07.02.1977
Neðri deild: 45. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 1845 í B-deild Alþingistíðinda. (1465)
137. mál, tekjuskattur og eignarskattur
Fjmrh. (Matthías Á. Mathiesen) :
Virðulegi forseti. Í stefnuræðu forsrh., er hann flutti hér á Alþ. 25. okt. s. l., og í ræðu þeirri er ég flutti við 1. umr. fjárlaga fyrir árið 1977, var boðað að lagt yrði fram á þessu þingi frv. um breyt. á lögum um tekjuskatt og eignarskatt. Helstu stefnuatriði þess frv. yrðu:
að endurskoðun laganna leiddi ekki til aukinnar skattbyrðar og tryggði réttlátari skattalöggjöf og skattbyrðinni milli skattborgaranna væri skipt á sanngjarnari hátt en gildandi reglur fela í sér;
að samræma bæri álagningargrunn tekjuskatts og útsvars með það fyrir augum að nálgast skatt á brúttótekjur;
að haga skattlagningu hjóna þannig að fyrst og fremst yrði tekið tillit til fjölskylduaðstæðna, en í minna mæli eftir því hvernig tekjuöflun heimilanna er háttað, þ. e. hvort bæði hjóna vinna utan heimilis eða einungis annað þeirra. Var því lýst að skattalög og framkvæmd verði að tryggja jafnrétti karla og kvenna;
að við skattlagningu þeirra, sem stunda sjálfstæðan atvinnurekstur, bæri að skilja á milli atvinnurekanda og fyrirtækis við skattútreikning, en einstaklingur í atvinnurekstri nyti síðan sömu skattakjara og sambærileg fyrirtæki. Var bent á sem leið í þessu efni að reikna atvinnurekendum launatekjur frá eigin fyrirtæki eða líta á úttekt eiganda eða þann lífeyri, sem hann hefur notað sér og sínum til framfærslu, sem skattstofn;
að endurskoða bæri fyrningarreglur skattalaganna og ákvæði um skattskyldu söluhagnaðar og skattleggja bæri í ríkara mæli söluhagnað eigna sem fyrndar hafa verið í atvinnurekstri; jafnframt að koma í veg fyrir sölu eigna milli fyrirtækja og þær fyrndar að nýju án þess að söluhagnaður komi til skattlagningar hjá seljanda;
að endurskoða skyldi framkvæmd skattalaga þannig að tryggja sem best, að hver skattþegn beri þann skatt sem honum er ætlað samkvæmt gildandi skattalöggjöf á hverjum tíma, og tryggja samræmda framkvæmd skattalaganna alls staðar í landinu.
Eins og fram kemur í upphafi hinnar almennu grg. með frv., sem hér er til umr., verður að líta á það sem þátt í heildarendurskoðun á tekjuöflunarkerfi ríkisins sem unnið hefur verið að æðilengi. Verkið hófst að tilhlutan Magnúsar Jónssonar þáv. fjmrh. í beinum tengslum við undirbúning að aðild Íslands að EFTA í lok síðasta áratugs. N., sem hann skipaði í málið og starfaði á árunum 1969–1971, fjallaði nær eingöngu um skattlagningu atvinnurekstrar og skilaði skýrslu þar að lútandi og vann að samningu frv. sem á árunum 1970 og 1971 voru til meðferðar á Alþ.
Halldór E. Sigurðsson lét sem fjmrh. halda þessu starfi áfram í höndum nýrrar n. sem falið var mun víðtækara verkefni. Henni var ætlað að gera úttekt og endurskoðun á tekjuöflunarkerfi ríkisins og móta heildarstefnu á því sviði í nánu samráði við sérstaka þingnefnd sem tilnefnd var af þingflokkunum og hagsmunasamtökum eftir því sem unnt reyndist. Skyldi n. þessi vinna í samráði við þær aðrar n. sem skipaðar höfðu verið til að fjalla um almannatryggingakerfið og tekjuöflun sveitarfélaga. Þessi n. skilaði heildarskýrslu í nóv. árið 1973 og var þeirri skýrslu dreift á Alþ. og víðar og hefur að geyma yfirlit yfir þetta endurskoðunarverk fram til þess tíma. Þar var gerð úttekt á tekjuöflunarkerfi ríkisins eins og það þá var og í öllum megindráttum er enn, jafnframt því sem sett voru fram drög að stefnumótun um nýtt tekjuöflunarkerfi sem fullnægði þeim ýmsu kröfum sem virk fjármálastjórn ríkisins gerir til tekjuöflunar ríkisins.
Í beinu framhaldi af starfi þessarar n. og á grundvelli þeirra hugmynda, sem hún hafði sett fram, var í fjmrn. unnið að nýju frv. til l. um tekjuskatt og eignarskatt og voru drög að slíku frv. gerð.
Í upphafi ársins 1975 var skipulagi á þessu starfi breytt. Þá voru myndaðir vinnuhópar sem gera skyldu till. um breytingar á ýmsum sviðum skattamála í framhaldi af því verki sem að framan var lýst. Í því sambandi hefur verið lokið grg. um staðgreiðslu opinberra gjalda og um virðisaukaskatt. Unnið var að og lokið till. um ýmsa þætti tekjuskatts og samhæfingu skattgreiðslna og bóta almannatrygginga, sem leiddi til breytinga á tekjuskatts- og tryggingalögum á vorinu 1975. Frv. til nýrra tollskrárlaga var samið og það afgr. á Alþ. fyrir jól. Og loks liggur hér fyrir þetta frv. til l. um tekjuskatt og eignarskatt sem beinn árangur þessa verks.
Ég vil nota þetta tækifæri til að leggja áherslu á hversu nauðsynlegt er að vinna markvisst að þessari heildarendurskoðun tekjuöflunarkerfisins. Nefndarskýrslan frá 1973 skýrir mjög ítarlega ýmsa vankanta, sem eru á gildandi kerfi, og hvernig því í mörgu tilliti er áfátt, t. d. til að ríkisfjármálin geti verið virkur þáttur í hagstjórn og ráðandi afl um hvert sé eftirspurnarstigið í hagkerfinu á hverjum tíma. Sá tolltekjumissir, sem ákveðinn hefur verið með setningu tollskrárlaganna í desembermánuði s.l., gerir þetta verk knýjandi, þar eð finna þarf aðrar leiðir til að afla þeirra tekna eða draga verulega úr þjónustu eða umsvifum ríkisins á einhverjum sviðum. Þess eru oft mörg dæmi að fyrirhöfn og kostnaður við álagningu og innheimtu ýmissa smærri tekjustofna ríkissjóðs séu óhæfileg og þá í mörgum tilfellum ekki siður fyrir borgarana heldur en ríkið sjálft.
Auk þess að vera þannig liður í mjög nauðsynlegri heildarendurskoðun löggjafar á sviði tekjuöflunar verður að skoða þetta frv. í ljósi þeirrar umr. sem fram hefur farið meðal fólks að undanförnu, ekki hvað síst á síðasta ári, um það ranglæti sem talið er vera ríkjandi í álagningu og innheimtu tekjuskatts. Svo hvöss og svo almenn sem þessi umr. varð og svo mikið sem sú gagnrýni, sem þar kom fram, hafði til síns máls virðist hún hafa verið næsta einstaklingsbundin. Ljósast varð þetta á s. l. hausti þegar blaðamenn og starfsmenn fjölmiðla, sem tóku ríkan þátt í þessari umr., fengu tækifæri í sjónvarpi til umfjöllunar um þetta efni. Virtist þá svo sem þá skorti grundvallarþekkingu til að geta borið fram markverðar spurningar sem gætu varpað ljósi á þau vandamál, sem til umr. höfðu verið.
