26.10.1976
Sameinað þing: 9. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 208 í B-deild Alþingistíðinda. (153)

241. mál, framkvæmd skattalaga

Fjmrh. (Matthías Á. Mathiesen):

Herra forseti. Það eru aðeins örfá orð út af því, sem hv. fyrirspyrjandi kom að hér áðan.

Ég held að það hafi komið glögglega fram í svari ríkisskattstjóra að hann sem yfirmaður þessara mála gerir skattstjórum grein fyrir því hverjar séu þær samræmdu reglur sem settar hafa verið. Hins vegar er öllum ljóst, að í þessum atriðum eins og víða annars staðar er mjög oft um matsatriði að ræða og það fer þá að sjálfsögðu eftir því hvernig viðkomandi skattstjóri í hverju skattumdæmi fyrir sig lítur á málið. En séu skattborgararnir óánægðir með niðurstöðuna hjá viðkomandi skattstjóra, þá hafa þeir tækifæri til þess að áfrýja því til ríkisskattstjóra sem þannig hefur til meðferðar sams konar tilvik úr öllum skattumdæmum og fær þá að sjálfsögðu í sínum úrskurðum niðurstöður sem eru samræmdar á milli allra skattumdæmanna. Ef viðkomandi aðili fellir sig ekki við niðurstöðu ríkisskattstjóra, þá hefur hann enn möguleika á því að koma fram aths. með því að víkja máli sínu til ríkisskattanefndar sem endanlega fellir þá úrskurð í sambandi við þann ágreining sem upp hefur komið.

Það má svo vel vera að hér sé hægt að bæta um, og ekki skal standa á mér að reyna að gera það. Síðustu orð fyrirspyrjanda voru þau, að ég athugaði hvort ekki væri hægt að bæta hér um. Það er sjálfsagt að gera það. En ég held að það verði aldrei settar þær reglur í þessum málum að ekki komi upp þau atvik þar sem skattborgarinn og skattyfirvöldin geti deilt. Ég held að það verði aldrei gert. En það er sjálfsagt að reyna að lagfæra það sem aflaga hefur farið.

Ég undirstrika það sem kemur fram í svari ríkisskattstjóra til fjmrn., að eins og bægt er, þá er komið á framfæri samræmdum reglum í þessum efnum. En það eru skattstjórarnir sem taka endanlegar ákvarðanir í málunum og fer þá að sjálfsögðu eftir mati þeirra sem slíkra. Séu menn óánægðir með það, þá hafa þeir fullan rétt samkvæmt lögum að leita álits ríkisskattstjóra. Felli þeir sig ekki við úrskurð hans, þá er að leita til ríkisskattanefndar.