17.02.1977
Sameinað þing: 53. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 2126 í B-deild Alþingistíðinda. (1599)
89. mál, fræðsla og þáttur fjölmiðla í þágu áfengisvarna
Flm. (Sigurlaug Bjarnadóttir) :
Herra forseti. Það var einungis af því að mér láðist að biðja ákveðna þingnefnd fyrir þessa till. að ég stend hér upp aftur. En mig langar í leiðinni til að þakka hv. þm. Helga F. Seljan fyrir hans skelegga stuðning. Við stöndum saman að þessari till., þannig að ég átti ekki annars að vænta úr hans átt. Ég vil nú vona að þessi tvö mál, sem borin eru fram eftir mikla og góða vinnu hinnar þingkjörnu milliþn., ég vil óska að þessi mál nái nú fram að ganga, hugsanlega með þeim breytingum sem hv. Alþ. vill á þeim gera, en að þau verði ekki svæfð nú, eins og jafnan hefur hent í málum sem borin hafa verið fram á Alþ. og miða að umbótum í áfengismálum.
Ég get ekki látið hjá líða að minnast á það, að svo skemmtilega eða kannske öllu heldur óskemmtilega vill til, einmitt nú er við mælum fyrir þessari till., að það kemur fram þriðja þingmálið í dag sem fjallar um áfengismál íslendinga, og það er um leyfi til bruggunar áfengs öls. Þetta er auðvitað greinileg afturganga hér í þingsölum, og ég fyrir mitt leyti hef litlar áhyggjur af því að hún fái ekki þá meðferð sem hún á skilið. En alla vegar eru hér þrjú þingmál, sem snerta áfengismál, komin fram. Ég vona að þingheimur taki þeim og afgreiði þau sem vert væri. Ég vil svo biðja um að þessari till. verði vísað til hv. allshn.