15.02.1977
Sameinað þing: 51. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 2063 í B-deild Alþingistíðinda. (1532)

98. mál, flugsamgöngur við Vestfirði

Fyrirspyrjandi (Sigurlaug Bjarnadóttir) :

Herra forseti. Ég þakka hæstv. ráðh. fyrir svarið. Í því fólst að vísu ekki svar við fsp. minni sérstaklega og það hlýt ég að harma. Hann greindi frá skýrslu flugvallanefndar sem skilaði frá sér áliti í nóv. 1976. Þá skýrslu hef ég undir höndum, og hún er í sjálfu sér mjög fróðlegt plagg, ég vil ekki gera lítið úr mikilvægi þess. Hún fjallar um flugsamgöngur, ástand flugvalla og áætlanir um endurbætur þeirra um allt landið.

Það, sem fyrir mér vakti með fsp. minni, var að vekja athygli á sérstöðu Vestfjarða í þessu tilliti. Ég hef sjálf aflað mér nokkurra upplýsinga hjá talsmönnum flugmálastjórnar. Þeir hafa tekið ábendingum í þessari fsp., sem hér liggur fyrir, nokkuð jákvætt. Að vísu er þetta auðvitað fjárhagsspursmál, veit ég vel. En með tilliti til þess að í öllum þessum fjórðungi er enginn völlur sem getur tekið við næturflugi, þá tel ég að það sé sérstök ástæða til þess að huga að leiðum til úrbóta þar og þá með þessum hætti, sem ég tel hugsanlegt að komi til greina, að endurbæta velli í nágrenni Ísafjarðar sem gæti verið til vara. Brautin í Holti í Önundarfirði liggur nokkuð þvert á stefnu Ísafjarðarflugvallar, þannig að enda þótt ólendandi sé á Ísafirði vegna vindáttar þar, þá er lendandi í Holti. Sama á við um Þingeyri. Bolungarvík hins vegar er dálítið erfiðar að þessu leyti, Þó er þar nokkru rýmra um heldur en á Ísafirði, og ég tel eftir samtal mitt við menn hjá flugmálastjórn að það væri möguleiki, ef í það væri veitt fé, að byggja jafnvel þverbraut á Bolungarvíkurbrautina eða endurbæta hana þannig að hægt væri að lenda þar, ef ekki með stærstu áætlunarvélum Flugfélagsins, þá með annarri gerð flugvéla sem einnig gæti komið til greina og leyst þennan vanda Ísafjarðarflugvallar og þess fjölda fólks sem árlega, sumar og vetur, verður að hlíta því að komast ekki leiðar sinnar vegna ófullkominnar flugbrautar á þessum aðalflugvelli fjórðungsins.

Ég vænti þess, að sérstaða Vestfjarða að þessu leyti verði tekin til sérstakrar athugunar enda þótt ég viti að mörg önnur aðkallandi verkefni bíða í flugmálum um allt landið.