15.02.1977
Sameinað þing: 51. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 2065 í B-deild Alþingistíðinda. (1534)

98. mál, flugsamgöngur við Vestfirði

Landbrh. (Halldór E. Sigurðsson):

Herra forseti. Það má vel vera að ég hafi talað svo lágt áðan að hv. þm. hafi ekki skilið það sem ég sagði. En það, sem ég sagði, var einfaldlega sá sannleikur, að það hefði ekkert verið gert sérstaklega í sambandi við þessa flugvelli, heldur hefðu þeir verið einn af þáttunum við athugun þeirrar n. sem hefði athugað málið í heild, og einnig það, sem er líka sannleikur, að ég hef enga peninga til að setja í þetta. Málið var afgreitt í fjvn. Alþ. og þar var hv. síðasti ræðumaður áheyrnarfulltrúi og ég vona talandi líka, ef að líkum lætur, og mér er ekki kunnugt um að þetta mál hafi verið baráttumál þessara tveggja hv. þm. í sambandi við það þegar fjárveitingum til flugvalla var skipt. Hins vegar sé ég það og vissi, að til Ísafjarðarflugvallar var veitt veruleg fjárhæð og hefur verið veitt nú síðustu árin meira en áður var. En ég held að hv. þm. verði að gera sér grein fyrir því, að þó að þeirra mál sé jafnréttmætt, nauðsyn endurbóta þarna, eins og annarra flugvalla, þá verður málið að bera að með réttum hætti svo það sé ekki afturfótafæðing, eins og mér skilst að þessir hv. þm. vilji hafa á þessu máli nú.