15.02.1977
Sameinað þing: 51. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 2084 í B-deild Alþingistíðinda. (1557)

103. mál, brúargerð yfir Eyjafjarðará

Ingvar Gíslason:

Herra forseti. Ég vil mjög taka undir þau rök sem fram hafa komið hjá hv. fyrirspyrjanda í sambandi við það, að það hefur vissulega eða getur haft mjög mikla hagkvæmni í för með sér að gera brú á þessum slóðum sem þarna er til tekið, þ. e. a. s. um Laugaland eða Hrafnagil. En hins vegar verða menn líka að gera sér grein fyrir því, að þetta er ekki að öllu leyti einfalt mál. þannig að við getum náttúrlega ekki skoðað þetta alveg án samhengis við þau verkefni sem fyrir liggja í brúargerð í Eyjafjarðarsýslu, því að þar eru mörg óleyst verkefni. Vandamál okkar, sem höfum áhuga á því að koma fram málum fyrir þetta hérað og þetta nágrenni, liggur náttúrlega fyrst og fremst í því, hvaða þunga við getum gefið hverri framkvæmd.

Ég vil mjög taka undir það, sem fram hefur komið hjá hv. fyrirspyrjanda, að þessi brú hjá Laugalandi eða á þeim slóðum mundi geta leitt margt gott af sér fyrir þessar myndarlegu sveitir sem þarna eru, aukið mjög öll samskipti á milli sveitanna austan og vestan Eyjafjarðarár, þannig að það hefði og gæti haft mjög mikið að segja. En eins og ég segi, þá held ég að við verðum að skoða þetta í víðara samhengi, því að það er ansi margt ógert í vega- og brúargerð á þessum slóðum. Ég nefni þá alveg sérstaklega að það, sem okkur skiptir nú ekki hvað minnstu máli, það er að leysa gömlu brýrnar á aðalþjóðleiðinni yfir Eyjafjarðará af hólmi með nýrri vega- og brúargerð yfir Leirurnar hjá Akureyri, fyrir utan margar aðrar brýr í Eyjafjarðarsýslu sem við höfum í huga.

En ég vil af þessu gefna tilefni leyfa mér að beina því til hæstv. samgrh. að gera það sem í hans valdi stendur til þess að sú könnun verði framkvæmd sem þáltill. á sinni tíð gerði ráð fyrir, því ég tel að það sé mjög mikilvægt mál út af fyrir sig.