07.02.1977
Neðri deild: 45. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 1845 í B-deild Alþingistíðinda. (1464)
Varamaður tekur þingsæti
Forseti (Ragnhildur Helgadóttir) :
Mér hefur borist svo hljóðandi bréf:
„Reykjavík, 6. febr. 1977.
Samkvæmt beiðni Ellerts B. Schram, 11. þm. Reykv., sem nú er á förum til útlanda í opinberum erindum, leyfi ég mér með skírskotun til 138. gr. laga um kosningar til Alþingis að óska þess að 1. varamaður hans, Geirþrúður Hildur Bernhöft félagsmálafulltrúi, taki á meðan sæti hans á Alþingi.
Virðingarfyllst,
Þorv. Garðar Kristjánsson.“