15.02.1977
Sameinað þing: 51. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 2073 í B-deild Alþingistíðinda. (1545)

Umræður utan dagskrár

Stefán Jónsson:

Herra forseti. Ég leyfði mér að grípa fram í fyrir hæstv. utanrrh. áðan, meðan hann talaði, þegar hann sagði að ekki hefðu komið fram óskir um að nöfn umsækjenda um starf þetta væru birt. Það mun hafa verið tilskilið í áli hæstv. ráðh., þetta atriði: af hálfu þeirra sem um sóttu. En hér höfðu sannarlega í Sþ. tveir hv. alþm. óskað þess arna. Í vissum skilningi hygg ég að hv. alþm. hljóti að teljast fara með umboð af hálfu ónefndra 33 umsækjenda um þetta starf engu síður en hæstv. utanrrh., og þar til annað kemur í ljós mun ég trúa því að einnig ég geri það.

Hér hefur ekki verið farið fram á annað en það, að hæstv. utanrrh. segi okkur frá því lögum samkvæmt, hverjir þeir 33 íslendingar eru sem hann tekur Alfreð Þorsteinsson fram yfir til þessa starfs. Ég vil ekki fremur en aðrir þeir, sem hér hafa tekið til máls, bera brigður á hæfileika Alfreðs Þorsteinssonar til að gegna þessu starfi. Að vísu skortir nokkuð á að eðli þessa starfs hafi verið skilgreint hér. Af hálfu hæstv. ráðh. hafa alls ekki verið tilgreindir þeir hæfileikar Alfreðs Þorsteinssonar sem hann telur að falli að starfi þessu. Ég vil að vísu ekki boða þáltill. af því tagi, en ég mun íhuga hvort ekki muni rétt að bera fram hér í Sþ. till. til ályktunar á þá lund, að skorað verði á hæstv. utanrrh. að láta Alþ. í té upplýsingar um nöfn þessara 33 annarra umsækjenda um starfið og greina þá jafnframt frá því með hvaða hætti hæfileikar þessara manna hafa verið metnir til starfsins, þannig að það megi koma í ljós hvað það er í þekkingu eða almennu fari Alfreðs Þorsteinssonar sem gerir það að verkum að hann sé hæfari en hinir.