15.02.1977
Sameinað þing: 51. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 2085 í B-deild Alþingistíðinda. (1558)

253. mál, sparnaður í rekstri Ríkisútvarpsins

Fyrirspyrjandi (Lárus Jónsson) :

Herra forseti. Ég hef leyft mér á þskj. 115 að bera fram fsp. til hæstv. menntmrh. um sparnað í rekstri Ríkisútvarpsins. Fyrirspurnin er svo hljóðandi:

„l. Hvert er aðalefni till. fjárlaga- og hagsýslustofnunarinnar um sparnað í rekstri Ríkisútvarpsins, sem nú liggja fyrir?

2. Hvað hyggst rn. gera til þess að framkvæma meginatriði þessara sparnaðartillagna?“

Það mun hafa verið fyrir allmörgum árum, einum 3–4 árum, að sett var á laggir n. til þess að athuga rekstur Ríkisútvarpsins í því skyni að koma þar við hagræðingu og sparnaði. Í þessari n. voru, ef ég man rétt, útvarpsstjóri, fulltrúi úr menntmrn. og fjárlaga- og hagsýslustjóri. Þessi n. gaf út mikla og þykka skýrslu í maí 1975, en ég hef ekki orðið var við að margar af þessum till., sem virðast við fyrstu sýn, a. m. k. frá leikmanns sjónarhóli, nokkuð skynsamlegar sumar hverjar, hafi verið framkvæmdar.

Það hefur verið tekinn upp sá háttur í seinni tíð af hálfu fjárlaga- og hagsýslustofnunarinnar að efna til samvinnu milli ríkisstofnana og rn. um slíkar kannanir víða í ríkiskerfinu. Því miður hefur það viljað við brenna að ekki væri ýtt nægilega hratt ú eftir slíkum till. í framkvæmd. Það er ekki síst af þessum ástæðum sem ég ber fram þessa fyrirspurn. Það væri sjálfsagt ástæða til þess að bera fram hliðstæða fyrirspurn um margar aðrar ríkisstofnanir, og ég er ekkert sérstaklega að beina spjótum mínum að hæstv. menntmrh. eða Ríkisútvarpinu með þessari fyrirspurn, en mér finnst persónulega að það sé til lítils að gera miklar og margvíslegar till. um sparnað og hagræðingu ef þær komast síðan ekki í framkvæmd.