08.02.1977
Sameinað þing: 47. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 1884 í B-deild Alþingistíðinda. (1476)
155. mál, fiskveiðiheimildir Íslendinga og Færeyinga
Benedikt Gröndal:
Herra forseti. Þingflokkur Alþfl. hefur fjallað um þessa till. og samþykkt að styðja framgang hennar hér á þingi.
Af þeim ástæðum, sem við tilgreinum, vil ég telja fyrsta tilvísun til þess frumvarps til hafréttar sem nú liggur fyrir Sameinuðu þjóðunum, en þetta mál fellur beint undir 50. og 51. gr. sem eru meðal þeirra er lítil átök hafa verið um í seinni tíð og allar líkur eru á að nái samþykki. Ég harma að þetta skyldi ekki vera nefnt í athugasemdum við þáltill., en fagna því um leið að hæstv. utanrrh. nefndi þetta atriði. Ég tel að þetta séu nokkur rök um það hvernig við störfum í þessum málum í skiptum við aðrar þjóðir um aðra ásókn um veiðiheimildir.
Samkvæmt ákvæðum í 50 gr. hefðu íslensk yfirvöld átt að meta að sínu leyti hver hámarksafli af loðnu gæti verið, en það var einmitt eitt af meginatriðum sem við börðumst fyrir á þessum ráðstefnum, að það yrði mál strandríkisins eins að láta slíkt mat fara fram. Hæstv. ráðh. lýsir yfir að fiskifræðingar okkar telji loðnustofninn þola þessa samninga vel, svo að efnislega liggur þetta fyrir og þyrfti að koma vel fram.
Framhaldið er að vísu nokkuð ákveðnara í þessum ákvæðum heldur en hæstv. ráðh. fór með þau, því að það er skylda strandríkisins að vinna að fullri hagnýtingu hvers stofns, og því ber að veita öðrum ríkjum veiðiheimildir ef það getur ekki sjálft tekið allt það magn af ákveðnum stofni sem veiða má.
Sjálfsagt má deila um hvort það sé rétt mat að við getum ekki veitt meira af loðnustofninum en óhætt er að taka. Mér virðist að við höfum flota til þess, um það verður varla deilt, en verksmiðjukosturinn er ekki í því lagi að hann geti við því tekið á viðunandi efnahagslegan hátt. Við misstum af stórvirku verksmiðjuskipi, Norglobal, sem við höfðum mikinn áhuga á að fá, og bendir það einnig til þess að við höfum búist við meiri afla heldur en verksmiðjur okkar geta annað.
Í öðru lagi vil ég taka fram, að ég tel þennan samning vera allgóða röksemd gagnvart þeim sem sækjast eftir veiðiheimildum á öðrum fiskstofnum. Það er haldið uppi illkvittnum áróðri gegn okkur, sérstaklega í Bretlandi, og okkur er lýst sem hálfgerðum ribböldum sem ekki eigi neina sanngirni til. Með þessum tiltölulega litla samningi sýnum við þó að þar sem um er að ræða stofn þar sem við teljum okkur aflögufæra eða ekki geta fullnýtt einir, þá gerum við það sem til er ætlast í drögum að alþjóðasáttmálanum sem ég áður nefndi. Við veitum annarri þjóð veiðiheimild. Þetta dæmi tel ég, þó að það sé ekki stórt, innlegg inn í deilur við aðra sem sækja til miklu alvarlegri veiðiheimilda hér á landi í viðkvæmari stofna heldur en loðnuna. Ég vil þó taka það skýrt fram, og það verðum við ávallt að gera, að þessi samningur við færeyinga er ekkert fordæmi um samninga við aðra viðkomandi öðrum fiskstofnum, nema sannanlega hafi skapast þær ástæður að við getum ekki sjálfir veitt þá stofna eins og heimilt er.
Að lokum vil ég taka fram, að samþykki við þetta samkomulag við færeyinga breytir engu um afstöðu Alþfl. til fyrra samnings um þorskafla þeirra hér við land. Við vorum á sínum tíma mótfallnir þeim samningi og teljum að við þyrftum að losna við hann sem allra fyrst eins og aðra samninga um veiðar á þorski og öðrum tegundum sem viðkvæmastar eru.