21.02.1977
Neðri deild: 51. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 2195 í B-deild Alþingistíðinda. (1635)

163. mál, atvinnulýðræði

Eðvarð Sigurðsson:

Hæstv. forseti. Það fer ekkert á milli mála að það frv., sem hér hefur nú verið reifað í framsögu, fjallar um stórmál, og það er ekkert minna fyrir það, þó að um það hafi verið fjallað áður bæði hér í sölum Alþ. og víðar, m. a. í verkalýðshreyfingunni allnokkuð, en þó kannske mun minna en ætla mætti.

Ég tel að þetta frv., sem hér er til umr., sé allrar athygli vert og virðingarvert að setja þetta mál, sem hefur verið áður flutt að mestu í þáltill., setja það nú í frv-form þannig að menn geti áttað sig betur á efnisatriðum málsins og fyrirkomulagi heldur en ef um er að ræða þáltill. sem aðeins er áskorun um rannsókn eða eitthvað í þá áttina.

Ég er fullkomlega sammála því sem hv. þm. Benedikt Gröndal sagði áðan um þann þátt þessa frv. sem er kjarni þess, þ. e. aukin áhrif verkafólks til stjórnar á fyrirtækjum og þá einnig til áhrifa á umhverfi sitt á vinnustað. Það er einkum og sér í lagi þessi stjórnunarþáttur sem ég tel að sé ekkert vafamál að löggjafinn á að fást við, og með því er ekki verið að grípa inn í samningamál aðila vinnumarkaðarins. Það væri kannske frekar varðandi samstarfsnefndirnar í því formi sem þær hafa verið hugsaðar og þróast hér í nágrannalöndum og fyrst og fremst þróast með samkomulagi aðila vinnumarkaðarins, enda hefur verksvið þeirra nefnda yfirleitt verið miklu takmarkaðra en það, að verkafólkið eigi beina aðild að stjórn fyrirtækjanna. Ég gæti sem sagt vel hugsað mér að sá þátturinn væri frekar og meira í höndum samningsaðilanna. Það er sá þáttur sem verkalýðsfélögin hafa lengi fengist við og hljóta að gera áfram, þrátt fyrir það að slíkar samstarfsnefndir yrðu til í ríkari mæli en nú er. Sú er reynslan, að þar sem þessar samstarfsnefndir eru til hér, en það er í ákaflega smáum stíl, ég undirstrika það: í ákaflega smáum stíl reynsla af þeirra störfum, þá hafa verkalýðsfélögin í raun og veru áfram haft bein afskipti af þessum málum.

Það er ekki neinn efi á því að það stóra í þessu máli eru áhrif verkafólksins, verkamannanna á stjórnun fyrirtækjanna, og þá er spurning hve víðtæk sú þátttaka á að vera. Þá er rétt, held ég, að hafa í huga að í öllum okkar nágrannalöndum er ekki aðeins sá þátturinn, sem hér er kallaður atvinnulýðræði, sem um er að ræða, heldur er í vaxandi mæli og í mjög vaxandi mæli lögð áhersla á efnahagslýðræði, þ. e. a. s. að hinir svokölluðu eigendur fjármagnsins, hvort sem það eru peningar eða vélar og allt slíkt, þeir hafi ekki óskoraðan rétt um ráðstöfun fjármagnsins.

Það er hugsanlegt að það liggi í sérkennum íslensks atvinnulífs, að þessi mál eru eins á vegi stödd í okkar landi og raun er á og hér er búið að taka fram, þ. e. a. s. þau eru ekki neitt líkt því jafnmikið umrædd eða málin jafnmikið í sviðsljósinu, ef svo mætti segja, eins og þau eru og hafa verið í öðrum löndum, þó einkum okkar nágrannalöndum. Það er í fyrsta lagi ekki mikið um stór fyrirtæki á borð við það sem annars staðar er. Í öðru lagi er eignaraðildin að atvinnutækjum á Íslandi áreiðanlega einhver þáttur í því, á hvaða vegi þessi mál eru stödd. Hvað skyldi það vera stór hluti af íslenskum atvinnufyrirtækjum sem hreinlega er rekinn af opinberum aðilum og samvinnuhreyfingunni? Það mætti segja mér, ég þori ekki að fara með tölur, en ég gæti trúað því að það væri jafnvel ekki undir 60–70%. Hér kemur ríkið, sveitarfélögin og almenningur þá einnig og svo samvinnufélögin, þannig að fólkið hér er sjálfsagt að mörgu leyti nær því að vera þátttakendur, stjórnun atvinnulífsins er kannske miklu nær en víðar annars staðar. Ég held að það væri ómaksins vert að einmitt þessi þáttur væri rannsakaður meira. og hefði kannske verið gott að sú n., sem átti að taka þessi mál til meðferðar samkv. samþykktri þáltill. á sínum tíma, 1971 eða 1972, hefði einmitt lítið á þetta atriði.