Í þessari umr. allri saman var stundum fleygt þeirri hugmynd að leggja bæri niður tekjuskatt þar eð hann væri eingöngu orðinn skattur á launafólki. Ríkisskattstjóri hefur með tölfræðilegum athugunum sínum á skattálagningu leitt í ljós að þessi staðhæfing um tekjuskatt sem skatt launþeganna eingöngu er ekki raunhæf. Hugmyndin um niðurfellingu tekjuskatts er að mínu mati heldur ekki raunhæf. Tilflutningur tekjuskatts til sveitarfélaganna ásamt tilflutningi verkefna til þeirra kemur mjög til álita. Þar á ofan er mikilvægt atriði í þessu sambandi að tekjuskattur er einn af sárafáum, ef ekki eini tekjustofninn, sem einhverju máli skiptir í tekjuöflunarkerfi ríkissjóðs, sem ekki er stiglækkandi eftir tekjum. Ekki liggja fyrir neinar rannsóknir á því hvernig skattar ríkisins að öllu samanlögðu leggjast á fólk eftir mismunandi tekjuhæð. Þá er ljóst að æðimargar tegundir skattlagningar eru hlutfallslega þungbærari fyrir fólk með lágar tekjur heldur en fólk með háar tekjur. Benda má á þá skattlagningu, sem felst í tollum, vörugjaldi og söluskatti af heimilistækjum eða útvarps- og sjónvarpstækjum. Séu tekin hin algengustu tæki af þessu tagi, eins og sjónvarpstæki, ísskápur, þvottavél og e. t. v. frystiskápur, sem allt er nú til á flestum heimilum, er skatturinn, sem af þessu hefur verið greiddur í ríkissjóð, miklu stærri hluti af tekjum lágtekjumannsins heldur en hátekjumannsins. Tekjuskatturinn stingur hér í stúf. Hann leggst ekki á fólk með lægstu tekjurnar og fer ekki að verða mjög þungbær, t. d. hærri en fjórðungur af brúttótekjum, fyrr en komið er upp í verulega há tekjumörk. Þessi stighækkandi skattur, þ. e. a. s. stighækkandi með tekjum, er þannig eina raunverulega mótvægið sem finna má í tekjuöflunarkerfinu á móti þeim fjölda skatta sem nú má með sæmilegu móti fullyrða að leggist á stiglækkandi eftir tekjum. Af þessum ástæðum tel ég varhugavert að hugsa til þess að tekjuskattur yrði afnuminn með öllu.
Hins vegar tel ég að sú umr., sem ég hér vitnaði til um misréttið í skattamálum, hafi leitt í ljós nauðsyn þess að fjölmiðlar og ríkið sjálft reyni með hlutlægum hætti að fræða fólk um skatta og skattakerfi, svo að menn séu þess betur umkomnir að leggja mat á hvers konar æsifréttir, sem fram er teflt, og réttmæti þeirra.
Þá er það ljóst að skattalög verða aldrei betri en framkvæmd þeirra er í raun. Um réttlæti þeirra, eins og þau standa í lögbókum á hverjum tíma, má að sjálfsögðu deila, en það er eilífðarverkefni fjmrn. og skattyfirvalda að bæta um framkvæmd þeirra laga og eru ýmsar hugmyndir í athugun í því efni.
Almennur tekjuskattur var leiddur í lög á Íslandi með lögum nr. 74 frá 1921. Frá þeim tíma hafa að vísu verið gerðar ótal breyt. á tekjuskattslögunum, en jafnan hefur verið byggt á þeim grunni sem lagður var með lögunum frá 1921. Hafa allar breyt. verið felldar inn í ramma þeirra laga.
Frv. það, sem hér liggur fyrir, felur í sér till. til nýrrar heildarlöggjafar um tekjuskatt og eignarskatt. Er hún ný frá rótum að því leyti, að vikið er frá uppsetningu fyrri laga um þetta efni og reynt að haga niðurröðun efnis þannig að það sé sem aðgengilegast.
Frv. er skipt í 14 kafla. 1. kafli frv. fjallar um skattaðild, þ. e. a. s. hvaða aðilar eru skattskyldir hér á landi. 2. kafli frv. fjallar um skattskyldar tekjur. Í honum er skilgreining á tekjuhugtakinu í víðustu merkingu, þ. e. a. s. brúttótekjum, og er hún að mörgu leyti víðari en sú skilgreining sem gilt hefur hingað til hér á landi. 3. kafli frv. fjallar um þann frádrátt sem heimilaður er frá tekjum samkvæmt 2. kafla. Er þar gerður munur á því, sem einstaklingi, sem ekki stundar rekstur, er heimilt að draga frá tekjum sínum, annars vegar og hins vegar frádrætti, sem heimilaður er frá tekjum af atvinnurekstri. 4. kafli frv. hefur að geyma ýmis ákvæði um tekjur. Hér er safnað saman ýmsum ákvæðum sem varða tekjur, en eigi þóttu þó beinlínis eiga heima í 2. eða 3. kafla frv. Þegar frá tekjum hefur verið dreginn heimilaður frádráttur kemur út sá stofn sem skattur er reiknaður af, eða svonefndur tekjuskattsstofn, en um hann fjallar 5. kafli frv. 6. kafli þess fjallar síðan um hvernig tekjuskattur er reiknaður af þeim stofni, sem skilgreindur er l fyrri köflum frv., svo og um afslætti og barnabætur frá þeim reiknaða skatti. 7. kafli fjallar um eignarskatt. En í 8.–14. kafla eru ákvæði er varða skattyfirvöld, álagningu, úrskurði, kærur, viðurlög, innheimtu skattsins og önnur atriði.
Breytingar frv. eru ekki bundnar við formið eitt, heldur eru í því verulegar efnisbreytingar um fjölmörg atriði er varða skattlagningu, og tel ég rétt að geta fyrst meginbreytinga sem í frv. felast, áður en ég fjalla nánar um einstök atriði þeirra.
Í fyrsta lagi er vikið frá gildandi ákvæðum laga um frádrætti. Ýmist eru þessir liðir alveg felldir niður eða birtast í formi afsláttar frá skatti. Með þessu næst það markmið að stofn til útreiknings tekjuskatts verður hinn sami og stofn til útreiknings útsvars, og horfir það til verulegrar einföldunar, auk þess sem fækkun frádráttarliða ætti að geta orðið til að minnka fyrirhöfn við framtal og úrvinnslu framtalsgagna.
Í öðru lagi er reglunni um skattlagningu hjóna breytt. Í þess stað, að samkv. núgildandi lögum skuli skattur reiknaður sameiginlega af tekjum hjóna, eftir að helmingur af launatekjum konunnar eða ákveðið hámark af atvinnurekstrartekjum hennar hefur verið dregið frá, er lagt til í frv. að skattstofni hjóna sé skipt í tvennt til jafns og skattur reiknaður af hvorum helming fyrir sig, en heimild útivinnandi eiginkonu til 50% frádráttar af launatekjum eða hámark af atvinnurekstrartekjum verði felld niður. Með þessu næst það markmið að skattlagning heimilanna verður óháð því hvernig makar skipta með sér störfum innbyrðis og hvernig tekjuöflunin skiptist á milli þeirra. Eftir sem áður er tekið visst tillit til þess kostnaðar sem af tekjuöflun leiðir ef báðir makar vinna utan heimilis til þess að afla tekna. Er það gert í formi afsláttar frá skatti annars vegar, svonefnds heimilisafsláttar, en hins vegar með barnabótaauka.
Í þriðja lagi eru gerðar breytingar á skattalegri meðferð þeirra einstaklinga sem við atvinnurekstur fást á eigin ábyrgð. Er lagt til að tap, sem verður af atvinnurekstri einstaklings, verði ekki frádráttarbært frá öðrum tekjum sem einstaklingurinn hefur. Hins vegar verður þetta tap yfirfæranlegt eins og annað rekstrartap og getur komið á móti hagnaði sem síðar verður af atvinnurekstrinum. Jafnframt er einstaklingum, sem atvinnurekstur stunda, gert að reikna sér laun af vinnu sinni við þann rekstur eins og sú vinna hefði verið innt af hendi hjá óskyldum aðila. Þessi laun teljast þeim til tekna, en aftur á móti til gjalda í rekstrinum, og verður yfirfæranlegt ef það leiðir til taprekstrar.
