15.02.1977
Sameinað þing: 51. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 2101 í B-deild Alþingistíðinda. (1573)

258. mál, vetrarvegur um Breiðadalsheiði

Sigurlaug Bjarnadóttir:

Herra forseti. Ég get ekki látið hjá líða að segja fáein orð í þessu máli, því að hér er örugglega um að ræða eitt alstærsta og brýnasta málið í samgöngumálum vestfirðinga í dag. Ég vil til viðbótar við það, sem fram kom í umr. um flugsamgöngur á Vestfjörðum, benda á það alveg sérstaklega, að fyrir utan hinn almenna samgönguþátt er sunnan Breiðadalsheiðarinnar eitt besta landbúnaðarhérað Vestfjarða, Önundarfjörðurinn, sem hefur hvað best skilyrði til mjólkurframleiðslu. Það er staðreynd að mjólkurframleiðsla í Önundarfirði hefur dregist saman á undanförnum árum, býli hafa lagst í eyði einfaldlega vegna örðugleika við að koma mjólkinni á markað. Þarna er því ákaflega mikilvægt atriði að því er varðar mjólkurframleiðsíu, sem er eitt af stærstu vandamálum vestfirðinga og þá sérstaklega ísfirðinga og norðursvæðisins að því er varðar neysluvörur almennt.

Ég hef oftar en einu sinni bent á það hér á hv. Alþ., að mér virðist það vafasöm hagfræði að búa svo um hnúta að það þurfi að flytja mjólk á milli landshluta flugleiðis með 25 kr. gjaldi á hvern einasta lítra. Góð tenging Önundarfjarðar við aðalmarkaðssvæðið á Ísafirði og þar fyrir norðan mundi bæta að þessu leyti stórlega úr skák. Þetta er þess vegna mikið atriði, bæði samgöngulega séð og að því er varðar neyslu á mjólk á einn stærsta markaðssvæði Vestfjarða.

Þessar lausnir, sem hæstv. ráðh. hefur bent á í svari frá Vegagerð ríkisins, eru ekki nýjar fyrir mér. Ég hef heyrt þessar tölur áður. Mér líst að sjálfsögðu best á þriðju lausnina, jarðgöngin, sem yrði varanleg og mundi tryggja vetrarsamgöngur hvað best þarna á heiðinni. Þetta er framkvæmd upp á 580 millj. Það er stór upphæð, ég viðurkenni það, en þó ekki það stór, miðað við aðrar framkvæmdir sem ráðist er í á landinu hér og hvar, að það þurfi algerlega að fráskrifa þessa hugmynd. Þetta hlýtur að verða sú lausn sem við í framtíðinni stefnum að, þótt í bili sé hugsanlega ekki talið fært að ráðast í hana.

Það er góðra gjalda vert að reyna með snjóskermum á fjallabrúnum og lagfæringum á veginum, öðrum en þeim þremur lausnum sem hér er bent á, að bæta hér úr. En ég held að það sé enginn vafi á því, að við hljótum að stefna að því og það sem fyrst að fá varanlega samgöngubót á þessa erfiðu heiði sem er allt of lengi búin að vera allt að því óyfirstíganlegur tálmi í samgöngum á Vestfjörðum.