09.02.1977
Efri deild: 42. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 1918 í B-deild Alþingistíðinda. (1496)

153. mál, áfengislög

Jón G. Sólnes:

Herra forseti. Ég skal nú ekki lengja þessar umr. mjög. Aðeins að gefnu tilefni vil ég taka það alveg skýrt fram, að þegar ég var að ræða um að það kæmi stundum fyrir að þessi mál væru rædd af ofstæki og tilfinningasemi, þar átti ég vissulega ekki — ég hélt ég hefði tekið það fram í ræðu minni — þar átti ég ekki við hv. flm. þessa frv. sem í alla staði eru þekktir að öðru en því að bera slíkt á borð. Þetta eru hófsamir, ráðsettir menn sem bera sínar till. fram heils hugar að mjög íhuguðu máli.

Ég kemst ekki hjá því að gera smáathugasemd við ummæli hv. 2. þm. Reykn., þar sem hann sagði að það væri eitt sem hvarvetna hefði komið að haldi, það væru hömlur og þá alveg sérstaklega fjárhagslegar. Mér er það mjög til efs. Ég held að í því ríki, sem víðfeðmast er og hvað dýrkeyptasta reynslu hefur af hömlum, Bandaríkjunum, þegar þau reyndu þessa hömluleið, settu á algert áfengisbann, þá skilst mér að sú framkvæmd hafi skapað svo stórkostlega glæpaöldu og glæpahneigð að sjaldan hafi meira gengið yfir af slíku hjá þeirri þjóð. Sumir segja að þeir séu ekki enn búnir að bíða þess bætur. Ég verð því að hryggja vin minn, hv. 2. þm. Reykn., að ég er honum algjörlega ósammála um að hömlur sem slíkar lækni þau miklu vandamál sem hér er um að ræða, að ég tali nú ekki um fjárhagslegar hömlur, heldur að þær auki á óhamingjuna sem notkun áfengis fylgir.

Mönnum er mjög gjarnt, þegar þeir ræða þessi mál, að vísa til bannáranna. Ég skal viðurkenna að ég get ekki talað af reynslu um þau mál. Ég var það ungur þegar síðustu tætlurnar af áfengisbanninu voru við lýði, að ég man það ekki gjörla. Aðeins vil ég í því sambandi benda á að allar aðstæður eru allt aðrar nú en þær voru þá. Þá nutum við, ef svo mætti segja, einangrunar þannig að það var tiltölulega auðvelt að viðhalda banni hér, að framfylgja lögum um aðflutningsbann. En miðað við þær aðstæður sem þjóðin býr við í dag, þá held ég að engum dytti í hug að það sé nokkur vegur að framfylgja slíku banni þannig að það kæmi að nokkrum notum, eins og nú er ástatt með samgöngur milli þjóðarinnar og umheimsins.

Hv. ræðumenn sem hér hafa talað fyrir þessu frv., hafa gert sér nokkuð tíðrætt um reynslu svía í þessum málum og till. og ábendingar sem þaðan hafa komið. Ég vil aðeins taka það fram, að ég geri ákaflega lítið með reynslu svía og till. og ábendingar sem koma þaðan. Þó margt sé hægt að finna til ágætis þeirri göfugu þjóð, svíum, þá held ég að hvernig þeir hafa haldið á áfengismálum alla tið. það sé ekki til fyrirmyndar. Yfirskinið og yfirdrepsskapurinn hafa verið svo mikið í hávegum hjá heim að þeir hafa aldrei náð neinu valdi á meðferð þeirra mála og það er orðið svo, að þeir eru orðnir að viðundri í umheiminum, því eiginlega hvarvetna a. m. k. hér í Evrópu þar sem sést ölvaður maður á almannafæri, þá er fyrsta hugsunin: Þetta er svíi. — Þannig hafa þeir haldið á þeim málum. Ég tel því mjög vafasamt að það sé hægt að hafa reynslu svía sem nokkurn grundvöll til viðmiðunar, hvað þá að till. þeirra til úrbóta séu miklu betri. Þeim er mjög tamt að nefna fé, en þeir eru ríkir og þeir geta vel eytt fjármunum og það miklum fjármunum. Stundum nýta þeir þá kannske nokkuð vel, en persónulega hef ég enga trú á lausnum þeirra í þessum málum og vil ógjarnan hlíta leiðsögu þeirra, því þó að þeir hafi margt vel gert, þá hefur þeim mistekist hrapallega í þessum málum.

