15.02.1977
Sameinað þing: 51. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 2057 í B-deild Alþingistíðinda. (1524)
252. mál, samanburður á vöruverði
Landbrh. (Halldór E. Sigurðsson):
Herra forseti. Fsp. þessi var, eins og hv. 2. landsk. tók fram, flutt af hv. varaþm. Eyjólfi Sigurðssyni á haustmánuðum. Ég var þá tilbúinn með svarið meðan hann var hér á þingi, en vegna umr. utan dagskrár dagaði það uppi og því verður það flutt nú.
Frv. það, sem hv. fyrirspyrjandi gerir hér að umtalsefni, gerði annars vegar ráð fyrir helmingshækkun þeirra bóta er getur í bráðabirgðaákvæðum laga nr. 108 1972, þ. e. dánar- og örorkubóta, og hins vegar vísitölubindingu vegna mikilla verðbreytinga, og skyldi taka mið af byggingarvísitölu. Frá því að ríkisstj. barst frv. hefur málið verið til athugunar í samgrn., og er nú svo komið að samið hefur verið frv. til l. sem einmitt kveður á um hækkun þá sem áður gat. Fyrirhugað var að stefna að samþykkt þess samhliða afgreiðslu brbl. um kaup og kjör sjómanna, en þar voru þessar fjárhæðir lögfestar til bráðabirgða fyrir nokkurn hluta sjómannastéttarinnar.
Sá hluti frv. þess, er hv. fyrirspyrjandi nefnir og varðar tryggingar, raungildi bóta þeirra er hér um ræðir, hefur verið til athugunar allgaumgæfilega og virðast þar ýmsar leiðir koma til greina. Að lokum var komist að þeirri niðurstöðu, að tenging dánar- og örorkubóta einhvers konar vísitölu, t. d. framfærsluvísitölu eða þá byggingarvísitölu, eins og áminnst frv. gerði ráð fyrir, var alfarið hafnað, enda finnast þess engin dæmi í hinni almennu tryggingalöggjöf að bætur séu bundnar á þennan hátt.
Önnur leið, sem athuguð var og vænlegust þótti, var aðferð laga nr. 67 1971, um almannatryggingar, þar sem ráðh. er heimiluð hækkun tryggingabóta verði breyting á dagvinnukaupi verkamanna við almenna fiskvinnu.
Nú hefur það hins vegar skeð, að flutt hefur verið frv. á þskj. 308 af hv. þm. Sighvati Björgvinssyni, Garðari Sigurðssyni og Karvel Pálmasyni, þar sem lagt er til það sama og í því frv. sem samið hefur verið í hv. samgrn. Ég veit að vísu að þetta eru miklir athafnamenn, þó að ég telji að eðlilegra hefði verið að gefa kost á því að svara þessari fsp., sem hér hefur nú verið gert; og gefa þær upplýsingar, sem þar er að finna. En út af fyrir sig hef ég ekki neitt um það að segja, því að tveir af þessum hv. þm., vestfirðingarnir báðir, eru þekktir athafna- og auglýsingamenn á eigin verðleikum. Hins vegar mun ég, herra forseti, láta þetta svar nægja við fsp., því ég vona að það sé tæmandi og sýni að rn. hefur tekið málið þeim tökum sem til var ætlast.