17.02.1977
Sameinað þing: 53. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 2119 í B-deild Alþingistíðinda. (1597)
89. mál, fræðsla og þáttur fjölmiðla í þágu áfengisvarna
Flm. (Sigurlaug Bjarnadóttir) :
Herra forseti. „Áfengi verður ekki upprætt úr okkar þjóðfélagi, en okkur ber skylda til að sporna við ofneyslu þess og um leið við þeim hörmulegu afleiðingum sem það hefur.“ Þetta var ein af niðurstöðunum á ráðstefnu um áfengis- og fíkniefnavandamálið sem haldin var á vegum Landssambands ísl. sjálfstæðismanna s. l. haust. Ég held að þessi niðurstaða sé á raunsæi byggð. Ég hygg að við séum öll sammála um að algert bann á áfengi þjóni ekki þeim tilgangi sem til væri ætlast, en að við hljótum að beita öllum tiltækum ráðum til þess að koma í veg fyrir þær hörmungar sem það leiðir og hefur leitt yfir allt of margar íslenskar fjölskyldur fyrr og síðar.
Þáltill. sú á þskj. 99, sem við sex þm. úr öllum flokkum stöndum að, fjallar um þann þátt áfengismála sem veit að upplýsingum og fræðslu. Ég leyfi mér að lesa till. upp, með leyfi forseta:
„Alþingi ályktar að brýn þörf sé markvissra aðgerða í þágu áfengisvarna í landinu. Sérstaklega beri að leggja rækt við hvers konar fyrirbyggjandi fræðslu og upplýsingastarf.
Í því skyni skorar Alþ. á ríkisstj., að beita sér fyrir:
1. Að hraðað verði sem kostur er skipulagningu og undirbúningi Skólarannsókna ríkisins á áfengisfræðslu í öllum skólum landsins og endurskoðun á reglugerð um slíka fræðslu.
2. Að fjölmiðlar, og þá einkum sjónvarpið, verði nýttir með skipulegum hætti í þessu skyni. Þannig verði reglulega teknir upp í dagskrá sjónvarpsins fræðslu- og skemmtiþættir í samráði við áfengisvarnaráð og aðra þá aðila sem vinna að bindindisstarfi og áfengisvörnum.“
Þessi þáltill. var flutt á síðasta þingi í framhaldi af störfum n. er kjörin var á Alþ. 1975 af öllum þingflokkum til að kanna ástand í áfengismálum okkar og leggja að starfi loknu fram ábendingar og till. er að gagni mættu koma til að ráða nokkra bót á þessu mikla þjóðfélagsvandamáli. Ásamt till. kom fram annað mál, frv. til laga um breyt. á áfengislögum, sem ekki fremur en till. náði fram að ganga á síðasta þingi, en þau hafa nú bæði verið endurflutt lítils háttar breytt þó.
Fyrri hluti till. okkar fjallar um að flýtt sé starfi Skólarannsókna ríkisins að áfengisfræðslu í öllum skólum. Ég hef haft nýverið samband við fulltrúa Skólarannsókna ríkisins og komist að raun um, því miður, að þar hefur heldur lítið verið að þessu unnið. Ég hef orð þess fulltrúa, sem ég talaði við, fyrir því að vinnu í þessa átt hefur í rauninni seinkað um heilt ár.
Eins og kunnugt er og kemur fram í grg. með till., er meiningin að fella áfengisfræðsluna inn í nám í samfélagsfræði, en samfélagsfræði nær yfir bæði félagsfræði, sögu og landafræði. Þessar námsgreinar hafa til umráða 13 kennslustundir í viku hverri, þannig að ljóst er að þar er þröngt setinn bekkurinn og í rauninni helst til litið svigrúm að koma þessari fræðslu við. Hins vegar, á móti samfélagsfræðinni, er ætlunin að áfengisfræðslan komi inn í nám í líffræði.
