14.10.1976
Efri deild: 3. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 14 í B-deild Alþingistíðinda. (15)
20. mál, Þjóðleikhús
Geir Gunnarsson:
Herra forseti. Ég ætla ekki að ræða um efni frv. að þessu sinni, ég gerði það í fyrra þegar það var lagt fram. Þá spurðist ég fyrir um þann kostnað sem ætla mætti að hlytist af samþykkt þessa frv, þegar væri farið að framkvæma lögin að öllu leyti, því það er gert ráð fyrir æðimörgum nýjum stöðum við Þjóðleikhúsið. Hæstv. ráðh, hét því þá að leggja upplýsingar um þennan kostnað fyrir menntmn. sem fékk frv. til meðferðar, en mér er kunnugt um að það varð aldrei af því að n. fengi þessar upplýsingar. Ég vil því spyrjast fyrir um það nú, hvort þm. gætu átt von á því að fá nánari upplýsingar um það hver kostnaður fylgir samþykkt þessa frv. ef það yrði framkvæmt að öllu leyti, hvort hæstv. ráðh. hafi það á takteinum eða hvort hann gæti nú látið verða af því að veita n. þessar umbeðnu upplýsingar sem beðið var um í fyrra. Jafnframt vildi ég fá upplýsingar um það, hvort gert er ráð fyrir því í hinu nýja fjárlagafrv. að að einhverju eða öllu leyti séu framkvæmd þau atriði sem hér er gert ráð fyrir varðandi ný störf.