21.02.1977
Efri deild: 44. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 2162 í B-deild Alþingistíðinda. (1617)
165. mál, póst- og símamál
Helgi F. Seljan:
Herra forseti. Þetta skulu ekki vera mörg orð. Ég hygg að það fari ekki á milli mála, að þetta frv. sé, eins og hæstv. ráðh. tók fram, það vel unnið að við þurfum litlar aths. út af fyrir sig við það að gera, og miðað við það, hvernig hér hefur verið að staðið, þá efast ég ekki um að margt í þessu frv. er til mikilla bóta. Ég legg sérstaklega áherslu á það atriði frv. sem snertir umdæmisstjórana og það aukna vald, sem hæstv. ráðh. lagði áherslu á að þar með væri flutt út í héruðin sem líður í því að flytja vald og áhrif heim í héruðin, þannig að öll ákvarðanataka um hvað eina færi ekki alltaf og ævinlega fram í höfuðstöðvunum hér á höfuðborgarsvæðinu. Ég vona sem sagt að af þessum ákvæðum leiði það, að umdæmisstjórarnir fái meiri áhrif, fái meiri völd og reynslan af þessu verði í alla staði jákvæð, svo sem hún hefur verið í öðrum þeim tilfellum þar sem slík valddreifing hefur átt sér stað.
Hitt atriðið, sem ég tel einnig til mikilla bóta og þá alveg sérstaklega fyrir Alþ. og fjvn., er áætlanagerðin sem gert er ráð fyrir í frv., í 9. gr. þess, þ. e. a. s. áætlun um framkvæmdir stofnunarinnar til fjögurra ára í senn. Hér er tvímælalaust um skref til bóta að ræða. Við væntum þess auðvitað að hér verði um raunhæfa framkvæmd að ræða og að þessar áætlanir geti orðið sem réttastar og þá ekki hvað síst með tilliti til þess, að verðbólgan hægi a. m. k. það á sér að það verði eitthvað að marka þær tölur sem þar verða gefnar upp, þær verði ekki orðnar úreltar þegar á næsta ári, eins og raun hefur orðið á um flestar þær áætlanir, sem opinberar stofnanir hafa þurft að gera á liðnum árum. En fyrir Alþ. og þá alveg sérstaklega fyrir fjvn. er þetta atriði til mikilla bóta.
Frv. í heild vekur eðlilega upp spurningar um símaþjónustuna í landinu almennt. Það er vitað, eins og hæstv. ráðh. kom inn á, að þar hefur margt breyst og margt orðið til mikils batnaðar. Hér er líka um þá stofnun að ræða sem er hvað nátengdust fólkinu hvað snertir hin ýmsu mannlegu samskipti, og því veltur á miklu að þar takist vel til um allt starf. Uppbyggingu sjálfvirku stöðvanna í þéttbýli er nú að ég hygg lokið. Við austfirðingar urðum þar eins og oft áður einna seinastir til að fá á fulla leiðréttingu, en hún er þó nú komin. Og síðan er þessi uppbygging hafin að vissu marki í sveitum. Sjálfvirku stöðvarnar eru auðvitað um allt mikil bót og ekki vildi ég missa þá stöðu. Þó að vinur minn. Sigurður Blöndal, segist vilja helst banna að sjálfvirkur sími komist nokkurn tíma inn í Hallormsstað til þess að rjúfa friðhelgi sína á þeim tímum sem hann vill hafa hana ríkjandi, þá hygg ég að mikill meiri hluti sé á því að hið sjálfvirka kerfi hafi reynst til mikilla bóta.