Það eru, eins og ég hef bent á, því miður ekki líkur til að mjög mikill skriður hafi komist á þessi mál né sé á þeim nú. Þar er um kennt eins og víðar fjárskorti til að borga mannafla sem ynni að þessum málum. Hér eins og annars staðar, þar sem nauðsynjamál eiga í hlut, hlýtur þess að verða krafist að fjárhagsatriðið verði ekki lengur látið sitja í vegi fyrir nauðsynlegum aðgerðum í þessu efni. Við bendum í grg. á að áfengisfræðsla sé mjög vandmeðfarin í skólum og hún geti vafalaust gert meiri skaða en gagn sé ekki rétt á haldið.
Annar þáttur þessarar till. fjallar um fjölmiðla. Ég neita því ekki að þar hef ég og ég hygg aðrir flm. ekki síst augastað á sjónvarpinu, að vísu einnig öllum dagblöðum og Ríkisútvarpinu, þ. e. a. s. hljóðvarpinu. Þessum málum hefur sorglega lítið verið sinnt, og þá vil ég sérstaklega benda á sjónvarpið. Hljóðvarpið hefur undanfarin ár haft á boðstólum mjög merka þætti um áfengismál sem áhugasamir starfsmenn hafa staðið fyrir, og ég hygg að það sé fremur að þakka áhuga þeirra heldur en stefnumótun stofnunarinnar sjálfrar sem slíkrar. Það er einnig heldur lítið um það að við sjáum í dagblöðum, sem koma út hér í höfuðborginni, og öðrum blöðum markvissa fræðslu eða upplýsingar um þessi efni. Beint lægi þó við að ætla að íþróttahreyfingin tæki þessi mál sérstaklega fyrir. Ég hygg að ég fari ekki með rangt mál, því miður, þegar ég bendi á eftir staðhæfingum manna, sem mér þekkja betur til í íþróttamálum, að áfengið hafi teygt sig ískyggilega langt inn í raðir íþróttahreyfingarinnar á undanförnum árum. Það væri eðlilegt og sjálfsagt að þeir, sem rita um íþróttamál, bentu á að áfengi og íþróttir fara ekki saman. Ég hygg að íþróttasiður dagblaðanna séu það efni sem hvað mest er lesið af ungu fólki, og þess vegna væri sjálfsagt og eðlilegt rúm fyrir slíka fræðslu, upplýsingar og áróður gegn áfengi, í íþróttaþáttum fjölmiðla, bæði í dagblöðum og í ríkisfjölmiðlunum.
Það er enginn vafi á því, að sjónvarpið er hvað áhrifaríkasti fjölmiðillinn til þess að ná til ungra sem aldinna í hvaða máli sem er. Þess vegna bendum við í þessari till. sérstaklega á sjónvarpið sem máttugasta aflið til að hafa áhrif til góðs í þessu efni. Ég hef persónulega talað við forráðamenn sjónvarpsins alloft um þetta og jafnan fengið góðar og jákvæðar undirtektir. En ekki get ég sagt að mér hafi þótt sjónvarpið sækja sig sérstaklega á í þessum efnum. Þvert á móti líður varla sá dagur að ekki beri fyrir augu í sjónvarpinu glasaglaum og áfengisneyslu sem sjálfsagðan hlut í daglegu lifi. Mér hefur verið tjáð af mönnum, er til þekkja, að ýmsir áfengisframleiðendur og áfengisseljendur, t. d. í Bretlandi, beinlínis komi ár sinni þannig fyrir borð að þeir auglýsa vöru sína í gegnum sjónvarpsþætti, þá gjarnan í gegnum vinsæla skemmtiþætti, fjölskylduþætti svokallaða, sem líklegir eru til að ná inn á mörg heimili og til margra einstaklinga. Þetta er lævís áróður, en hann nær vafalaust takmarki sínu. Koma mér þá óneitanlega í hug einmitt ýmsir breskir sjónvarpsþættir, ágætir að öðru leyti en þessu, að áfengi og áfengisneysla skipar þar óeðlilega mikinn sess sem nokkurs konar tískustimpill á framleiðsluna. Þarna hygg ég að sjónvarpið sérstaklega ásamt öðrum fjölmiðlum þurfi að taka málin alvarlegum tökum og hefja slíka fræðslu og upplýsingastarfsemi með skipulegum hætti. Það er ekki nóg að taka við myndum sem kunna að berast um þetta efni og hafa jákvæð áhrif. Það verður að leita að efni, og við þurfum ekki endilega að leita til erlendra kvikmyndaframleiðenda. Við höfum nóg af fólki hér heima sem vill leggja þessum málum lið og gæti, ef það mætti, komið á framfæri ýmsu sem líklegt væri til að hafa bætandi áhrif. Þannig detta mér í hug ýmsir íslenskir samræðuþættir í sjónvarpinu sem mikið er hlustað á, eins og t. d. Kastljós, þáttur sem tekið er mark á og margir vilja ekki missa af. Þarna væri tilvalið rúm til að veita þessu máli meiri athygli og meira liðsinni en hingað til hefur tíðkast.