Í fjórða lagi er fyrirhuguð breyting á reglum um fyrningu og söluhagnað. Horfa þessar breytingar fyrst og fremst í einföldunarátt, einkum að því er varðar fyrningar af lausafé. Er gert ráð fyrir því að framvegis verði lausafé fyrnt af bókfærðu verði slíkra eigna í árslok í stað þess að nú er fyrnt af kostnaðarverði hverrar eignar fyrir sig. Sé eign seld færist söluverð hennar til lækkunar á bókfærðu verði og söluhagnaður kemur því óbeint til skattlagningar í formi hækkaðra fyrninga næstu ár á eftir. Reglurnar um skattlagningu söluhagnaðar af atvinnurekstrareignum eru hertar, þar sem frv. gerir ráð fyrir að söluhagnaður verði skattskyldur án tillits til eignarhaldstíma seljandans. Er þar með sett undir þann leka, sem er í gildandi lögum og gerir mönnum kleift að njóta skattfrjáls raunverulegs söluhagnaðar í verulegum mæli.
Í fimmta lagi er þess að geta, að í köflum laganna, sem varða framkvæmd, skattlagningu og viðurlög, eru gerðar veigamiklar breytingar. Gert er ráð fyrir seinkun á útkomu skattskrár, þannig að upplýsingar þær, er hún hefur að geyma, verði mun réttari en þær upplýsingar sem koma fram með núverandi fyrirkomulagi.
Skipun ríkisskattanefndar er breytt. Í stað þess að í n. eiga sæti 3 aðalmenn og 3 varamenn, sem allir taka meira og minna þátt í störfum n., er lagt til að n. verði skipuð 3 mönnum sem hafi nefndarstörfin að aðalstarfi. Jafnframt verði skattsektir nú í höndum ríkisskattanefndar, en sú sérstaka skattsektarnefnd, sem starfar samkv. gildandi lögum, verði felld niður. Viðurlög við skattsvikum verði þyngd að ýmsu leyti og veigamesta breytingin sú, að gert er ráð fyrir því að ítrekuð brot eða miklar sakir geti leitt til sambærilegra fangelsisdóma og um væri að ræða fjárdrátt, fjársvik eða önnur auðgunarbrot samkv. hegningarlögum.
Verkefni eins af vinnuhópunum, sem getið var um áðan, var að gera till. um samhæfingu trygginga- og skattakerfis og að athuga hvort ekki mætti færa tekjuskattsgrunn einstaklinganna nær heildartekjum þeirra. Var frumbreyting í þessa átt lögleidd á árinu 1975 með persónuafslætti, eins og ég gat um áðan. Vinnuhópur þessi skilaði áfangaskýrslu í nóvembermánuði s. l. þar sem gerðar voru till. um breytingar á tekjuskatti einstaklinga. Er þessum till. í aðalatriðum fylgt í frv. þessu.
Meginbreytingin, sem frv. felur í sér að þessu leyti, er sú, að skattgrunnur til tekjuskatts verði hinn sami og skattgrunnur til tekjuútsvars. Samkv. gildandi lögum eru veittir nokkrir frádrættir frá vergum tekjum áður en útsvar er af þeim reiknað. Hins vegar eru mun fleiri frádrættir veittir frá vergum tekjum áður en tekjuskattur er reiknaður af þeim. Hér er lagt til að sá skattgrunnur, sem tekjuskattur reiknast af, verði nánast hinn sami og sá sem útsvar verður þá reiknað af. Í þessu felst að gerð er till. um niðurfellingu velflestra þeirra frádráttarliða sem nú eru heimilaðir samkv. gildandi lögum. Við álagningu tekjuskatts árið 1976 nam frádráttur frá brúttótekjum, áður en skattur var reiknaður, rösklega 21% af brúttótekjum, en mismunur brúttótekna og tekjuskattsstofns samkv. frv. yrði hins vegar aðeins um 3% eða svipaður og mismunur brúttótekna og vergra tekna til skatts í dag. Þeir frádrættir, sem lagt er til að niður verði felldir, eru m. a. iðgjald af lífeyristryggingu, iðgjald af lífsábyrgð, stéttarfélagsgjöld, sjúkra- og slysapeningar, gjafir til menningarmála, kostnaður við öflun bóka, giftingarfrádráttur, björgunarlaun, námsfrádráttur af tekjum nemanda sjálfs, frádráttur að námi loknu vegna námskostnaðar sem stofnað var til eftir 20 ára aldur, verkfærakostnaður, vaxtagjaldafrádráttur, fasteignagjöld, fyrning og viðhaldskostnaður af íbúðarhúsnæði. Ýmsum þessara frádráttarliða er breytt í afslátt frá skatti, en kosturinn við að hafa afslátt í stað frádráttar er m. a. sá, að skattafsláttur nýtist jafnt öllum sem ná reiknuðum skatti, en frádráttur frá tekjum, áður en skattur er reiknaður, nýtist hins vegar þeim betur sem eru í hærra skattþrepinu.
Þeir skattafslættir, sem frv. gerir ráð fyrir, auk persónuafsláttar og heimilisafsláttar, sem þegar er getið, eru launaafsláttur, vaxtaafsláttur, viðhaldsafsláttur, sjómannaafsláttur og fiskimannaafsláttur. Í launaafslætti felst það, að gjaldanda er heimilt að draga 2% af launatekjum sínum frá skatti. Þessum afslætti er ætlað að koma í stað ýmissa frádráttarliða í gildandi lögum, einkum þeirra sem allir launþegar hafa notið, t. d. iðgjalda af lífeyristryggingu, stéttarfélagsgjalda o. s. frv. Einnig er honum ætlað að koma í stað ýmissa frádráttarliða, sem flestir gjaldendur njóta einhvern tíma á lífsleiðinni, svo sem giftingarfrádráttar, námsfrádráttar o. s. frv. Í stað heimildar gildandi laga til að draga vaxtagjöld frá tekjum gerir frv. ráð fyrir sérstökum vaxtagjaldaafslætti er nemur 25% af vaxtagjöldum viðkomandi gjaldanda. Þá er það nýmæli varðandi þennan afslátt, að öllum gjaldendum er heimill ákveðinn lágmarksvaxtafrádráttur án tillits til þess hvort þeir hafa vaxtagjöld eða ekki. Er hugmyndin að þessi staðlaði afsláttur komi þeim til góða sem ekki bera skuldir vegna eigin húsnæðis og þá að jafnaði búa í leiguhúsnæði, en eins og kunnugt er er húsaleiga ekki frádráttarbær til skatts. Þá er gert ráð fyrir heimild til að draga frá skatti viðhaldsafslátt sem nema skal 25% af greiddri viðhaldsvinnu við íbúð sem gjaldandinn á og hefur til eigin afnota, allt að vissu marki. Greinir menn nokkuð á um ágæti núgildandi heimilda um að draga viðhaldskostnað frá tekjum áður en skattur er á þá lagður. Annars vegar er það sjónarmið að slík frádráttarheimild stuðli að því að vinnulaun við viðhald séu gefin upp til skatts. Hins vegar hefur þessi frádráttur í för með sér gífurlega vinnu fyrir skattyfirvöld vegna þess að mjög erfitt er að skera úr um hvenær er um að ræða frádráttarbært viðhald og hvenær er um að ræða endurbætur sem ekki eru frádráttarbærar. Telja margir þeir, sem að skattamálum vinna, að ákvæðin um viðhaldsfrádrátt hafi ekki leitt til þess að laun við viðhald hafi verið gefin upp sem skyldi, en hins vegar hafa deilur orðið mjög miklar út af þessari heimild. Er til marks um þessi vandkvæði að af 797 málum, sem lágu fyrir ríkisskattanefnd um s. l. áramót, voru um 700 vegna ágreinings um viðhaldsfrádrátt. Sömu rök og gagnrök sem eiga við um viðhaldsfrádrátt eiga einnig við um viðhaldsafslátt. Hins vegar þótti ekki fært að leggja til í frv. að fella hann niður. En þetta er eitt af þeim atriðum sem þingið og fjh.- og viðskn. ættu að gefa gaum að hvort vert er að yrði breytt frá því sem gert er ráð fyrir í frv. Sjómannaafslætti og fiskimannaafslætti er ætlað að koma í stað hliðstæðra frádráttarliða sem eru í gildandi lögum.
