25.10.1976
Sameinað þing: 8. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 194 í B-deild Alþingistíðinda. (144)
Stefnuræða forsætisráðherra og umræða um hana
Gylfi Þ. Gíslason:
Herra forseti. Góðir áheyrendur. Mig langar til þess að hefja þessi orð mín með því að spyrja ykkur, sem heima sitjið og hlustið, nokkurra einfaldra spurninga og biðja ykkur um að svara þeim, ekki mér, heldur sjálfum ykkur í huga ykkar.
Finnst ykkur það bera vott um góða stjórn á efnahagsmálum að verðbólga sé hér meira en tvöfalt meiri en í nokkru öðru nálægu landi? Finnst ykkur það vera heilbrigt að þjóðin hafi safnað svo miklum erlendum skuldum að fimmta hver króna af útflutningstekjum skuli þurfa að ganga til greiðslu afborgana og vaxta af erlendum skuldum? Finnst ykkur það heilbrigt að næstum helmingur allra fyrirtækja í landinu skuli alls engan tekjuskatt greiða til ríkisins? Eða finnst ykkur réttlátt að launþegar greiði um það bil fjórum sinnum hærri tekjuskatt til ríkisins en allir þeir sem stunda atvinnurekstur? Og teljið þið það vera með felldu að kaupgjald sé hér augljóslega orðið lægra en í helstu viðskiptalöndum okkar, þótt þjóðartekjur okkar séu svipaðar á mann? Eða finnst ykkur það réttlátt að kosningarréttur manna sé svo ójafn að atkvæði kjósenda í sumum kjördæmum hafi næstum tvöfalt gildi á við atkvæðisrétt kjósenda annars staðar á landinu? Finnst ykkur þið hafa eðlileg áhrif á það hvaða menn eða konur fari með umboð ykkar hér á Alþ.? Og hver er skoðun ykkar á því að menn, sem fyrir fjölmörgum árum, kannske áratug, voru ákærðir fyrir fjársvik, skuli í allan þennan tíma hafa haldið áfram viðskiptum eins og ekkert hafi í skorist af því að dómstólum hefur ekki unnist tími til þess að rannsaka mál þeirra? Er það í samræmi við réttlætiskennd ykkar að margra ára gömul milljónatugaskuld við ríkissjóð vegna söluskattssvika sé enn óinnheimt og ríkissjóður fái að lokum aðeins hluta af kröfu sinni greiddan vegna óðaverðbólgunnar? Særir það ekki siðferðisvitund ykkar að fyrirtæki, sem þannig hafa hagað sér og auk þess hafa verið orðuð við áfengissmygl, skuli áfram vera meðal helstu skemmtistaða ungs fólks hér í höfuðborginni og halda áfram að selja því og öðrum áfengi?
Ég er í litlum vafa um hvernig heilbrigt hugsandi íslendingur svarar þessum spurningum með sjálfum sér. Hann finnur hversu fjarri því fer að ástand mála hér á landi sé eins og það á að vera. Hann finnur hversu brýna nauðsyn ber til umbóta, og í raun og veru ekki aðeins til umbóta, heldur umbyltingar. Mig langar til þess að nefna ykkur dæmi af þrem sviðum, sumpart um það að nauðsyn sé róttækrar stefnubreytingar og sumpart um víti til varnaðar.
Ég bað ykkur áðan að hugleiða hvort ykkur fyndist ríkja réttlæti í skattamálum. Þeim málum er nú þannig skipað að tekjuskattur til ríkisins er fyrst og fremst skattur á launafólk. Það greiðir fjórum sinnum meira í tekjuskatt til ríkisins en öll atvinnufyrirtæki í landinu, bæði félög og einstaklingar. Fjölmargir atvinnurekendur, sem allir vita þó að lifa góðu lífi og meira en það, greiða lítinn eða jafnvel engan tekjuskatt. Þessu viljum við alþfl: menn breyta. Og við viljum ekki eina kákbreytinguna enn á tekjuskattslögunum. Við viljum hreinlega afnema tekjuskatt til ríkisins af öllum launum nema þeim hæstu, en halda áfram að skattleggja eyðsluna með söluskatti eða virðisaukaskatti, jafnframt því sem atvinnufyrirtæki yrðu látin greiða mun meira en þau gera nú og tekjuskattur af söluhagnaði yrði aukinn.