Ég vænti þess, að það, sem veit að fjölmiðlunum, verði tekið alvarlega og reynt verði að fá samvinnu við þá menn, sem með þessi mál fara og ég hef ekki ástæðu til annars en að ætla að séu málinu hlynntir, en þarna verði ekki lengur látið sitja við að yppta öxlum og leiða málið hjá sér.
Þá er bent á það í grg., sem að sjálfsögðu er afar þungt á metunum, og þá er ég komin aftur að hlið skólanna, að hugað sé alveg sérstaklega að þessum fræðsluþætti í menntun kennaraefna úr Kennaraháskóla Íslands. Þessi fræðsla í skólunum verður lögð á herðar kennara. Þetta er vandasöm fræðsla, eins og ég benti á áður, og það er tvímælalaust þörf á að kennaraefnin í Kennaraháskólanum búi sig undir hana sérstaklega, engu síður en það er talin nauðsyn á að veita sérstaka kennsluþjálfun í hinum ýmsu námsgreinum.
Ég vil ekki láta hjá líða að minnast á það sem vel hefur verið gert í þessum efnum, og vil ég þá sérstaklega benda á starfsemi ungtemplara sem hafa á undanförnum árum unnið frábært starf. Það er gleðilegt einmitt að þessi aldursflokkur hafi tekið sig fram um að hafa þarna áhrif, úr því að þeir, sem eldri eru, hafa ekki sinnt því meira en raun ber vitni hingað til. Þannig stóðu ungtemplarar t. d. s. l. haust að sérstakri fræðslustarfsemi og viðræðustarfsemi í gagnfræðaskólunum, þar sem könnuð voru viðhorf til vímugjafa. Þar var ekki aðeins áfengi tekið fyrir, heldur einnig aðrir vímugjafar, eins og hass og önnur fíknilyf sem jafnan renna í kjölfar hassneyslu. Till. þessi fjallar að vísu fyrst og fremst um áfengi, en að sjálfsögðu þyrftu þær upplýsingar og sú fræðsla, sem till. gerir ráð fyrir, að ná ekki síður til annarra skaðlegra fíkniefna. Verkefnið, eins og segir í grg., yrði að sjálfsögðu umfangsmeira, en þeim mun meiri ástæða til þess að öll ábyrg þjóðfélagsöfl: heimili, skóli og fjölmiðlar, leggist á eitt í baráttunni gegn þessum bölvaldi, ekki hvað síst með tilliti til hinnar upprennandi kynslóðar sem hvað helst þarf verndar og leiðbeiningar við.
Ég vil einnig benda á að nýlega er út komin á vegum bindindissamtaka kennara mjög handhæg handbók fyrir kennara sem stunda áfengisfræðslu. Þetta er lausblaðabók sem er því handhægari í notkun og má bæta inn í hana öðru efni sem á fjörurnar rekur og þykir eiga erindi í þessa fræðslu.
