23.02.1977
Efri deild: 45. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 2252 í B-deild Alþingistíðinda. (1661)

51. mál, skotvopn

Frsm. (Ingi Tryggvason) :

Herra forseti. Hv. 1. landsk. þm. hefur gert nokkrar athugasemdir við frv. það, sem hér er til meðferðar í hv. Ed., og beðið um skýringar, sem ég er e. t. v. ekki fær um að gefa nema að einhverju leyti.

Samkvæmt frv. held ég að það sé algjörlega ljóst, að það eigi að innkalla öll skotvopnaleyfi, og hugsunin sé sú, að þau skuli endurnýjuð eftir því sem efni standa til. Það kann vel að vera að á þessu séu örðugleikar, um það þori ég ekki að dæma, og vafalaust er það rétt hjá hv. ræðumanni, að þetta kostar verulega vinnu. En ég lít a. m. k. svo á, að megintilgangurinn með setningu þessara laga sé að herða mjög hvers konar eftirlit með skotvopnum, hverjir eigi þau, hvernig sé með þau farið, hvernig þau séu varðveitt og hvernig þau séu notuð. Það má vafalaust um það deila, hversu langt eigi að ganga í þessu efni, eins og t. d. hvort krefja eigi nýs gjalds við endurnýjun skotvopnaleyfis, en um það hljóta að verða sett ákvæði.

Þá minntist ræðumaður á örðugleikana á því að geyma skotvopn í læstum hirslum. Ég hef ekki skoðað þetta ákvæði þannig að það þyrfti að búa til nýjar geymslur fyrir skotvopn, þó kann að vera að þess þyrfti undir sumum kringumstæðum, heldur hitt, að skotin væru t. d. geymd í skúffu, ef byssan væri geymd inni í læstum skáp. Tilgangurinn með þessu er vitanlega sá, að óvitar geti ekki náð til þessara tækja fyrirhafnarlaust í einu og verði með þessu betur en áður séð fyrir því að ekki hljótist af óvarkárni slys af þessum tækjum.

Þá er atriðið um það að ekki megi skjóta yfir annars manns land eða í annarra manna landi. Þarna er verið að tryggja rétt þeirra sem yfir landinu ráða. Það er öllum kunnugt að það eru nokkur brögð að því að skotvopn eru þannig notuð, jafnvel heima við bæi eða þar sem búfé gengur þétt í högum, að hætta getur af stafað, og vissulega hafa orðið slys af slíku. Þarna eins og annars staðar má auðvitað um það deila, hversu langt skuli ganga, og örugglega má finna dæmi um það, að mjög örðugt sé að sjá til þess, að þessar reglur verði ekki brotnar.

Ég ætla ekki að fjölyrða miklu frekar um þetta. Það hlýtur að verða álitamál hversu ströng lög þurfi að gilda um skotvopn og meðferð þeirra. En allshn. Ed., sem hefur fjallað allverulega um þessi mál, hefur komist að þeirri niðurstöðu að fremur sé rétt að herða þau ákvæði, sem voru í upphaflega frv., heldur en að slaka á þeim, og í samræmi við það hafa einstök atriði verið hert nokkuð frá því sem áður var.