02.02.1977
Neðri deild: 44. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 1808 í B-deild Alþingistíðinda. (1433)

149. mál, umferðarlög

Sighvatur Björgvinsson:

Herra forseti. Ég tel að þær deilur, sem átt hafa sér stað á milli hv. 1. flm. og hv. 5. þm. Vestf., hafi raunar ekki verið um meginatriði þessa frv., heldur um atriði sem að vísu er efnisatriði í því, en alls ekki neitt meginatriði. Ég tel að meginatriðið í frv. felist í 1. gr. þess, eða a. m. k. vil ég skoða það sem svo. Því langar mig til þess að koma á framfæri örfáum ábendingum, ekki í því skyni að mótmæla því sem kemur fram í 1. gr., því ég get verið sammála um að það sé rétt sem þar er lagt til, að skylda til notkunar öryggisbelta. Miklu fremur langar mig til þess að varpa þeirri hugmynd fram, ef búið er að skylda til notkunar slíkra nýrra öryggistækja eins og þar er um rætt, þ. e. a. s. öryggisbelta og öryggishjálma og sérstaklega í sambandi við öryggisbeltin, hvort ekki sé þá rétt og eðlilegt að Bifreiðaeftirlit ríkisins athugi og yfirfari þennan búnað eins og annan öryggisútbúnað bifreiðar við reglulega ársskoðun, og ekki aðeins það, heldur enn fremur að settar séu reglur af einhverjum öryggisaðila, annaðhvort Bifreiðaeftirlitinu, Umferðarráði eða einhverjum slíkum aðila, um t. d. bilbelti, hver styrkleiki þeirra eigi að vera, hvaða gerðir séu viðurkenndar, hvaða tími megi mestur líða milli þess t. d. að skipt er um öryggisbelti í bifreiðum. Það hefur komið fyrir, eins og menn vita, að þegar beltin eru orðin nokkurra ára gömul, þá hafa þau misst mjög styrkleika og hafa orðið slys og mjög alvarleg slys þó að menn hafi setið í beltum. Beltin hafa brostið eftir nokkur ár einfaldlega vegna þess að þau hafa fúnað eða legið í bleytu eða eitthvað slíkt, þannig að þau hafa ekki haldið sínum slitkrafti. Og atriði, sem þyrfti að athuga, er t. d. hvort ekki bæri að setja einhverjar reglur um þetta og hvort sú er ekki hugmynd flm.

Fyrst verið er að tala um þessi mál, öryggisbelti og öryggishjálma og annan slíkan öryggisútbúnað, þá vil ég skjóta því að flm. þessa frv. og síðari flm., sem er formaður þeirrar n. sem væntanlega fær þetta mál til afgreiðslu, hvort það væri þá ekki líka eðlilegt að æskja þess að t. d. Bifreiðaeftirlitið eða Umferðarráð eða annar slíkur aðill gerði úttekt á þeim öryggistækjum í bifreiðar og vélhjól, sem ern til sölu í t. d. varahlutabúðum og bifreiðaverslunum hér á Íslandi, og gæfi út reglur um gerð þeirra og öryggisbúnað, t. d. eins og barnasæti í bifreið, svo að ég nefni eitt dæmi. Sum af þeim sætum, sem flutt eru hingað og seld í búðum, eru ekki öryggistæki, heldur raunverulega stórháskaleg og miklu líklegra að þau verði barni, sem í þeim situr, að tjóni heldur en til verndar ef eitthvað kemur fyrir. Ég vildi gjarnan koma því á framfæri við flm. þessa frv. að þetta atriði yrði einnig tekið til sérstakrar athugunar, fyrst þá breytingu á að gera á umferðarlögum í öryggismálefnum sem flm. leggja hér til.