Eitt helsta áhyggjuefni allra hugsandi íslendinga varðandi áfengisneyslu í dag er einmitt þessi uggvænlega staðreynd, að áfengisneyslan færist æ neðar og neðar, þ. e. a. s. fólk allt niður í 12 ára aldur er nú byrjað að neyta áfengis. Það er þó talin staðreynd, sem ekki mun verða á móti mælt, enda liggja nákvæmar rannsóknir þar að baki, að eftir því sem maður byrjar yngri að neyta áfengis því meiri og ótvíræðari er hættan á að hann verði áfenginu að bráð og verði að áfengissjúklingi. Þannig segir yfirmaður áfengisvarna í Noregi að táningur, maður á unglingsaldri, geti á fáum mánuðum orðið áfengissjúklingur. Ef hann hefði byrjað neyslu fullorðinn yrði hann e. t. v. drykkjusjúklingur á 10 árum, en á jafnmörgum mánuðum ef hann hefur áfengisneyslu innan tvítugs. Með þessa staðreynd í huga, sem ekki mun verða vefengd, tel ég að því brýnna sé að skólarnir taki þessi mál nú og nú strax fastari tökum en verið hefur.
Við þurfum ekki yfir því að kvarta að við höfum ekki í lögum haft áferðarfalleg ákvæði um þetta mál. Ég held ég geti ekki stillt mig um að lesa upp 31. gr. gildandi áfengislaga um áfengisfræðslu, en hún hljóðar svo, með leyfi forseta:
„Í öllum skólum, er opinbers styrks njóta, skal fara fram fræðsla um áhrif áfengisnautnar. Sérstaka áherslu skal leggja á að upplýsa hvaða áhrif ofnautn áfengis hefur á líkama mannsins, vinnuþrek, siðferfisþroska hans og sálarlíf, á heimili manna, umgengnisvenjur og almenna siðfágun, á fjárhag einstaklinga og þjóðarinnar, á öryggi í vandasömu starfi og atvinnu manna almennt. Enn fremur skal veita fræðslu um það, hver sé öruggasta leiðin til að forðast ofnautn áfengis. Fræðslumálastjórninni skal skylt að sjá svo um, að skólarnir eigi þess jafnan kost að fá hentugar kennslubækur og kennslukvikmyndir til fræðslu um áhrif áfengisnautnar, eftir því sem við á á hverju skólastigi.“
Þessi áfengislög eru frá 1971, og ég hygg að þessi grein hafi staðið í eldri lögum líka, þannig að það er ekki löggjöfinni að kenna að framkvæmdin á þessu hefur verið í molum. En það er í þessu máli eins og öðrum, að þar duga skammt falleg lagaákvæði ef ekki eru tilburðir til þess að framkvæma þau.
Á einum degi í nóv. s. l. var selt áfengi í Reykjavík fyrir 40 millj. kr. á dag, og þá vil ég taka fram að þar voru ekki inni í kaup veitingahúsa, heldur voru það aðeins einstaklingar í einni borg á Íslandi sem keyptu áfengi fyrir 40 millj. á einum degi. Mér reiknast til að það sé andvirði um 5 meðalstórra íbúða sem þar fóru á einni dagstund. Sala og hagnaður af sölu áfengis er ein af drýgstu tekjulindum íslenska ríkisins. Það er heldur ömurleg staðreynd, hljótum við að segja, og þessi hagnaður er að sjálfsögðu blekking ein ef farið væri út í og gerð skipuleg könnun á því hvað það kostar íslensku þjóðina í beinhörðum peningum. Fyrir utan allar þær mannlegu þjáningar og böl sem af áfengisneyslunni leiðir, þá hygg ég að það mundi koma allverulegt skarð í milljarðana, sem ríkissjóður innheimtir árlega fyrir sölu áfengis. En með þessa staðreynd í huga tel ég enn þá ótvíræðara að ríkisfjölmiðlunum sérstaklega ber siðferðileg skylda til þess að bæta fyrir eitthvað af því böli sem sannarlega og óumdeilanlega leiðir af sölu áfengis hér í landinu.