Ég held sem sagt að við eigum ekki að einblína á erlendar fyrirmyndir í þessu máli, og ég er engan veginn að segja að þetta frv. geri það, heldur nokkuð aðhæft íslenskum aðstæðum þótt fyrirmyndirnar séu út af fyrir sig erlendar. En ég held að það væri þess virði að taka málið allt í beinum tengslum við rannsókn á íslensku atvinnulífi og aðhæfa betur stjórnunarþátttöku verkafólksins. og svo er fyrst og fremst skylda verkalýðshreyfingarinnar og verkalýðsflokkanna að huga einnig meira og rækilegar að heim þætti sem ég vil nefna hreint efnahagalýðræði.

Hv. þm. Ragnhildur Helgadóttir taldi að sá þáttur þessa máls, sem fjallar um samstarfsnefndir og aðbúnað á vinnustað, væri allra góðra gjalda verður, en hafði hins vegar meiri fyrirvara í máli sínu þegar kom að því, að verkafólkið tæki beinan þátt í stjórnun fyrirtækjanna, og taldi, að það þyrfti ekki að snerta hag starfsmanna á sama hátt og störf samstarfsnefnda um aðbúnaðarmál og annað slíkt. Ég held að ekki sé rétt að líta á málin þannig. Við höfum fyrir okkur núna ákaflega ferskt dæmi, bar sem stjórn fyrirtækis tók ákvörðun sem hafði ákaflega afdrifarík áhrif á afkomu stórs hluta af starfsfólki þess fyrirtækis. Ég á hér við ákvörðun stjórnar Mjólkursamsölunnar að leggja niður allar mjólkurbúðir fyrirtækisins. Er nú ekki hugsanlegt að þetta mál hefði fengið aðra og miklu farsælli meðferð ef fulltrúar verkafólksins hjá Samsölunni hefðu átt aðild að stjórn fyrirtækisins? Ég held að það sé ekkert vafamál, að hagsmunir starfsfólksins séu ekki minni í því, hvernig rekstur fyrirtækisins er, heldur en hinu, í hvaða ástandi tiltekinn aðbúnaður er á vinnustað og annað slíkt.

Ég vil leggja ríka áherslu á að það er ekki vandalaust verk og ekki endilega öfundsverð aðstaða sem það fólk er sett í sem kosið er úr hópi starfsmannanna í stjórn fyrirtækja. Það er ekki langt síðan ég átti tal um þessi mál við forustumann úr verkalýðshreyfingunni í nágrannalandi okkar. Það má e. t. v. segja að hann hafi málað myndina nokkuð svarta en hann sagði, að vandinn væri slíkur að fólk væri þarna á milli tveggja elda. Ef menn stæðu sig ekki eða verkafólkinu fyndist menn ekki standa sig, þá ættu þessir menn í raun og veru þann kostinn einan, þegar stjórnartími þeirra væri útrunninn, að segja upp hjá fyrirtækinu og hverfa á braut, þeir væru ekki vinsælli en það. Ef hins vegar þetta fólk stæði sig verulega, þá væri tilhneiging fyrirtækisins til þess að losna við það svo sterk, að því væri helst gert ólíft á vinnustað Það er því áreiðanlega ekki öfundsvert starf, og þegar löggjöf verður sett um þessi mál, sem ég álít að eigi að gera, þá þarf að búa svo um hnútana að þetta geti ekki gerst.

Ég ætla ekki að hafa fleiri orð um málið að þessu sinni. Ég tel að hér sé um stórmál að ræða sem þingið þarf að skoða vel. Og það er enginn efi á því, að það er tímaspursmál hvenær ákvæði í þessa átt verða í lög leidd, en ekki hitt, að það eigi ekki að gerast.