Ég vil svo til að taka af öll tvímæli rétt minnast á í sambandi við ummæli hv. 2. þm. Vestf., að ég held að það gæti misskilnings hjá honum, ef hann hefur tekið mál mitt þannig, að ég hafi haldið því fram að sterkt öl hafi aukið menningu og siðgæði einhverrar þjóðar. Það var ekki meginmál skoðana minna í sambandi við afgreiðslu þessa frv. Hitt er það, að ég fer ekki ofan af því að það þykir ákaflega andhælislegt að koma til lands eins og okkar þar sem, eins og ég lýsti áðan, er hægt að kaupa sterka, brennda drykki í ótakmörkuðum mæli, en milliöl og áfengt öl er algjör bannvara. Það þykir ekki bera vott um að menn hafi öðlast þann þroska sem talinn er nauðsynlegur til þess að geta umgengist slík mál á menningarlegan hátt, ef leyfist að tala um það.

Hv. 7. landsk. þm. var mér nokkuð sammála um það, eins og hann orðaði það, að sambandsleysi við unglingana væri orðið áberandi mikið. Hv. þm. vildi kenna eldri kynslóðinni um það. Það má kannske til sanns vegar færa. Ég skal ekki fullyrða um það. Þar hefur hann meiri þekkingu og reynslu til að bera heldur en ég. En ég hygg að þarna sé um tíðaranda að ræða sem ákaflega sé erfitt að ráða við og hafa áhrif í þá átt að beina á annan veg. Skoðun mín er nú sú, að sú stefna, sem er uppi í félagsmálum þjóðarinnar og allir keppa nú að, ég undanskil engan stjórnmálaflokk, að allt uppeldi æskunnar á að fara út af heimilunum, á dagvistunarheimili, vöggustofur, leikskóla og skólavistunarheimili, burt af heimilunum, það kann ekki góðri lukku að stýra að mínum dómi. Ef svo heldur áfram um nokkra framtíð, þá hygg ég að sambandsleysið milli æskunnar og eldri kynslóðarinnar eigi eftir að verða mun meira en það er í dag — og eru menn þá ekki ánægðir! Ég held að ef við ætlum að lækna þetta sambandsleysi, þá sé best að hafa kúvendingu á þeirri stefnu, sem nú er ríkjandi í þjóðfélaginu, að uppeldi barnanna sé ekki á heimilunum. Heimilin eru að mínu mati hornsteinninn í þjóðfélaginu og þar á uppeldið að fara fram, en ekki á einhverjum opinberum stofnunum á kostnað skattborgaranna.

Hv. 7. landsk. þm. gerði mikið úr því að við byggjum við geysilegt frjálsræði í þeim málum sem snerta neyslu áfengra drykkja. Ég tel að það sé ekki alls kostar rétt. A. m. k. að mínum dómi, þá held ég að við séum með ákaflega margar og mjög vafasamar takmarkanir á því hvernig er farið með heimildir til neyslu áfengra drykkja. Nefni ég sem dæmi að það er eiginlega ekki hægt að kaupa hér minna en heila eða hálfa flösku. Það er ákaflega erfitt á auðveldan og eðlilegan hátt að kaupa sér, sem maður segir, glas af víni, heldur virðist skipulagið vera á þann hátt, að þetta er ein af stærstu tekjulindum ríkisins, og tilhögunin er á þann veg, að þú skalt annaðhvort vera hálfur eða fullur. Minna magn er þér ekki ætlað að taka á þægilegan hátt.

Það getur vel verið að það sé óskadraumurinn að afnema algerlega alla neyslu áfengis, sölu þess og framleiðslu og slíkt eigi líka við um tóbak og þess háttar neysluvörur. Þó veit ég ekki. Öllum kemur saman um að þetta örvandi lyf eða hvað við viljum kalla það, áfengi, sé einhvern veginn búið að vera fylgifiskur mannkynsins frá örófi alda. Sumir segja að þetta sé komið frá guði. Mér er mjög til efs að það sé í mannlegu valdi að útrýma því. Þess vegna held ég að það sé miklu skynsamlegra að viðurkenna þá staðreynd að mannkynið verður að búa með áfengi. Við getum ekki útrýmt því, og þess vegna er miklu skynsamlegra fyrir okkur að takast á við þann vanda sem umgengni við áfengi er, að við reynum að njóta kosta áfengisins sem vissulega eru gífurlega margir. Þetta er kannske skaðlausasti gleðigjafi sem mannkynið á, ef rétt er á haldið. Fyrir suma er það beinlínis heilsusamlegt og hollt að fá sér áfengi, jafnvel drekka sig fullan. Þeir hafa ekki minnsta skaða af því. Þetta þarf allt að vega og meta. Og það er með hliðsjón af þessum staðreyndum sem við eigum að ræða þessi mál. Við skulum fræða æskuna um þessi mál. Við skulum vara menn við. En við skulum umfram allt ekki vera með einhverjar tálvonir um að við getum útrýmt þessu. Fyrir utan það, að það er engin ástæða til þess. Þess þarf ekki. Ef skynsamlega er á haldið geta menn umgengist áfengi án þess að bíða tjón af.