Með niðurfellingu frádráttarliðanna er stigið nokkuð róttækt skref í átt til einföldunar skattkerfisins. Því er ekki að neita að ákveðnar ástæður lágu til upptöku flestra þeirra frádráttarliða sem hér er lagt til að niður verði felldir. Má segja að margir þeirra séu sanngjarnir ef litið er á þá út af fyrir sig hvern og einn. Þegar þeir koma hins vegar allir saman í skattalögunum hafa þeir valdið því, að skattbyrði einstaklinga með sömu tekjur hefur verið ákaflega misjöfn og því valdið í reynd misræmi sem erfitt er að sætta sig við og hefur valdið megnri óánægju meðal landsmanna. Nú reynir því á hvort menn vilja í reynd fá einföldun sem ætið er verið að tala um að þurfi að vera á skattkerfinu. Því er ekki að leyna, að hún getur komið einstökum gjaldendum illa á tilteknum árum í samanburði við gildandi lög. Má finna þess mörg dæmi að skattbyrði manna, sem best hefur notast af frádráttarliðum gildandi laga, aukist nokkuð samkv. frv.
Ég gat þess áðan að frádráttur vegna fasteignagjalda, fyrningar og viðhaldskostnaðar á íbúðarhúsnæði, sem gjaldandi býr í sjálfur, væri meðal þeirra frádráttarliða sem felldir væru niður. Þetta er þáttur í að fella niður bæði tekjur og gjöld af eigin húsnæði. Verður á móti felld niður eigin húsaleiga til tekna. Við álagningu 1975 vógu þessir liðir nokkurn veginn salt, en það ár voru bæði tekjur og gjöld af íbúðarhúsnæði reiknuð sem hlutföll af fasteignamati. Þessu var breytt við álagningu 1976 og viðhaldskostnaður heimilaður til frádráttar samkv. reikningi. Við þetta má ætla að frádráttur vegna viðhalds hafi hækkað verulega, en á móti því ætti að vega sá viðhaldsvinnuafsláttur sem gerð er till. um í 4. tölulið 64. gr. frv. Ættu þessar breytingar varðandi íbúðarhúsnæði að horfa verulega til einföldunar, og í heild ættu þær breytingar, sem ég hef rakið hér að framan, að geta auðveldað upptöku staðgreiðslukerfis ef ákvörðun yrði tekin um slíkt.
Allt frá því að almennur tekjuskattur var leiddur í lög 1921 hefur meginreglan verið sú, að tekjur hjóna hafa verið taldar saman til skattgjalds og skattur reiknaður í einu lagi af hinum sameiginlegu tekjum. Persónufrádráttur hefur hins vegar frá upphafi verið hærri fyrir hjón en fyrir einstaklinga. Á þessum fyrstu árum almennrar tekjuskattsálagningar og reyndar lengi fram eftir voru mjög mörg þrep í skattstiganum og því skipti meira máli en nú er hvar í skattstiganum umframtekjur lentu. Er konur fóru að marki að sækja út á vinnumarkað utan heimilanna lentu tekjur þeirra því sem umframtekjur heimilisins í tiltölulega háu skattþrepi. Þetta þótti að mörgu leyti ósanngjarnt, og voru ýmis frv. flutt á Alþ. sem ætlað var að bæta úr þessu. Þannig má t. d. nefna að árið 1951 flutti Gylfi Þ. Gíslason frv. um helmingaskipti tekna hjóna til skatts fram að vissu teknamarki. Árið 1952 flutti sami þm. ásamt fleirum frv. svipaðs efnis. Og sama ár fluttu Jóhann Hafstein og fleiri frv. sem stefndi í svipaða átt. Ekkert þessara frv. náði fram að ganga.
Hér má skjóta inn að í lög nr. 6 1935, um tekjuskatt og eignarskatt, síðustu málsgr. 10. gr., var sett heimild til frádráttar frá tekjum vegna heimilisstjórnar. Er þetta nánar útfært í reglugerð nr. 133/1936, en þar segir að frádráttar njóti kvæntir menn sem hafa haft ráðskonu vegna þess að eiginkonan hefur haft atvinnu utan heimilis. Þessi frádráttur mátti þó ekki nema meira en lögleyfðum persónufrádrætti vegna eiginkonu og ekki heldur vera hærri en tekjur eiginkonu utan heimilis.
Með lögum nr. 41/1954 er lagaákvæði varðandi þetta efni breytt á þessa leið, með leyfi forseta: „Nú vinnur gift kona, sem er samvistum við mann sinn, fyrir skattskyldum tekjum, en keypt er í staðinn heimilisaðstoð, og er þá heimilt að draga frá tekjum hjónanna, áður en skattur er á þær lagður, fjárhæð er nemur persónufrádrætti konunnar samkv. 12. gr. og 1/3 af persónufrádrætti barna og annarra ómaga sem hjónin hafa á framfæri á heimili sínu. Frádrátturinn í heild má þó aldrei vera meiri en nemur 2/3 af því, sem konan vinnur inn, og heldur ekki meiri en greitt hefur verið fyrir keypta heimilisaðstoð. Til keyptrar heimilisaðstoðar telst kaup og hlunnindi þjónustufólks á heimilum og greiðslur fyrir börn á dagheimilum.“
Auk þessarar breytingar á frádrætti vegna útivinnandi eiginkonu skv. l. nr. 41/1954 var jafnframt í sömu lögum reynt að leysa þetta vandamál með því að innleiða sérstakan skattstiga fyrir hjón þar sem þrepin voru stærri en í skattstiganum fyrir einstaklinga. Ekki leysti þetta hjónasköttunarvandamálíð.
Árið 1956 flutti Alfreð Gíslason till. um að heimiluð yrði sérsköttun launatekna giftra kvenna. Það frv. náði ekki fram að ganga. Á sama þingi var enn flutt frv. um helmingaskiptaregluna. Voru flm. Ragnhildur Helgadóttir o. fl. Ekki náði það frv. fram að ganga heldur. Og á sömu lund fór með frv. sama efnis er sömu þm. fluttu 1957. Þá var einnig á þingi 1973 flutt af tveim þm. Sjálfstfl. frv. sem gekk í sömu átt, en það náði ekki fram að ganga.
Árið 1957 flutti meiri hl. fjhn. Nd. till. um breyt. á stjórnarfrv. því, er þá var til meðferðar í þinginu varðandi tekjuskatt og eignarskatt. Var þessi brtt. flutt að tilmælum ríkisstj. og var unnin af n. sem til þess hafði verið skipuð. Í þessari till. fólst núgildandi regla um heimild til að draga helming launatekna eiginkonu frá tekjum áður en skattur var reiknaður svo og heimild til sérsköttunar á launatekjum eiginkonu væri þess óskað. Hlaut þessi till. samþykki þingsins og var birt sem lög nr. 36/1958. Um leið var felld niður sú takmarkaða heimild sem verið hafði í lögum til þess að draga frá tekjum eiginkonu kostnað sem af útivinnunni leiddi og áður er frá greint. Má segja að hér með hafi skattlagning hjóna í megindráttum verið komin í það horf sem síðan hefur haldist óbreytt.
Þær aðferðir, sem til greina koma við skattlagningu á tekjum hjóna, eru allmargar, en í grófum dráttum má kannske segja að fjórar séu hinar helstu þeirra.
