15.02.1977
Sameinað þing: 51. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 2070 í B-deild Alþingistíðinda. (1543)

Umræður utan dagskrár

Benedikt Gröndal:

Herra forseti. Það mál, sem hér hefur verið spurt um, er tímabært vegna skipunar á framkvæmdastjóra fyrir Sölu varnarliðseigna.

Í sambandi við málið í heild þarf ekki að segja nokkrum að þetta fyrirtæki hefur sennilega verið meira tortryggt en nokkuð annað hér á landi um áratugi, og það væri vissulega ástæða til þess að hreinsa þar til frekar en að gera vötn öll gruggugri. Ég vil því beina þeirri fsp. til hæstv. ráðh., hvort það hafi ekki hvarflað að honum, þegar hann gerði breytingu varðandi stjórn fyrirtækisins, sem vafalaust gat í sjálfu sér verið til góðs, að leggja frv. fyrir Alþ. um skipan þessara mála, þannig að það lægi á hreinu hvers konar fyrirtæki þetta er, hvernig því er stjórnað og hvernig það starfar.

Þá vil ég beina þeirri spurningu til hæstv. ráðh., hvort hann geti upplýst hversu mikil byggingaráform þetta fyrirtæki hafi, því hver maður sér að það er að rísa gríðarlega stórt hús sem sagt er að þetta fyrirtæki eigi. Mönnum virðist að það sé vart mögulegt að húsið allt geti verið fyrir þessa stofnun, ef það rís hátt á þeim grunni sem þegar er fyrir hendi.

Í sambandi við gagnrýni á stjórnkerfi íslendinga, sem hefur verið mjög mikil í seinni tíð, hefur skipun í embætti verið eitt af því sem oftast er tilgreint. Leynir sér ekki að sú skoðun er mjög útbreidd hjá þjóðinni, að stjórnmálaflokkarnir misnoti valdaaðstöðu sína til að koma gæðingum sínum í feit embætti. Ef stjórnkerfið sjálft vill reyna að verjast þessum þráláta áburði er nauðsynlegt að gæta sín við hvert tilvik. Í sambandi við skipun á framkvæmdastjóra Sölu varnarliðseigna er öll meðferð málsins sérstaklega til þess gerð að auka á tortryggni í sambandi við viðhorf hæstv. ráðh. og þá flokks hans og e. t. v. flokkskerfisins alls.

Það stendur að vísu í lögum að það gildi ekki venjulegar reglur um birtingu umsókna og annað í sambandi við störf í þágu utanríkisþjónustunnar. En að heimfæra þetta brask með það dót, sem gengur af hjá varnarliðinu, undir störf í þágu íslenskrar utanríkisþjónustu er hlægilegur útúrsnúningur og svo augljós að mér kemur á óvart að hæstv. ráðh. skuli beita honum ef hann ber ábyrgð á því, en það mun vera eftir starfsmanni hans haft, að þetta sé ástæðan fyrir því að nöfn umsækjenda hafa ekki verið birt.

Ég ætla ekki á þessari stund eða þessum stað að segja neitt um Alfreð Þorsteinsson eða hæfni hans í starfið. Um það get ég ekki dæmt meðan ég veit ekki hverjir hinir umsækjendurnir voru, og það liggja engar upplýsingar fyrir um sérstakar kröfur sem séu gerðar til þessa starfsmanns, og af þeirri ástæðu er ekki heldur hægt að dæma um hvort hann er til starfsins hæfur eða hæfari en aðrir umsækjendur.

Ég vil að lokum spyrja hæstv. ráðh., hvort bann haldi fast við þá stefnu að birta ekki nöfn umsækjenda eins og venja er, og ráðleggja honum eindregið að hverfa frá henni því að tími leyndarinnar í íslenskum stjórnmálum er að verða liðinn.