Það hefur hins vegar áreiðanlega fyrst í stað og kannske alla tíð leitt til allmiklu meiri símakostnaðar hjá fólki almennt. Og þá kemur auðvitað upp hin mikla spurning um það, sem hæstv. ráðh. vék að í lok ræðu sinnar og var reyndar til umr. hér í sambandi við fsp. frá mér á dögunum, hvernig við getum reynt sem allra fyrst að ná jöfnuði í símgjöldum um allt land, þannig að landið verði í raun allt eitt gjaldsvæði og afnotin af símanum verði sem minnst forréttindi fyrir það fólk sem býr á höfuðborgarsvæðinu, — forréttindi segi ég vegna þeirrar miklu miðstöðvarbyggingar á öllum sviðum sem er á þessu svæði. Ég sem sagt ítreka þær áskoranir, sem ég hef áður haft uppi til hæstv. ráðh. og hann tekið vel undir, að stefna sem hraðast og best að því að jöfnun símgjalda verði sem fyrst raunhæf, að fólk, hvar sem það býr á landinu, njóti sama réttar í þessum efnum og þurfi ekki að greiða okurverð fyrir það eitt að vera á fjarlægu landshorni til að ná sambandi við hinar ýmsu þjónustustofnanir sem eru á höfuðborgarsvæðinu og reyndar líka út fyrir sitt oft tiltölulega takmarkaða svæði eða byggðarlag.
Áður hefur verið minnst á það og hæstv. ráðh. kom inn á það, að margar stöðvar hefðu verið lagðar niður og það væri ætlunin að halda þeirri stefnu áfram að vissu marki, en um leið að tengja þessar stöðvar og þá aðila, sem þeirra njóta, við stöðvar sem hefðu lengri tíma. Um þetta er ekki nema gott eitt að segja, enda hlýtur að vera mjög nauðsynlegt að símaþjónustan, einkum þó hvað snertir neyðarþjónustu í sveitunum, geti orðið sem allra best, en á það hefur mjög skort. Auðvitað batnaði það ekki við það að símatími sumra þessara stöðva var fyrir nokkru styttur og um leið versnuðu möguleikarnir í þessu sambandi. Hér er aftur sem sagt ætlunin að ráða á þessu bót. Hins vegar hef ég verið svolítið efins um, að opnunartíma hinna ýmsu stöðva í þéttbýli ætti að stytta, vegna hinna mörgu sem enn hafa þó ekki síma, en þurfa að hafa þar að vissan aðgang, og á vissum tímabilum verður álag á þessum stöðvum geysimikið. Ég nefni núna aðeins t. d. fyrir austan hjá okkur loðnutímabilið og það mikla álag sem er á símstöðvunum á þessum tíma. Og þá er auðvitað rétt að hafa í huga að hafa vissan sveigjanleika líka í opnunartíma þessara stöðva og möguleikum fólks til þess að komast inn á stöðvarnar til þess að hringja, einmitt með tilliti til sveiflna í atvinnulífi svipað og er með loðnuvertíðina nú.
Ég sem sagt ítreka enn einu sinni áskorun til hæstv. ráðh. um að hann vinni sem hraðast og best að jöfnun símgjalda, vinni sem hraðast og best að framkvæmd þeirrar þál., sem hér var samþ. á Alþ. fyrir nær þrem árum og allir voru sammála um að vinna bæri að. En ég get ekki farið héðan án þess að bera fram eina litla spurningu til hæstv. ráðh. Ég veit ekki hvort hann getur svarað henni, en ég vona það þó. Það er varðandi umdæmisstjórana og símaumdæmin. Ég ætla að vona að varðandi okkar umdæmi eystra verði engin breyting á hvað snertir aðalstöðina, ef svo mætti segja, eða aðsetur umdæmisstjórans. Ég vona að það sé ekki meiningin með þessu frv. að breyta þar til þ. e. a. s. að umdæmisstjóri okkar austfirðinga haldi áfram að sitja á þeim merka stað, Seyðisfirði, sem er orðinn sérstaklega merktur auðvitað í þessu tilliti, eins og hæstv. ráðh. kom inn á, með það verði ekki farið að hringla eins og maður hefur stundum heyrt raddir um.