Má þar fyrst nefna algera sérsköttun sem felst í því, að tekjur hvors hjóna eru skattlagðar sem um einstakling væri að ræða og ekkert tillit tekið til þess að viðkomandi aðilar eru í hjúskap. Þessi regla er að mörgu leyti skýr og einföld, en hún hefur þann galla að afli aðeins annað hjóna tekna eru þær skattlagðar eins og um einstakling væri að ræða og ekkert tillit tekið til þess að meiri framfærslubyrði hvílir á þessum tekjum en samsvarandi tekjum einstaklings.
Annar kosturinn er sá að halda sérsköttuninni að mestu leyti, en taka þó tillit til hjúskaparins með því að hafa mismunandi skattstiga og heimila yfirfærslu á þeim ónýtta persónuafslætti, sem annað hjóna getur ekki nýtt sökum lágra tekna, yfir á tekjur hins hjónanna. Að þessu leyti yrði tekið tillit til aukinnar framfærslubyrði hjónanna miðað við einstaklinga.
Þriðji meginkosturinn er að fara þá leið, sem frv. gerir ráð fyrir, þ. e. a. s. að skipta tekjum hjóna til helminga. Má segja að í þessari aðferð felist að gengið sé skrefi lengra heldur en í síðast nefndu reglunni, þar sem þessi regla felur ekki einungis í sér að persónuafslátturinn nýtist hjá báðum hjónum, heldur nýtist neðra skattþrepið einnig hjá báðum enda þótt aðeins annað afli teknanna. Þessi aðferð hefur því þann kost umfram þá síðast nefndu að vera enn hlutlausari en hún gagnvart því hvort hjónanna vinnur fyrir tekjunum. Samkv. helmingaskiptareglunni skiptir engu máli hvernig tekjuöflun heimilisins skiptist milli hjónanna.
Fjórða meginreglan er svo sú samsköttun sem tíðkast hefur hingað til.
Hér hefur að vísu verið sett fram mjög einföld mynd af möguleikum í hjónasköttun því ótal afbrigði eru hugsanleg af hverjum þeirra kosta sem nefndir hafa verið hér að framan. Helmingaskiptareglan, sem frv. gerir ráð fyrir, hefur verið notuð bæði í Vestur-Þýskalandi og í Bandaríkjunum um alllangt skeið og þótt gefa góða rann í þeim löndum. Gert er ráð fyrir í frv. að hjón telji sameiginlega fram allar tekjur sínar og eignir á svipaðan hátt og verið hefur. Frá þessum sameiginlegu tekjum sé síðan dreginn sá frádráttur sem frv. heimilar. Mismunur af þessum tölum, svonefndur tekjuskattsstofn, er síðan tekinn og honum skipt til jafns í tvo helminga og skattur hjóna reiknaður af hvorum helmingi fyrir sig. Vinni hjónin sameiginlega meira en tólf mánuði á ári utan heimilis fá þau síðan tvenns konar afslætti frá skatti vegna þess aukakostnaðar sem af slíkri útivinnu leiðir. Er annars vegar svonefndur heimilisafsláttur sem hjónum hlotnast án tillits til þess hvort þau hafa börn á framfæri sínu eða ekki. Hins vegar er svonefndur barnabótaauki sem einungis veitist þeim hjónum sem hafa börn á framfæri sínu. Gengur hann til skuldajafnaðar öðrum opinberum gjöldum, en greiðist út ef eitthvað er þá eftir á sama hátt og barnabætur samkv. gildandi lögum. Þegar skattur hjóna hefur þannig verið reiknaður út sitt í hvoru lagi fyrir hvort hjóna um sig er hann sameinaður og birtur í einu lagi eftir nánari ákvæðum ríkisskattstjóra og innheimtur á svipaðan hátt og verið hefur, þannig að hjón bera ábyrgð á sköttum hvort annars á sama hátt og hingað til hefur gilt.
Frv. gerir ekki mun á gjaldendum eftir kynferði, gagnstætt því sem gildandi lög gera. Hugtökin karl eða kona koma ekki fyrir í frv., heldur er einungis rætt um einstaklinga eða hjón, og skiptir samkv. frv. ekki máli hvort hjónanna aflar tekna. Það hagræði, sem hjón hafa af þeim breytingum sem í frv. felast, er að mestu leyti óháð því hversu tekjuhá þau eru, gagnstætt 50% frádráttarheimildinni í gildandi lögum sem kemur konum þeim mun betur því hærri tekjur sem þær hafa. Áhrif frv. verða þau, að skattar hjá þeim hjónum, þar sem konan hefur ekki unnið utan heimills, lækka nokkuð. Hins vegar munu skattar þeirra hjóna, þar sem konan vinnur fyrir tiltölulega háum launatekjum, breytast til hækkunar.
Ef við tökum dæmi af hjónum sem eiga tvö börn þar sem bæði vinna úti allan daginn, þá munu skattar þeirra standa í stað ef konan hefur um 1150 þús. kr. í laun. Hafi kona hærri laun munu skattarnir hækka nokkuð, en á hinn bóginn hreyfast heldur niður á við ef hún hefur lægri laun. Þessu til skýringar vil ég nefna nokkur dæmi.
Meðallaun iðnverkakvenna, sem unnu allan daginn, voru í fyrra 875 þús. kr. Ef við hugsum okkur að slík kona hefði verið gift verkamanni í fiskiðnaði, en meðaltekjur þeirra voru á sama ári 1100 þús. kr., þannig að heildartekjur heimilisins voru tæplega 2 millj., þá mun hagur þessara hjóna við frv. batna um 47 600 kr., þ. e. a. s. 47 600 kr. munu til viðbótar því, sem nú er, verða greiddar upp í útsvör þessara hjóna, þannig að heildargreiðslan verður 99 200 kr. upp í útsvar.
Ef við tökum hins vegar það dæmi að bæði hjóna vinni við fiskvinnslustörf og hafi hvort um sig 1.1 millj. kr. í tekjur af þeim störfum, sem eru meðallaun í þeirri grein, þannig að heildartekjur heimilisins verði 2.2 millj., þá hækkar sú upphæð, sem ríkissjóður greiðir upp í útsvar þessara hjóna, um 7 200 kr. eða úr 5 þús. kr. í 12 200 kr. Ef tekjur konunnar fara hins vegar yfir 1150 þús. kr. markið fer breytingin að verða þeim hjónum heldur óhagstæð.
Ef við tökum dæmi um hjúkrunarkonu sem hafði meðallaun þeirra kvenna sem unnu allt árið í fyrra, 1415 þús. kr., og látum hana vera gifta grunnskólakennara sem hafði 1470 þús. kr. í laun, sem sömuleiðis er nærri meðallagi þeirrar stéttar, þá eykst skattbyrði þessara hjóna úr 193 400 kr. í 250 700 kr. eða um 57 300 kr. Og ef við látum bæði hjóna vera löglærða fulltrúa í þjónustu ríkisins sem vinna fulla dagvinnu og þar að auki tvo yfirvinnutíma á dag, þannig að heildarárslaun hvors um sig verði 1620 þús. kr., þá eykst skattbyrði þeirra hjóna úr 291500 kr. í 386 900 kr. eða um 95 400 kr.
