að það væri full ástæða til þess að rannsaka sitt hvað í starfsemi þessarar stofnunar og fjölmargra annarra, því að hún er örugglega síst verri en margar aðrar og mætti sjálfsagt finna hjá ýmsum öðrum enn hrikalegri upphæðir í beinni sóun og eyðslu.