Annað dæmi skal ég nefna. Á næsta ári er gert ráð fyrir því að ríkissjóður, þ.e.a.s. skattgreiðendur í landinu, greiði 1800 millj. kr. í útflutningsbætur á útfluttar landbúnaðarvörur. Íslendingum er m.ö.o. ætlað að greiða útlendingum 1800 millj. kr. fyrir að kaupa og borða íslenskt kjöt, íslenska osta og aðrar landbúnaðarvörur. Þetta svarar til 360 þús. kr. á hvert bændabýli á landinu. Bændur eru eflaust ekki ofsælir af tekjum sínum að meðtöldum þessum bótum, enda ekki við þá sjálfa að sakast í þessum efnum. En það er augljós halli á þessum rekstri og hann mikill. Ástæðan er sú, að stefnan í málefnum landbúnaðarins hefur verið röng í áratugi. Það eru orðin mjög mörg ár síðan ég hóf að benda á það, að breyta yrði landbúnaðarstefnunni og miða hana markvisst við þarfir innanlandsmarkaðar. Ég hef auðvitað alltaf gert mér ljóst að síikt verður ekki gert í einu vetfangi, það tekur tíma. En í stað þess að hefja stefnubreytingu í rétta átt hefur verið haldið áfram lengra í ranga átt. Það sést m.a. á því, að offramleiðslan og þar með útflutningsbæturnar hafa aldrei verið hærri en þær verða á næsta ári. Hafa menn hugleitt að þessar útflutningsbætur svara til 1.3 söluskattsstiga? Ef við getum losnað við útflutningsbæturnar væri hægt að lækka söluskattinn um 1.3 stig. Þær nema svipaðri upphæð og allir atvinnurekendur á Íslandi greiða í tekjuskatt til ríkisins. Er hægt að nefna öllu gleggra dæmi um ranga stefnu í efnahagsmálum þjóðar?
Og þá ætla ég að nefna víti til varnaðar. Það eru framkvæmdir Kröflunefndar. Ég á auðvitað ekki við neitt sem tengt yrði hugsanlegum náttúruhamförum. Tjón af slíku yrði að sjálfsögðu byrði þjóðarinnar allrar sem enginn mannlegur máttur gæti komið í veg fyrir. En framkvæmdir Kröflunefndar eru eitthvert viðsjárverðasta fjármálaævintýri síðari áratuga. Aldrei fyrr í sögu íslenskra virkjana hefur verið lagt í framkvæmdir sem í upphafi var gert ráð fyrir að kosta mundu 6–7 milljarða kr., án þess að nokkur rekstraráætlun væri gerð um það orkuver sem ákveðið væri að byggja. Þrautreyndur maður í íslensku viðskiptalífi, nákunnugur þessum málum, hefur sagt mér og leyft að hafa eftir sér að allar viðteknar viðskiptavenjur í sambandi við útboð á framkvæmdum hafi verið þverbrotnar í þessu sambandi.
Samkvæmt hugmyndum Laxárvirkjunar um lausn raforkumála Norðurlands hefðu þær dísilvélar, sem til eru á Norðurlandi, getað annað orkuþörfinni til loka þessa árs, þannig að tími hefði gefist til betri undirbúnings en átti sér stað, því að auðvitað er notkun dísilvéla engin framtíðarlausn á orkumálum norðlendinga. En allur olíukostnaður við hagnýtingu dísilvélanna nú á þessu ári nemur ekki nema 1/6 hluta vaxta, — ég endurtek: aðeins 1/6 hluta vaxtanna einna af því fé sem nú er búið að verja til Kröfluframkvæmdanna. En það mun nema 8 milljörðum kr. Slíkt má ekki eiga sér stað öðru sinni á Íslandi.
En hvers vegna gerist annað eins og þetta sem ég hef nú nefnt dæmi um? Ekki hvarflar að mér að rekja ástæðuna til þess að það séu vondir menn eða hæfileikalitlir sem nú halda um stjórnvölinn á Íslandi. En nú virðist það vera svo að það eru fyrst og fremst flokkar, flokksvald, sem stjórnar landinu. Og einmitt nú stjórna þeir flokkar landinu sem margföld reynsla hefur sýnt að aldrei hafa getað starfað saman af heilindum til langframa. Heilindi í samstarfi eru ein meginforsenda þess að vel takist varðandi stjórnunarstörf. Þeim mun stærri sem vandamálin eru, þeim mun meiri nauðsyn er á heils hugar samstarfi, en á því virðist alvarlegur brestur í núv. ríkisstj. Þetta eru ekki aðeins mín orð. S.l. föstudag birti dagblaðið Vísir grein eftir einn af borgarfulltrúum Sjálfstfl. í Reykjavík sem jafnframt er einn helstur áhrifamaður meðal ungra manna í flokknum. Greinin heitir „Sannfæring sjálfstæðismanna fyrir samstarfi við Framsókn fer þverrandi.“ Í greininni segir m.a.:
„Það hefur verið haft á orði að stjórnarsamstarfið við Framsfl. gæti ekki einkennst af gagnkvæmu trausti og heilindum sem stjórnmálamenn sækjast gjarnan eftir þegar ólíkar fylkingar þurfa í sameiningu að axla þær byrðar sem á ábyrgri og styrkri landsmálaforustu óhjákvæmilega hvíla. Reynsla sjálfstæðismanna af samvinnu við Framsfl. rennir stoðum undir þennan grun.“
Og sama daginn mátti lesa þetta í Tímanum: „Önnur stjórn án þátttöku Framsfl. hefði að líkindum ekki orðið farsælli.“
Ekki er sá, sem þetta ritar, ánægður með ríkisstj. En til hvaða ráða þarf að grípa í íslensku þjóðlífi til þess að bæta úr því sem úrskeiðis fer? Það verður að endurskipuleggja íslenskt framleiðslu- og viðskiptalíf. Framleiðnin verður að vaxa. Sóunin og sukkið verður að hætta á öllum sviðum. Opinberir aðilar, ríki og sveitarfélög, verða að gera rekstur sinn hagkvæmari og sýna aukið aðhald í meðferð fjármála. Þetta allt er skilyrði þess að þjóðartekjur geti vaxið og raungildi launa hækkað. Um leið verður að auka réttlæti í tekjuskiptingu með endurbótum í tryggingamálum og húsnæðismálum og gerbreytingu á skattakerfinu. Þjóðin verður loksins að fá nýja stjórnarskrá með réttlátari kjördæmaskipun, auknum áhrifum sjálfs kjósandans á kostnað flokksvaldsins og bættum starfsháttum sjálfs Alþingis.