Hér hef ég tekið nokkur dæmi til samanburðar á skattlagningu skv. gildandi lögum og frv. í þeim öllum hafa bæði hjónin unnið úti. Eins og sést á þessum dæmum er frv. hagstætt þeim konum sem unnið hafa úti fyrir minna en 1150 þús. kr., en hins vegar óhagstætt þar sem konan vinnur fyrir meiri tekjum. Hins vegar verður að hafa í huga að það, sem við miðum við, eru reglur gildandi laga um skattlagningu hjóna, og því verður ekki neitað að þær eru ákaflega ósanngjarnar — og eru þær konur, sem til sín hafa látið heyra, þessu sammála. Við getum tekið dæmi þar sem heildartekjur heimilisins eru 3 millj. kr. Ef eiginmaðurinn vinnur fyrir þeim öllum borga þessi hjón skv. gildandi lögum 415 600 kr. í skatt. Ef eiginmaðurinn vinnur fyrir 2 millj. kr., en konan fyrir 1 millj., greiða hjónin 213 600 kr. í skatt. Vinni hins vegar konan fyrir öllum tekjunum, þ. e. a. s. 3 millj., þá greiðir ríkissjóður upp í útsvar þessara hjóna 121900 kr. með barnabótum. Af þessu sést að það munar hvorki meira né minna en 536 þús. kr. á skattgreiðslu þessara hjóna eftir því hvernig þau skipta með sér verkum utan heimilisins. Það eru breytingar frá þessum sköttum sem við erum að miða við. Sannleikurinn er sá, að 50% frádráttarreglan á launum eiginkvenna hefur gengið sér til húðar. Í henni felst að skattalegt hagræði vex í réttu hlutfalli við auknar tekjur, en helst ekki á neinn hátt í hendur við þann kostnað sem leiðir af öflun teknanna. Frá þessu kerfi er horfið með frv., og það er einmitt þess vegna sem giftar konur með tekjur yfir 1150 þús. kr. fá skatthækkun samanborið við gildandi skattalög, en 10–15% giftra kvenna, sem vinna utan heimilis, höfðu á s. l. ári hærri tekjur en nam 1150 þús. kr. Breytingin mun því verða tiltölulega fáum hjónum óhagstæð, en mun kosta ríkissjóð um í milljarð kr. og koma öðrum hjónum til góða.
Með 6. gr. frv. er gerð till. um breytingu á reglum um skattlagningu barna. Skv. gildandi lögum er meginreglan sú, að börn eru skattlögð með foreldrum sínum. Ef þau hafa hins vegar tekjur umfram visst mark er heimilt að taka til greina umsókn þeirra um sérsköttun. Núgildandi kerfi veldur því að fyrstu krónurnar eru skattlagðar með tekjum foreldra og lenda því í tiltölulega háu skattþrepi. Afli barnið meiri tekna er það skattfrjálst af þeim tekjum. Skattur á tekjum barna lækkar því skv. gildandi lögum við hækkandi tekjur. Frv. gerir ráð fyrir því að tekjur barna séu ávallt taldar með tekjum foreldra þess, hins vegar geti foreldrarnir dregið frá tekjum sínum fjárhæð sem er jafnhá tekjum barns, allt að 100 þús. kr., og að auki 60% af þeirri fjárhæð, sem tekjur barnsins fara yfir 100 þús., allt að 340 þús. kr.
Óþarft er að fara hér mörgum orðum um ákvæði frv. um eignarskatt. Gert er ráð fyrir hækkuðum mörkum hinnar skattfrjálsu eignar sem samsvarar u. þ. b. meðalhækkun á fasteignamati sem gekk í gildi fyrir árslok 1976 eða um 6 millj. kr. hjá einstaklingi. Þá miðast skattlagningin við skiptingu eigna milli hjóna til samræmis við stefnu frv. í því efni. Hin skattfrjálsu mörk fyrir hjón eru sett við 50% hærri fjárhæð en fyrir einstakling eða 9 millj. kr. Skv. gildandi lögum eru þessi mörk hin sömu fyrir einstakling og hjón. Þykir eðlilegt að þessi mörk séu hærri fyrir hjón en einstakling með sama hætti og persónuafsláttur við álagningu tekjuskatts. Gerð er sú breyting að eignarskattur verði flatur, 0.8%, í stað stighækkunar gildandi laga, 0.6 og 1%.
Auk þess, sem þegar er vikið að, eru með frv. gerðar fjölmargar aðrar breytingar á skattlagningu einstaklinga sem of langt mál yrði að rekja hér. Áður en ég skilst við þennan þátt vil ég þó geta þeirra breyttu reglna um skattfrelsi sparifjár sem frv. hefur að geyma. Skv. gildandi lögum eru innistæður í bönkum, sparisjóðum og löglegum innlánsdeildum félaga undanþegnar framtalsskyldu, tekjuskatti og eignarskatti ef tilteknum skilyrðum er fullnægt, og varða þau skilyrði skuldastöðu gjaldanda í árslok. Með frv. er gert ráð fyrir að sparifé þetta verði ávallt framtalsskylt, en hins vegar verði það skattfrjálst eftir svipuðum reglum og áður, þó þannig að skilyrði fyrir skattfrelsi miðast nú við vaxtagreiðslur á árinu, en ekki skuldastöðuna í árslok.
Í 2. málsgr. 1. tölul. 4. gr. frv. er eitt af þeim nýmælum sem frv. hefur að geyma og þegar hefur verið getið, en vert er að skýra nánar. Samkv. þessari málsgr. ber þeim, er vinna við eigin atvinnurekstur eða sjálfstæða starfsemi, að telja sér til tekna endurgjald fyrir starfið eins og það hefði verið innt af hendi fyrir óskyldan aðila. Samkv. 56. gr. er svo skattstjóra heimilt að ákvarða þessum aðilum slíkar tekjur ef framtalið endurgjald fyrir eigin vinnu er lægra en eðlileg laun til launþega hefðu verið fyrir sama starf. Skulu þessar ákvarðanir skattstjóra byggðar annars vegar á viðmiðunarreglum er ríkisskattstjóri setur, en hins vegar á mati skattstjóra á aðstöðu hlutaðeigandi gjaldanda, og skal þá taka tillit til aldurs, heilsu, starfstíma, umfangs starfsins og annarra atriða er máli skipta. Þetta reiknaða endurgjald er síðan frádráttarbært frá tekjum af rekstrinum eða hinni sjálfstæðu starfsemi eins og hver annar launakostnaður. Í framhaldi af þessu eru svo ákvæði 58. gr. frv., þess efnis, að tap af atvinnurekstri eða sjálfstæðri starfsemi sé aldrei heimilt að draga frá tekjum sem ekki eru tengdar slíkri starfsemi.
Þessi ákvæði eru að vissu leyti svar við þeirri miklu gagnrýni sem tekjuskattslöggjöfin hefur sætt á undanförnum árum að því er varðar skattlagningu þeirra er við eigin rekstur vinna. Tekjuskatturinn hefur af ýmsum verið nefndur launþegaskattur. Að mínu mati er þetta ekki réttnefni. En hinu er ekki að neita, að einstaklingar með sjálfstæðan atvinnurekstur hafa átt fleiri kosta völ en launþegar, t.d. með fjárfestingum og fyrningum, til að firra sig skattgreiðslum með fullkomlega löglegum hætti. Hér er lagt til að við þessum vanda verði snúist með reiknuðum launum þessara aðila. Þessi lausn á vandanum er engan veginn gallalaus, en vandamálið er erfitt viðfangs og þær aðferðir, sem grannar okkar, t. d. danir, hafa beitt, hafa ekki gefið góða raun. Reglur í Danmörku, sem svipuðum tilgangi þjóna, lúta að því að heimild atvinnurekenda til fyrninga er takmörkuð ef lífeyrir þeirra fer niður fyrir eðlilegt mark. Hvort sú aðferð, sem frv. gerir ráð fyrir, gefur góða raun fer að sjálfsögðu mikið eftir því hvernig til tekst um framkvæmd hennar ef að lögum verður. Í mörg ár hefur svipað kerfi og þetta gilt um launaskatt af eigin vinnu atvinnurekenda, án þess að verulegum deilum hafi valdið. Þar sem skatthlutfall launaskattsins er einungis 3.5%, en jaðarskattur af þessum launum getur verið allt að 50%, er hætt við að sú reynsla, sem fengist hefur af launaskattinum, sé ekki marktæk að því er þetta varðar.
