03.02.1977
Sameinað þing: 45. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 1828 í B-deild Alþingistíðinda. (1451)
87. mál, fiskimjölsverksmiðja í Grindavík
Flm. (Jón Árm. Héðinsson) :
Herra forseti. Ég vil aðeins að gefnu tilefni gera örstutta greinargerð fyrir gildi loðnuflutningasjóðs, sem ég persónulega tel eitt af grundvallaratriðum til að leysa þetta mikla vandamál sem menn hafa hér fjallað um, og taka undir sjónarmið ég held flestra eða allra ræðumanna sem hafa komið hér fram. En af því að ég hef hér skýrslu um loðnuflutningasjóðinn fyrir árin 1974 og 1975 og reyndar 1976 líka, þá ætla ég að lofa alþm. að heyra um gildi sjóðsins.
Hér segir á bls. 26 í skýrslu loðnunefndar fyrir árið 1975 og 1976: „Greiðslur loðnuflutningasjóðs vegna vetrarloðnuveiðanna 1975 námu 40.9 millj. kr.“ Og svo segir síðar að 1974 voru það 69.8 millj. kr.
Menn sjá á þessu að það er verulegt atriði að nota loðnuflutningasjóðinn, og þrátt fyrir það að hæstv. ráðh. hefur orðið að víkja hér af fundi vil ég að því verði komið til hans að í dag ríkir óánægja meðal skipstjóranna yfir því að loðnuflutningasjóður hefur ekki verið tekinn í notkun á þessari vertíð, en í sjóðinn mun komið hátt í 40 millj. kr. Menn telja að það sé orðið tímabært að fara að nota sjóðinn. Þá kemur það að því gagni, sem margir ræðumenn og talsmenn fyrir Norðurland voru að minnast á áðan, að lengja vinnslutímabil verksmiðja þar. Ef svo fer nú að mikil og góð veiði verður næstu daga, þá verða skipin að fá hvöt til þess að sigla norður fyrir. Þau verða að gera það. Og þá er bráð nauðsyn að grípa til loðnuflutningasjóðs og einnig að hvetja skipin til að sigla hér inn á Faxaflóahafnir, en þurfa ekki að bíða. Þó að sigling kosti nokkurt fé og í það fari nokkur tími og skip tefjist frá veiðum, þá er það mun meira verðmæti sem skapast með því að dreifa álaginu með tilstyrk loðnuflutningasjóðs. Það má alls ekki blanda því saman við það frv. sem var hér á ferðinni rétt fyrir jól og náðist ekki samstaða um.
Ég vil undirstrika gildi þess að hagnýta sér nú loðnuflutningasjóðinn þó að ekki fari í hann margir aurar af hverju kg, ég held að sé rétt farið með 18 aurar aðeins. Margir töldu að það mætti fara meira, aðrir töldu að það mætti fara minna. En verksmiðjurnar fyrir Norðurlandi munu brátt verða hráefnislitlar ef ekki verður gripið í þennan sjóð, og einnig þurfa verksmiðjurnar á Faxaflóasvæðinu að fá hráefni svo álag á öðrum verksmiðjum minnki. Siglingar eru rökréttar út af fyrir sig. En þeim fylgir bæði áhætta, tími og kostnaður. Og þegar skip fer eina ferð norður fyrir Núp, þá fara í það fimm sólarhringar. Ef verksmiðjurnar væru heppilega staðsettar nokkuð hringinn í kringum landið er augljóst mál að afli yrði miklu meiri.
Annað atriði, sem mætti sennilega bæta úr verulega, er að geymslutækni hér á Íslandi er á lágu stigi miðað við a. m. k. í Noregi. Það atriði ætti ekki að kosta óskaplegar upphæðir. Ég tel að það sé öfugt farið að hagnýta sér ekki loðnuflutningasjóðinn meira en gert hefur verið, en árið 1367 voru aðeins greiddar í loðnuflutningasjóð 11.1 millj. kr., enda sáralítið hagnýtt og sáralítið dreift fyrir bragðið.
Það hefur margt komið hér fram. Einna athyglisverðast fannst mér það sem kom fram hjá hv. 3. þm. Norðurl. e. Mér finnst undarlegt þetta, sem ég dreg ekki í efa að sér rétt með farið, ef 65 millj. — við skulum segja um 100 millj. kr. þurfi til að koma verksmiðjunni í gagnið, en það fæst ekki. Mig undraði að heyra svona upplýsingar, þegar það er vitað mál að það kann jafnvel að verða margra daga löndunarstöðvun fyrir flotann og þá tapast hundruð milljóna. Ég satt að segja skil ekki slíka fjármálastjórn, hreint út sagt. Nú vitum við að ekki fljóta öll skipin með fullfermi að Þórshöfn, en mörg mun gera það og geta bætt úr sáru atvinnuleysi á þessum stað. Ég held að þarna verði að kippa hraustlega í spottann, og Norðurlandsþm. eystra ættu að geta gert það. Kannske þarf að kveða drápu svo einhverjir vakni hressilega.