03.02.1977
Sameinað þing: 45. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 1826 í B-deild Alþingistíðinda. (1449)

87. mál, fiskimjölsverksmiðja í Grindavík

Gunnlaugur Finnsson:

Herra forseti. Umr. um þessa þáltill. hafa nú breyst þannig, að menn frá öllum kjördæmum landsins hafa tekið hér til máls og lýst áhuga sínum á því að verulegt átak verði gert á þessu sviði. Við vestfirðingar höfum að sjálfsögðu átt okkar fulltrúa í þessum umr. þar sem er sjútvrh., en mig langaði til þess að leggja hér eigi að síður orð í belg.

Það er nú svo, að fyrir svona 30 árum voru starfandi í þeim landshluta, sem næst liggur loðnumiðunum á sumar- og haustvertíð, þ. e. a. s. á Vestfjörðum, starfandi fjórar feitfiskbræðslur, þar er nú starfandi ein. Þessar verksmiðjur, sem þá voru starfandi, voru á Sólbakka í Önundarfirði, á Hesteyri, Ingólfsfirði og í Djúpuvík. Á engum þessara staða er nú starfandi loðnu- eða Síldarbræðsla. Hins vegar var byggð feitfiskbræðsla í Bolungarvík, og ég hygg að ég fari með rétt mál að hún grundvallaðist í þann tíð á því að hráefni var flutt með flutningaskipi af síldarmiðum til Bolungarvíkur. Það sýndi sig eigi að síður, þó að þessi verksmiðja væri lítil og fengi ekki verkefni með þeim breytingum sem urðu á síldveiðum við Ísland, að síðan loðnuveiðarnar hófust veit ég ekki betur en að hún hafi verið rekin með fullum afköstum allan þann tíma frá því að loðna nálgaðist Reykjanes eða gekk fyrir það. Og eins og kom fram í fyrri ræðu hæstv. sjútvrh., þá er nú áformuð stækkun á verksmiðjunni um helming. upp í 500 tonna afköst, sem væntanlega verður lokið við þegar næsta sumar- eða haustloðnuvertíð hefst.

Ég vil aðeins vekja athygli á því, sem og kom fram í ræðu 2. þm. Vesturl., að það er svo ástatt á Vestfjörðum sem á Snæfellsnesi, að þar eru til margar verksmiðjur, en flestar eru orðnar gamaldags. Það er svo í verstöðvunum frá Ísafjarðardjúpi til Patreksfjarðar, að þar eru víða til tæki sem nýtanleg eru við feitfiskbræðslu. Þess vegna er mjög athugandi sá þátturinn í þessu máli í heild, hvort þar er ekki hægt um að bæta með tiltölulega litlum kostnaði þannig að hægt verði að vinna umtalsvert magn. Ég er ekki með þessu að leggja gegn þeirri þáltill., sem hér er mælt fyrir, né heldur þeirri, sem flutt var í fyrra varðandi verksmiðju á Snæfellsnesi. En ég vil vekja athygli á því, að hugmynd um slíka verksmiðju á engu síður rétt á sér á Vestfjörðum, án þess að ég tali hér um hvaða staður yrði þar heppilegastur.

Ég vil aðeins minnast á það í þessu sambandi, að skipstjórnarmenn hafa látið í ljós þá skoðun sína að af loðnumiðunum nú á liðnu hausti sé hættuminnst og greiðfærust sigling að Barða. Komum við þá nokkuð nærri þeim stað þar sem Síldarverksmiðja var rekin um áratugi, Sólbakka í Önundarfirði.

En ástæðan fyrir því, að ég kvaddi mér hljóðs, var e. t. v. ekki fyrst og fremst að minnast á þetta, heldur að minnast á annað atriði sem ekki hefur verið minnst á hér af hv. ræðumönnum nema hvað sjútvrh. kom aðeins að því. Það er verið að ræða um skort á fjármagni, hvað hægt sé að gera og hvernig hægt sé að leysa málið á sem hagkvæmastan hátt. Það kann að vera, þegar gerðar eru tilraunir til að fara inn á nýjar brautir og þær mistakast, að menn séu ekki ginnkeyptir fyrir að taka upp þráðinn aftur í sömu veru. Þegar talað er um fljótandi loðnubræðslur eða bræðsluskip er gjarnan minnst á gamla Hæring í háðstón og þar með afskrifuð slík hugmynd. Rekstur Norglobal hér við land undanfarna vetur hefur gefið góða raun, og mér er sagt að á alþjóðamarkaði séu til olíuskip á tiltölulega mjög hagstæðu verði. Ég varpa þeirri spurningu fram, — það er leitt að sjútvrh. er farinn úr salnum, — en ég varpa þeirri spurningu fram hvort ekki sé alveg sérstök ástæða fyrir n. að kanna það, miðað við þjóðhagslegan ávinning, hvort það reynist rétt hjá mönnum sem halda því fram að það muni tiltölulega ódýrt að fjarlægja tanka úr slíku skipi og byggja þar loðnuverksmiðju. Hér má að sjálfsögðu ekki vera um að ræða neina ryðdalla. En í slíkum skipum eru tankar sem gætu bæði verið hráefnistankar geymslutankar fyrir lýsi og geymslutankar fyrir mjöl.

Ég vildi aðeins nefna þetta atriði í þessum umr., en ég er ekki jafnframt að halda því fram að þetta leysi allan vanda. Ég tek fyllilega undir það, að loðnuverksmiðjur í landi eiga sinn rétt, en það er rétt að athuga þessa möguleika vel áður en tekin er upp sú stefna að reisa loðnubræðslu svo gott sem í hverri krummavík.