Frv. hefur og að geyma nýmæli um skattlagningu atvinnurekstrar og eru hinar breyttu reglur um fyrningar og söluhagnað hin veigamestu þeirra. Samkv. gildandi lögum er fyrning þeirra eigna, sem notaðar eru til öflunar tekna í atvinnurekstri, reiknuð sem ákveðið hlutfall af upprunalegu stofnverði hverrar einstakrar eignar, mishátt eftir tegundum eigna. Séu þessar eignir seldar er söluhagnaður skattskyldur nema eignarhaldstími seljanda fari fram úr tilteknu marki sem er mismunandi eftir tegundum eigna. Frv. gerir ráð fyrir að þessum reglum verði gjörbreytt og eru breytingarnar róttækastar að því er varðar lausafé. Er lagt til að lausafé verði nú fyrnt í einu lagi á bókfærðu verði alls lausafjár í árslok í stað þess að reikna fyrningu af stofnverði hverrar eignar. Þessi aðferð er notuð í flestum grannlöndum okkar og hefur það til síns ágætis að hún er ákaflega einföld í framkvæmd og ætti að geta haft í för með sér verulegan tímasparnað, bæði hjá atvinnurekendum og skattyfirvöldum. Skattaðila er í sjálfsvald sett samkv. frv. hvaða fyrningarhlutfall hann velur, þó ekki hærra en 30%. Þessi regla heimilar því tiltölulega mjög örar fyrningar í upphafi eignarhaldstíma meðan eign er ný, þ. e. rúmlega 50% á fyrstu tveimur eignarhaldsárum, en síðan fara fyrningar stiglækkandi eftir því sem aldur færist á eignina. Er þessi regla því mjög eðlileg miðað við þá verðbólgu sem við höfum búið við undanfarið, þar sem verulegur hluti af stofnverði fæst gjaldfærður á meðan raungildi þess er að mestu óskert. Enginn sérstakur söluhagnaður er reiknaður af lausafé skv. þessari reglu, en söluverð lausafjáreignar lækkar bókfært verð allra lausafjáreignanna þannig að söluhagnaður kemur í reynd til skattlagningar í formi lækkaðra fyrninga næstu árin eftir söluna. Verði fyrningargrunnur lausafjáreigna neikvæður vegna sölu eða af öðrum ástæðum telst hinn neikvæði munur til tekna á því ári sem hann myndast. Þó er heimilt að nota þennan mun til þess að fyrna fasteignir eða fresta skattlagningu hans um tvenn áramót og nota hann til að fyrna eignir sem keyptar eru innan þess tíma. Gert er ráð fyrir að fyrning mannvirkja verði eftir sem áður reiknuð af kostnaðarverði þeirra og megi nema allt að 10% árlega að vali skattaðila Þó er fjmrh. heimilt að lækka þetta hámark fyrir einstaka flokka mannvirkja um þessar eignir, og haldið er því ákvæði gildandi laga að ávallt skuli standa eftir 10% af fyrningargrunni hverrar eignar sem niðurlagsverð.
Um hagnað af sölu annarra eigna en lausafjár er meginregla frv. sú, að söluhagnaður fyrnanlegra eigna svo og ófyrnanlegra fasteigna, annarra en íbúðarhúsnæðis, er skattskyldur án tillits til eignarhaldstíma. Að því er fasteignir varðar er hins vegar tekið tillit til vísitöluhækkunar áður en söluhagnaður er reiknaður, og jafnan er heimilt að nota framreiknað fasteignamat eins og það var í ársbyrjun 1977, þ. e. a. s. byrjun þessa árs, í stað stofnverðs við útreikning söluhagnaðar af þessum eignum. Hvað sem öðru líður er skattaðila jafnan heimilt að telja sér helming söluverðs til tekna í stað söluhagnaðar af þessum eignum. Má segja að í heild sé lagt til að reglurnar um söluhagnað séu nokkuð hertar og stefnt sé að því að koma í veg fyrir að menn geti með kaupum og sölum eða eignaskiptum hagnast á því skattalega að skapa sér nýjan fyrningargrunn án þess að gjalda skatt af söluhagnaði. Í reynd er stefnt að því að skattlagning söluhagnaðar af lausafé og íbúðarhúsnæði einstaklinga verða ekki óhagstæðari en nú er.
Ég mun nú rekja helstu ákvæði frv. um skattframkvæmd sem fela í sér breytingar frá gildandi lögum. Er þar fyrst að nefna að skipan ríkisskattanefndar er gjörbreytt frá gildandi lögum. Ríkisskattanefnd er nú skipuð þremur mönnum og þremur til vara og taka allir þessir sex menn að þó nokkru leyti þátt í störfum n. Nefndarstörfin eru aukastörf allra nefndarmanna. Með frv. er lagt til að framvegis sitji í ríkisskattanefnd þrír menn sem hafi nefndarstörfin að aðalstarfi. Þessi nýja tilhögun ætti að styrkja ríkisskattanefnd verulega og færa hana skrefi nær því að vera stjórnsýsludómstóll. Verður að telja þessa hreytingu mjög eðlilega miðað við það mikla hlutverk sem nefndinni er ætlað við úrskurði á kærum í skattakerfinu. Jafnframt þessu er lagt til að hin sérstaka n., sem samkv. gildandi lögum hefur ákveðið skattsektir, verði lögð niður, en ríkisskattanefnd taki við verkefnum hennar. Ætti ríkisskattanefnd að geta sinnt þessum auknu verkefnum eftir þá nýskipun sem nú var lýst. Þá er ríkisskattanefnd fengið nýtt hlutverk, sem er fyrirframskýringar á tilteknum atriðum er varða framkvæmd á einstökum ákvæðum skattalaganna. Hefur verið mjög bagalegt fyrir gjaldendur að geta ekki fengið óyggjandi svar fyrir fram við því, hvernig skattlagningu yrði hagað í tilteknu tilvíki. Eins hefur það verið mjög bagalegt fyrir skattyfirvöld ef í ljós hefur komið eftir langvarandi venju, þegar ríkisskattanefnd úrskurðar, að þær framkvæmdareglur, sem starfað hefur verið eftir jafnvel árum saman, standist ekki samkv. lögum. Því er ríkisskattstjóra heimilað að leita úrskurðar ríkisskattanefndar um túlkun einstakra ákvæða laganna. Skal ríkisskattstjóri þá gera kröfur um, að tiltekinn skilningur verði viðurkenndur, og rökstyðja þá kröfu sína. Slíkum fyrirframúrskurði er ekki hægt að skjóta til dómstóla, en hann kemur vitanlega ekki í veg fyrir að einstöku máli, sem síðar kemur upp, verði skotið til dómstóla af hálfu ríkisins eða þess einstaklings sem í hlut á. Þessi regla er algert nýmæli á Íslandi, þar sem gildandi meginregla er sú að úrskurðaraðilar fjalla ekki um slík álitaefni fyrir fram, heldur leggja einungis dóm eða úrskurð á tiltekið verkefni sem fyrir þá er lagt. Það kann því vel að vera að í þessu sambandi komi upp ýmis vandamál í framkvæmd. Telja verður nauðsynlegt að taka þá áhættu þar sem hér er um að ræða mjög mikilsvert hagsmunaatriði bæði fyrir gjaldendur og skattyfirvöld.
Þá er reglunum um framkvæmd við álagningu skatta, tilkynningar til gjaldenda, útkomutíma og réttarlega þýðingu skattskrár verulega breytt, eins og ég vék að þér áðan. Samkv. gildandi lögum skal skattskrá koma út eigi síðar en 20. júní ár hvert og miðast kærufrestur við útkomu hennar. Hefur skattstofunum á hinum seinni árum reynst mjög erfitt að standa við þennan frest og hefur skattskráin komið mun seinna út hin síðari ár víðast hvar á landinu. Á hinum tiltölulega stutta tíma, sem líður frá lokum framtalsfrests til útkomu skattskrár, hafa skattstjórar og skattstofur leitast við að yfirfara öll framtöl, en sú yfirferð hefur ekki verið eins ítarleg og skyldi vegna skorts á tíma og mannafla. Reyndin hefur því orðið sú, að aftur er farið yfir mikinn hluta framtala eftir útkomu skattskrár og hefur þetta fyrirkomulag því leitt til mikils tvíverknaðar á skattstofunum. Af þessu hefur og leitt að upplýsingar þær um skatta, sem skattskráin hefur að geyma, eru ekki eins áreiðanlegar og skyldi, svo að mikill fjöldi gjaldenda ber aðra skatta, þegar yfir lýkur, heldur en hin framlagða skattskrá ber með sér.
