21.02.1977
Efri deild: 44. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 2166 í B-deild Alþingistíðinda. (1626)

51. mál, skotvopn

Frsm. (Ingi Tryggvason):

Herra forseti. Allshn. Ed. hefur á nokkrum fundum sínum fjallað um frv. til l. um skotvopn, sprengiefni og skotelda. Eins og fram kom í ræðu hæstv. dómsmrh., er hann mælti fyrir frv. hér í hv. Ed., var það afgreitt í d. á síðasta þingi, en varð ekki afgreitt þá í hv. Nd. Brtt. þær, sem samþykktar voru í Ed. í fyrra, voru nú felldar inn í frv.

Enn gerir allshn. Ed. till. um nokkrar breytingar og eru þær prentaðar á þskj. 318. Er í þessum brtt. verulega stuðst við umsögn og tillögur lögreglustjórans í Reykjavík sem hann setti fram í vetur. Þá hefur n. haft samráð við dómsmrn. um brtt.

1. brtt. er um viðbót við 5. gr., þar sem gert er ráð fyrir að dómsmrh. geti sett í reglugerð kröfur um vörslu hleðslutækja, púðurs og hvellhettna og sömuleiðis um lágmarkskunnáttu handhafa skotvopnaleyfis til að fara með hleðslutæki. Þá er gert ráð fyrir að setja megi reglugerðarákvæði um að sérstakt leyfi lögreglustjóra þurfi til að fara með hleðslutæki.

Við 6. gr. frv. er brtt., sem gerir ráð fyrir að þeir, sem fái leyfi til framleiðslu skotvopna, skotfæra, sprengiefnis eða skotelda, þurfi að uppfylla sömu skilyrði og þeir, sem fá leyfi til að eignast skotvopn. Inn í 15. gr. eru þegar komin ákvæði um kunnáttu þeirra sem leyfi þessi fá. Fellt er niður orðalag um að þeir, sem fá leyfi til að versla með þetta, skuli vera ábyggilegir, en í staðinn tekin upp viðmiðun við þá sem hafa skotvopnaleyfi, vegna þess að mönnum þótti fyrra orðalagið dálítið teygjanlegt og gæti verið örðugt að dæma fullkomlega þar um.

Brtt. við 10. gr. er tilsvarandi við breytingu á 6. gr. Er vísað til skilyrða 15. gr. um veitingu skotvopnaleyfis og gert ráð fyrir að leyfi til verslunar með skotvopn sé því bundið að verslunarfyrirtæki, sem leyfi fái til sölu á skotvopnum, hafi í þjónustu sinni mann sem fullnægi skilyrðum 15. gr. um skotvopnaleyfi og sé ábyrgur fyrir vörslu varanna.

Allshn. leggur til að viðbótarákvæði komi við 11. gr., þar sem lögreglustjóri fái heimild til að leggja hald á skotvopn og skotfæri, ef hann telur vörslu varanna ábótavant, enda tilkynni hann dómsmrn. tafarlaust um framkvæmdina. Verður þá í verkahring dómsmrn. að ákveða framhaldsaðgerðir.

Við 20. gr. frv. eru gerðar tvær brtt. Önnur er um rétt lögreglu til að færa mann til skoðunar hjá lækni, ef lögreglan telur sig hafa ástæðu til að ætla að brotin séu ákvæði gr. um bann við því að þeir, sem eru undir áhrifum áfengis eða annarra vímugjafa, fari með skotvopn. Þarna er um hliðstæð ákvæði að ræða og eru í umferðarlögunum. Hin brtt. felur í sér að ekki megi skjóta úr ökutæki á ferð.

Þá er loks lagt til að í 22. gr. komi ákvæði um geymslu skotvopna, þar sem eigendur þeirra séu skyldaðir til að geyma skotvopn og skotfæri í aðskildum læstum hirslum, þannig að skotvopn og skotfæri séu ekki í sömu hirslunni.

Eins og fram kemur, ef brtt. allshn. eru athugaðar, var sú skoðun uppi í n. að fremur bæri að herða ákvæði frv. um alla meðferð og geymslu skotvopna og skotfæra.

N. telur nauðsynlegt að sett séu ákvæði í reglugerð sem stuðli að því að auðvelda allt eftirlit með meðferð og vörslu skotfæra og skotvopna, hvort sem er í verslunum, heimahúsum eða við notkun. Fram kom að nm. töldu nauðsynlegt að fram færu kannanir á því, hvort lögum væri hlýtt um vörslu skotvopna og skotfæra. Þá var rætt um nauðsyn þess að skotvopnum og skotfærum fylgdu nákvæmar upplýsingar á íslensku um alla meðferð tækja þeirra og hættulegra efna sem fjallað er um í lögum þessum. Nm. voru sammála um að nauðsynlegt væri að fylgjast sem best með skráningu skotvopna og skotleyfa og æskilegt væri að halda allsherjarskrá um skotvopn og skotleyfi. Ekki er í frv. ákvæði um bann við að skjóta úr flugvél, en fram kom að e. t. v. mætti finna dæmi um að hér á landi hefði verið skotið á dýr úr flugvélum og ástæða gæti verið til að setja í reglugerð bann við slíku.

Herra forseti. Ég vil að lokum ítreka það, sem segir í nál., að allshn. Ed. leggur til að frv. verði samþ. með þeim breytingum, sem hér hefur verið lýst. Hv. 2. þm. Norðurl. e. var fjarverandi við afgreiðslu málsins.