16.02.1977
Efri deild: 43. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 2104 í B-deild Alþingistíðinda. (1580)

67. mál, Lífeyrissjóður bænda

Frsm. (Jón Helgason) :

Herra forseti. Fjh.- og viðskn. hefur haft til meðferðar frv. til l. um breyt. á lögum um Lífeyrissjóð bænda, á þskj. 73, og er n. sammála um að mæla með samþykkt frv., eins og fram kemur í nál. á þskj. 314. Fjarverandi við afgreiðslu málsins voru Ragnar Arnalds og Axel Jónsson.

Í aths. við frv. þetta segir að það sé flutt til staðfestingar á brbl. sem sett voru á s. l. sumri, en tilgangur þeirra var fyrst og fremst að veita Lífeyrissjóði bænda heimild til að hækka greiðslur til lífeyrisþega sjóðsins. Við almenna kjarasamninga í febr. 1976 gerðu samningsaðilar með sér samkomulag um málefni lífeyrissjóða, þar sem m. a. var gert ráð fyrir að lífeyrissjóðir á samningssviði þessara samtaka veittu lífeyrisþegum sínum sérstaka uppbót árin 1976 og 1977, þannig að lífeyrisgreiðslur þessar yrðu betur verðtryggðar en hingað til. Samkomulag þetta var síðan staðfest á Alþ. með lögum nr. 33 20. maí 1976, þar sem hinum almennu lífeyríssjóðum er veitt lagaheimild til þessarar hækkunar.

Lífeyrissjóður bænda hafði samkv. lögum sjóðsins ekki heimild til breytinga í þessa átt og því gerði stjórn sjóðsins till. til ríkisstj. um þær breyt. á lögum um Lífeyrissjóð bænda sem settar eru fram í brbl. Stjórn sjóðsins treysti sér þó ekki að fylgja að fullu fordæmi annarra lífeyrissjóða með útgjaldahækkun, þar sem útgjaldaaukning hans var hlutfallslega meiri vegna óhagstæðrar aldursskiptingar félaga Lífeyrissjóðs bænda. Samt sem áður hækkuðu greiðslur til lífeyrisþega sjóðsins mjög verulega.

Þeir aðilar, sem höfðu eftirlaun miðað við grundvallarlaun 1969–1973, fengu 121.3% hækkun frá og með 1. jan. 1976, og þeir, sem fengu fyrstu greiðslur fyrir árið 1975, fengu 86.2% hækkun. Hinn 1. júlí s. l. hækkuðu allar eftirlaunagreiðslur aftur um 18.7%. Heildarlífeyrisgreiðslur Lífeyrissjóðs bænda urðu á árinu 1976 209.2 millj. kr. í stað 83.7 millj. kr. árið 1975, þannig að greiðslubyrði sjóðsins hefur vaxið mjög mikið, en auknar tekjur hafa aðeins að litlu leyti komið á móti.

Í 1. gr. þessa frv. eru þó ákvæði sem hækka tekjur sjóðsins um 30 millj. kr. á s. l. ári.

Í 2. gr. er tekið upp það nýmæli að greiða sjóðfélaga barnalífeyri ef maki fellur frá. Er það stutt þeim rökum að hjón í landbúnaði vinna yfirleitt saman að búrekstrinum og giftur sjóðfélagi greiðir hærra gjald til sjóðsins heldur en ógiftur.

Í 3. gr. frv. er ákvæði sem heimila nokkra hækkun lífeyrisgreiðslu til aldraðra öryrkja, og breyting í 4. gr. í samræmi við það. Er það hvort tveggja svipað og lög nr. 33 frá s. l. ári, sem fyrr er getið, gera ráð fyrir.

6.–9. gr. fjalla síðan um hækkun þá á almennum lífeyri sem ég gat um að framan.

10. gr. er ákvæði um gildistíma laganna. En þar hefur orðið prentvilla, þannig að í stað orðanna „ákvæði 1. gr.“ á þar að koma: „Ákvæði 2. gr.“ Þar sem þetta kom í ljós eftir að n. hafði afgreitt málið vil ég leyfa mér að flytja skriflega brtt. um þetta.