Í frv. er ætlast til að hin einfaldari framtöl verði tekin lítið skoðuð og á þau lagt samkv. upplýsingum gjaldanda sjálfs og hverjum gjaldanda send tilkynning um álagningu. Kærufrestur miðast við tilkynningar og ættu kærur með þessari aðferð að dreifast jafnar yfir árið. Í árslok ætti síðan að vera búið að fara yfir öll framtöl og úrskurða flestar kærur og þá er ráðgert að skattskráin komi út. Við hana eru ekki bundin nein réttaráhrif skv. frv. Hins vegar ætti hún að gefa miklu nákvæmari og réttari upplýsingar um endanlega skatta hvers gjaldanda heldur en skattskráin gerir með núgildandi fyrirkomulagi. Fyrirhugað er að beita aukinni vélvinnslu við yfirferð framtala og samanburð á upplýsingum úr framtölum og öðrum upplýsingum sem skattstofunum berast. Ætti þessi nýja aðferð að auðvelda slíka vélvinnslu.
Þá eru viðurlög við skattsvikum hert verulega og sett mun ítarlegri ákvæði um ýmis atriði, er varða innheimtu og ábyrgð á skatti, heldur en er samkv. gildandi lögum. Gert er ráð fyrir að ákvæði frv. komi til framkvæmda við álagningu skatta á árinu 1978 vegna tekna á árinu 1977 og eigna í lok þess árs. Tölur þær, sem frv. hefur að geyma, eru hins vegar miðaðar við verðlag á árinu 1976. Er þá ráðgert að fjárhæðir þær, sem um getur í frv., verði hækkaðar eftir skattvísitölu sem ákveðin yrði í fjárl. fyrir árið 1978 áður en þær koma til framkvæmda í fyrsta skipti. Ákvæðum frv. er því ekki ætlað að koma til framkvæmda við álagningu í ár.
Það er hins vegar ljóst að nokkrar af þeim breyt., sem lagðar eru til í þessu frv., þurfa að koma til framkvæmda í ár. Unnið er að samningu frv. þar að lútandi. Meðal þeirra atriða, sem koma þurfa til framkvæmda við álagningu skatta ársins 1977, eru ákvæðin um breytingu eignarskattsstigans og hækkun skattfrjálsrar fjárhæðar einstaklinga við álagningu eignarskatts. Fyrningar fasteigna í atvinnurekstri til skattlagningar 1977 miðist við eldra fasteignamatið, sem gilti til 30. des. á s. l. ári. Önnur atriði, sem til greina kemur að breyta við álagningu skatta á árinu 1977, eru til skoðunar.
Fjh.- og viðskn. þessarar hv. d. fær mál þetta nú til meðferðar. Leyfi ég mér að leggja til að fjh.- og viðskn. beggja þd. starfi saman að skoðun þessa frv. Veit ég að n. munu vanda sem mest þær mega athugun á þessu máli.
Mér er ljóst að innan þings sem utan sýnist sitt hverjum um ýmis ákvæði frv. En ég tek það fram að af minni hálfu eða ríkisstj. er ekkert því til fyrirstöðu að brtt., sem tryggja betur þau meginmarkmið sem felast í frv. þessu, verði teknar til greina. Ég tel meðferð þessa máls nokkurn prófstein á getu Alþ. til að ráða fram úr vandasömu löggjafaratriði sem snertir hagsmuni flestra landsmanna.
Það er enginn vandi að fordæma frv. eins og þetta með því einu að benda á hvernig það þyngir í ýmsum tilvíkum skatta á fólki. Sömu gagnrýnendur benda jafnframt á að gildandi fríðindi séu óeðlileg og þau beri að afnema. Við heyrðum t. d. í útvarpinu í síðustu viku að kona nokkur taldi aðalranglætisþáttinn í þessu meingallaða frv., eins og hún orðaði það, að skattar skuli hækka á hjónum þar sem konan er með það sem hún kallaði meðaltekjur og hærri meðaltekjur. Hér er um að ræða þau 10–15% af útivinnandi giftum konum sem mestra fríðinda njóta samkv. gildandi lögum. Að breyta þessu kallaði hún forpokunarstefnu, afturhald og forheimskun“. Í dæmi, sem konan nefndi til marks um þetta, fannst henni ósanngjarnt að tekjuskattur hjóna, sem þannig stendur á fyrir, verði 12.6% af brúttótekjum, um leið og henni fannst fráleitt að skattur hjóna með nokkru hærri tekjur, þar sem maðurinn aflar einn tekna, verði 22%, sömuleiðis af brúttótekjum. Við þessar aðstæður er okkur stjórnmálamönnum ætlað að finna réttlætið og það verður aldrei gert svo að öllum líki.
Ég vil minna á í þessu sambandi að fjölmiðlar eru og verða næstu víkur fullir af efni af þessu tagi, og við eigum að hlusta á það og reyna að taka tillit til þess eftir því sem það samræmist okkar eigin sannfæringu. Hinu megum við ekki gleyma, að við heyrum ekkert frá flestum skattþegnum. Við heyrum engar fundarsamþykktir og lesum engar greinar frá öllum þeim hjónum í landinu sem búin eru að koma börnum sínum á legg, eiga sína íbúð skuldlitla og borga nú óeðlilega háa skatta í samanburði við þá sem nú láta hæst við tilhugsunina um að missa hluta af sínum forréttindum.
Ég vil ljúka máli mínu með því að fara nokkrum orðum um það sem ég tel að þurfi að gerast á sviði tekjuöflunar ríkisins innan þings og utan næstu missiri.
Ljóst er, eins og ég gat um fyrr í máli mínu, að endurskoðun á tekjuöflun ríkisins verður að halda áfram með kerfisbundnum hætti, m. a. vegna þeirra laga sem þegar hafa verið samþ. um tollskrá og valda stórfelldum tolltekjumissi ár hvert fram til 1980. Ég mun láta vinna að undirbúningi nauðsynlegrar lagaendurskoðunar í þessu skyni. Of snemmt er að tala um hvaða lausnir kunna að verða ákjósanlegar 3 þessu efni. Ég mun jöfnum höndum láta kanna möguleika til þess að mæta þessum niðurskurði með samdrætti í starfsemi ríkisins.
Í framkvæmd skattlaga bíða einnig mikil verkefni óleyst: endurskipulagning starfsaðferða á skattstofum, aukning tölvuúrvinnslu framtala, bætt almennt og sérstakt skatteftirlit, markviss þjálfun skattstofufólks og e.t.v. fjölgun starfsfólks við skatteftirlit og margt fleira. Hinn 1. febr. s. l. ritaði ég ríkisskattstjóra bréf þar sem ég óskaði eftir því, að mat væri lagt á réttmæti þeirrar gagnrýni sem fram hefur komið á misjafna skattaframkvæmd í hinum ýmsu skattumdæmum, og gerðar yrðu till., ef nauðsyn krefði, um aðgerðir sem stuðlað gætu að virkari og samræmdari framkvæmd skattalaga í landinu. Allt eru þetta viðfangsefni sem unnið er að eða er ráðgert að vinna að á vegum fjmrn.
Að svo mæltu legg ég til, virðulegi forseti, að frv. þessu verði vísað til 2. umr. og hv. fjh.- og viðskn.