11.02.1977
Sameinað þing: 50. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 2024 í B-deild Alþingistíðinda. (1513)

107. mál, söfnun og úrvinnsla íslenskra þjóðfræða

Flm. (Ásgeir Bjarnason) :

Herra forseti. Á þskj. 126 flytjum við fimm alþm. þáltill. um söfnun og úrvinnslu íslenskra þjóðfræða. Eins og till. þessi ber með sér fjallar hún um það að safna upplýsingum um líf og störf manna á liðnum áratugum og í öðru lagi að vinna úr þeim upplýsingum sem kunna að fást við söfnun þessa.

Það segir sig sjálft að íslenskir þjóðhættir, þ.e. lífsvenjur manna, vinnubrögð þeirra og listiðkun, hverfa úr huga fólks með hverju ári sem líður. Hvort tveggja er að aldnir falla í valinn og nýir siðir, nýir þjóðhættir ryðja sér braut og eldri venjur hverfa í skugga hins nýja.

Við íslendingar erum taldir vera þjóð sögu og sagna og viljum gjarnan vita sem mest frá liðinni tíð. Varla hittast svo tveir eða fleiri íslendingar að þeir vilji ekki vita um ættir hvor annars, helst ef hægt er til sögualdar. Þannig er ættfræðin okkur í blóð borin. Eins er með margt annað sagnfræðilegs eðlis sem okkur leikur hugur á að vita. Ættfræði er hægt að rekja eftir kirkjubókum. Stærstu viðburðir þjóðarinnar sem heildar eru einnig víða skráðir og hægt að fá þær upplýsingar síðar meir í dagblöðum, ritum og miklu víðar, ef vel er leitað. En líf og störf fyrri tíma eru ekki jafnaðgengileg, og því þarf að gera sérstaka gangskör að því að leita uppí þá eldri menn sem lifðu þessa tíma og geta sagt frá því sem algengt var í lífi og störfum þjóðarinnar fyrir mörgum áratugum.

Ýmsir munu hugsa sem svo að ekki liggi mikið á í þessum efnum, en það er fjarstæða, því að einmitt þeir, sem elstir eru og muna langt aftur í tímann, hverfa smám saman af sjónarsviðinu með hverju árinu sem líður. Því þarf að hraða söfnun þessari sem mest að hægt er.

Hálfnað er verk þá hafið er. S.l. sumar ferðuðust margir ungir menntamenn um landið til þess að safna gömlum fróðleik. Þennan fróðleik og árangur þessarar söfnunar hafa hv. þm. þegar fengið í útbýttri skýrslu. Liggur hún á borðum hjá hv. þm. og ætla ég ekki um það að ræða.

En betur má ef duga skal því að enn þá er marga að hitta. Þótt líf manna áður fyrr væri á ýmsan hátt einfaldara í sniðum en nú er, þá var það samt mjög fjölþætt, því að atvinnulíf heimilanna náði yfir allt það er nú tilheyrir okkar atvinnulífi: landbúnað, iðnað og sjávarútveg. Sérhæfingin hefur smáþróast hin síðari ár, ekki aðeins að atvinnuvegirnir séu sundurgreindir hver frá öðrum, heldur og það, að nú er innan hvers atvinnuvegar komin sérhæfing og ótal sérfræðingar. Áður urðu allir helst að geta gert alla hluti, geta gripið inn í öll þau heimilisstörf sem til féllu, án tillits til þess hvort tilheyrði iðnaði, sjávarútvegi eða landbúnaði.

Till. þessi, ef samþykkt verður, felur það í sér að ríkisstj. er með henni veittur stuðningur Alþ. til þess að verja meira fjármagni til þessara mála en veríð hefur eða að efla þjóðháttadeild Þjóðminjasafns sem hefur þessi mál með höndum.

Herra forseti. Ég vona að hv. alþm. taki máli þessu vel. Ég legg til að umr. um till. þessa verði frestað, þegar henni er lokið að þessu sinni, og málinu vísað til hv. fjvn.