22.02.1977
Sameinað þing: 54. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 2200 í B-deild Alþingistíðinda. (1638)
152. mál, samstarf við grannþjóðir um sjávarútvegsmál
Sjútvrh. (Matthías Bjarnason) :
Herra forseti. Ég ætla ekki að svara neinu í sambandi við Kastljós eða sjónvarpið, það verða aðrir að gera, en sný mér að því að svara fyrirspurn hv. fyrirspyrjanda á þennan veg:
Íslendingar eru aðilar að norrænni samstarfsnefnd um sjávarútvegsmál sem hefur fundi tvisvar á ári og hefur það að markmiði að efla samstarf Norðurlanda í fiskveiði- og fisksölumálum. Íslendingar buðu til norrænnar fiskimálaráðstefnu í Reykjavík í ágúst 1976, þar sem miklar umr. urðu einnig um þessi mál, en ráðstefnuna sóttu 200 fulltrúar frá flestum greinum sjávarútvegsins á öllum Norðurlöndunum. Á ofangreindum vettvangi og svo auðvitað á Hafréttarráðstefnu Sameinuðu þjóðanna hafa íslendingar rekið áróður fyrir því að Norðurlöndin og aðrar þjóðir nái sem fyrst valdi á sókninni á fiskimiðum undan ströndum þeirra, en eins og kemur fram í þáltill. frá 1973 er það forsenda samstarfs um vernd og nýtingu fiskstofnanna. Fulltrúar Norðurlanda á Hafréttarráðstefnunni hafa stofnað til sérstakrar norrænnar samstarfsnefndar í því skyni að samræma og efla sjónarmið sín á þeim vettvangi.
Eins og allir vita, hafa íslendingar til þessa alltaf verið skrefinu á undan öðrum Norðurlanda- og Evrópuþjóðum í þessu efni. Þannig var það ekki fyrr en um síðustu áramót að norðmenn og færeyingar tóku sér 200 sjómílna fiskveiðilögsögu. Það er því í raun og veru nú fyrst sem hægt er að tala um grundvöll gagnkvæmrar samvinnu og fiskveiðiréttinda. Þótt liðinn sé rúmur mánuður — eða senn tveir mánuðir — frá því að þessi grundvöllur skapaðist hefur þegar verið gerður samningur við færeyinga í þessum anda. Frá því að þál. var samþ. 1973 og til þessa tíma hafa íslendingar svo auðvitað sýnt í verki vilja sinn til samstarfs við norðmenn og færeyinga í fiskveiðimálum með því að gera fiskveiðisamninga við báðar þessar þjóðir: Það má nefna sem dæmi um samvinnu þessara þriggja landa loðnuveiðarnar við Nýfundnaland í fyrra og hittiðfyrra, en þá fiskuðu bæði íslensk og færeysk skip með norskum í bræðsluskipið Norglobal. Loks hafa þessar þjóðir haft gott samstarf t. d. í Norðaustur-Atlantshafsnefndinni, aðallega um síldveiðikvóta í Norðursjó, og gott samstarf hefur einnig verið á milli íslendinga, norðmanna og dana í Alþjóðahvalveiðiráðinu. En hér skal staðar numið og vikið að hinum þætti þessa máls, samstarfi á sviði fisksölu.
Á liðnum árum hefur átt sér stað þróun í átt til aukins samstarfs og upplýsingaskipta á milli íslendinga og fiskútflutningsþjóða við Norður-Atlantshaf á vettvangi fisksölumala. Hafa hin vaxandi samskipti komist í fastari skorður með árunum. Í byrjun var þetta byggt á upplýsingaskiptum milli einstakra útflutningsaðila, en hefur þróast til þess að hið opinbera á þar nú beina aðild í vissum tilfellum. Sem dæmi um slíkt skulu nefnd: upplýsingaskipti við skreiðarútflutningsráð norðmanna um skreiðarsölumál, samskipti við norðmenn, dani, færeyinga, grænlendinga og kanadamenn um upplýsingar um freðfiskmarkaði, samvinna við þessar þjóðir um sameiginlega útbreiðslu- og auglýsingastarfsemi á Bandaríkjamarkaði vegna sölu á frystum fiski veiddum úr Norður-Atlantshafi. Þá hafa átt sér stað skoðana- og upplýsingaskipti við sömu þjóðir í sambandi við rækjusölu og við norðmenn vegna hrognsölumála, en þau eru lausari í reipunum. Þessu til viðbótar má nefna að hvers konar bein samskipti fiskútflytjenda frá umræddum löndum hafa einnig farið vaxandi. Svo er t. d. á sviði sölu saltfisks, freðfisks og mjöls. Ýmislegt bendir til að sú þróun, sem hér er gerð að umtalsefni, muni halda áfram. Þau sambönd, sem tekist hefur að skapa í þessum efnum, ættu að geta verið ákjósanlegur grundvöllur til að byggja á frekara samstarf þegar ástæða þykir til. En allar ákvarðanir um aðild hins opinbera að slíkri starfsemi hafa verið teknar í samráði við viðkomandi útflytjendur.
Eins og hér kemur fram, hefur samstarf íslendinga í fisksölumálum við aðrar þjóðir ekki verið bundið við færeyinga og norðmenn, eins og fjallað er um í þál., heldur einnig við aðrar fiskveiðiþjóðir við Norður-Atlantshaf.
Þá ber einnig að minna á það hér, að Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna selur mikið af freðfiski fyrir færeyinga í Bandaríkjunum, og einnig hefur Félag ísl. fiskmjölsframleiðenda haft samstarf við samsvarandi félagsskap í Noregi.
Það, sem mjög háir samstarfi á sviði fisksölumála, einkum við norðmenn, er sú styrkjastefna sem norska ríkisstj. tók upp fyrir allmörgum árum og hefur haldið við og hefur haft skaðleg áhrif fyrir okkur í samkeppni um sölu á fisktegundum á erlendum mörkuðum. Á vegum íslensku ríkisstj. og einstakra rn. hafa farið fram allítarlegar umr. við norsk stjórnvöld og m. a. við forsrh. Noregs og sjútvrh. Noregs á s. l. sumri um breytingar í þessum efnum. Þar er aftur um vanda að ræða heima fyrir, einkum hvað snertir búsetu og þá í Norður-Noregi, og þessi stefna helst um sinn. Á hinu er aftur að verða mikil breyting, að þegar færeyingar og norðmenn hafa nú fært út í 200 mílur og við íslendingar, þá er miklu frekari grundvöllur til þess að auka og efla samvinnu á milli þessara landa um fiskvernd og yfirleitt allar upplýsingar um fiskstofna í landhelgi hverrar þessara þjóða fyrir sig.
Ég held að ég hafi þetta svar ekki ítarlegra að sinni, en hér er um vaxandi samskipti að ræða á milli þessara þjóða sem og annarra þjóða sem veiða í Norðaustur-Atlantshafi.