Síðast en ekki síst verðum við að hafa það bugfast, að það er ekki aðeins efnahagslíf þjóðarinnar sem er sjúkt. Hitt er ekki síður alvarlegt, að hér hefur á síðari árum risið alda fjársvika, smygls, eiturlyfjanautnar, alls kyns afbrota og jafnvel beinna glæpa sem áður voru næstum óþekkt fyrirbæri á Íslandi. Sú ömurlega staðreynd hefur komið í ljós, að réttarkerfi landsins hefur ekki reynst ráða við slík mál. Braskarar og lögbrjótar leika lausum hala og halda áfram hvers konar viðskiptum án þess að gripið sé í taumana. Hér má ekki lengur þola nein vettlingatök.
Núv. ríkisstj. hefur setið að völdum í meira en tvö ár. Reynslan hefur þegar sýnt að hún ræður ekki við bann vanda sem við er að etja í íslensku þjóðlífi. Til þess er hún of ósamstæð og veik þrátt fyrir þingstyrk sinn. Ein af skýringum þess, að hún ræður ekki við efnahagsvandann, er sú, að hún nýtur ekki trausts aðila vinnumarkaðarins. Öllum er kunn andstaða allra launþegasamtaka gegn ríkisstj. En fjöldamargir forustumenn vinnuveitenda virðast ekki heldur hafa trú á henni. Nægir í því sambandi að minna á fjölmörg ummæli forustumanna í iðnaði þar sem þeir telja ríkisstj. ekki hafa staðið við orð sín gagnvart iðnaðinum. Og varla geta þeir málsvarar sjávarútvegs verið ánægðir sem telja að ýmsar helstu greinar hans séu nú reknar með beinu tapi.
Sannleikurinn er sá, að engin ríkisstj. getur haft heilbrigða stjórn á efnahagsmálum þjóðarinnar nema hún hafi náið samstarf og gott samband við samtök bæði launþega og vinnuveitenda og njóti trausts þeirra. Það á ekki við um núverandi ríkisstj. Þess vegna þarf þjóðin sem fyrst að fá nýja ríkisstj. sem starfar með heilsteyptum og heiðarlegum hætti á nýjum grundvelli. Ef kjósendur fengju nú að segja skoðun sína er það trú mín að þetta yrði niðurstaða þeirra.
Lokaorð mín skulu vera þau að leggja áherslu á að þótt efnahagsmálin séu eflaust stærsti og umfangsmesti vandinn sem við er að glíma, þá eru raunveruleg vandamál þjóðar okkar fleiri og að ýmsu leyti djúpstæðari. Við leysum ekki heildarvanda þann, sem við erum stödd í, með einhverri nýrri lagasetningu um ráðstafanir í efnahagsmálum. Það þarf nýtt hugarfar hjá þjóðinni sjálfri og ráðamönnum hennar. Við verðum að ráða niðurlögum verðbólguhugsunarháttarins. Það eru náin tengsl milli verðbólgunnar og skorts á síðgæði í viðskiptalífinu. Við verðum að öðlast nýjan skilning á gildi hagkvæmni í hvers konar rekstri og nauðsyn á aukinni ráðdeild. Við verðum að styrkja mat okkar á nauðsyn vinnusemi og trúmennsku. Við verðum að efla löghlýðni. Auðvitað eigum við að standa vörð um andlegt frelsi og virðingu fyrir mannhelgi og mannréttindum. En það er ekki nóg að gera þetta með vörunum: Við verðum að sýna það í verki að við viljum búa í þjóðfélagi sem á skilið að verða nefnt lýðræðis- og réttarríki. Þá fyrst, þegar nýtt hugarfar hefur náð að móta þjóðina sjálfa og forustumenn hennar, getum við vænst þess að þjóðfélag okkar verði gott, réttlátt og heilbrigt heimkynni íslenskrar þjóðar.
Ég þakka þeim sem hlýddu. — Góða nótt.