23.02.1977
Neðri deild: 52. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 2270 í B-deild Alþingistíðinda. (1672)
163. mál, atvinnulýðræði
Benedikt Gröndal:
Herra forseti. Það er mjög ánægjulegt að svo miklar umr. skuli hafa spunnist um þetta frv. og það mál sem frv. fjallar um, enda þótt gengið hafi á ýmsu í umr. og stundum hafi þær snúist um efnið og stundum um sitthvað annað.
Ég vil taka sérstaklega undir nokkur ummæli hv. síðasta ræðumanns, Jóhanns Hafsteins fyrrv. forsrh., og þá sérstaklega þann grundvallarskilning hans, að á bak við frv. og málið í heild er sú hugmynd að reyna að laða saman fjármagnið og vinnuna, sem ég tel að væri þjóðfélagslega æskilegt. Í öðru lagi er ég sammála honum um að sjá má í gegnum þessar umr., að hugsanir ræðumanna eru að verulegu leyti samstæðar þrátt fyrir allt. Þetta er annað mjög jákvætt atriði. Er þá um leið ástæða til þess fyrir mig sem einn af flm. að þakka hv. 11. þm. Reykv. fyrir að lýsa í lok ræðu sinnar yfir grundvallarstuðningi við þetta mál.
Hvað snertir umr. um efni frv., þá hafa þær í fyrsta lagi snúist um formsatriði. Ég sé ekki ástæðu til að teygja úr þeim umr. Það er mikið rétt í því sem sagt hefur verið til að gagnrýna bandormsfrv. yfirleitt. Ekki verður sagt að efni þessa frv. sé ekki einfalt og skýrt, þannig að það fari ekki fram hjá mönnum, og ef ekki stendur á öðru en að endurbæta formið munum við flm. verða reiðubúnir til samstarfs um það.
Í öðru lagi hefur verið rætt um fyrirsögn frv. og hefur mönnum þótt í of mikið ráðist að nota þar orðið atvinnulýðræði. Það má vel vera. Ég hef sagt það í fyrri ræðum, að ég tel að atvinnulýðræði nái yfir víðtækara svið en felst í þessu frv. En fram hjá hinu verður ekki gengið, að það, sem í frv. er, heyrir allt undir atvinnulýðræði og er meðal veigamestu þátta atvinnulýðræðis. Ég get því sagt eins nm fyrirsögnina og form frv.: ef hún stendur í mönnum skal ekki standa á flm. að hafa fullt samstarf um að finna betri fyrirsögn.
Hvað sjálft efnið snertir hafa spunnist heldur misjafnlega skemmtilegar umr. um fortíðina. Í því sambandi vil ég taka fram, að það hefur ekki verið áform flm. eða ætlun þeirra að draga fjöður yfir það að menn hafi áður fjallað um ýmis atriði sem snerta þetta mál, þó að það hafi oft verið við allt aðrar aðstæður, eins og t. d. fyrir 40–50 árum, þegar mörg fyrirtæki, bæði hér á landi og e. t. v. öllu meira í öðrum löndum, veittu starfsmönnum hlutdeild í arði, tvímælalaust í þeim tilgangi að reyna að friða þá og draga úr mætti verkalýðssamtaka eða annarra samtaka sem beittu sér gegn því efnahagsskipulagi sem ríkti. Þetta hefur tekið breytingum. og nú á síðustu áratugum hafa bæði hér á landi og annars staðar verið ört vaxandi umr. um atvinnulýðræði í öllum formum þess og þá alveg sérstaklega um hlutdeild starfsmanna í stjórn fyrirtækja.
Ef mönnum finnst ekki nógu mikill áhugi hafa komið fram hér á landi til þess að Alþ. fjalli um þetta mál og taki nú ákvarðanir um það, þá tel ég að það sé á misskilningi byggt. Forráðamenn Sambands ísl. samvinnufélaga hafa lagt annað mat á málið. Þeir hafa talið það vera tímabært til ákvörðunar og þeir hafa tekið þá ákvörðun. Í framsöguræðu var frá þessu skýrt og um það rætt í einum kafla og farið mjög lofsamlegum orðum um þann áhuga, sem stjórn Sambands ísl. samvinnufélaga hefur sýnt, og þá forustu, sem hún hefur tekið, enda þótt fulltrúar starfsmanna, sem nú þegar sitja í stjórn Sambandsins, hafi þar ekki atkvæðisrétt. Þetta út af fyrir sig er vitnisburður. Og stjórn Sambandsins er ekki að gera þetta í lausu lofti. Ég átti þess t. d. kost í fyrra, frekar en hittiðfyrra, að mæta á fundi áhugamanna meðal samvinnumanna, en þeir höfðu komið upp umræðuhópi einmitt um þessi mál. Sams konar umræðuhópar hafa starfað t. d. í félagi starfsfólks í ríkisfyrirtækjum, og þar kom líka fram mjög viðtækur og mikill áhugi á því að stigin yrðu raunhæf skref í þessu máli til þess að byrja göngu okkar í áttina til meira atvinnulýðræðis og þar með fjölbreyttara og betra lýðræðis yfirleitt heldur en við höfum gert hingað til.
Það hefur verið minnst á starfshóp innan Sjálfstfl. sem skilaði ítarlegri skýrslu. Það hefur verið minnst í framsöguræðu á bók, heila bók. sem hefur komið út um þessi mál. Það hefur verið lesið úr ályktunum Framsfl. En þrátt fyrir allt þetta, sem sýnir að áhugi hefur verið fyrir hendi og hann hefur farið ört vaxandi, hefur ekkert gerst í málinu á landsgrundveili. Það hafa verið stigin skref eins og í Sambandinu, en á landsgrundvelli og hér á Alþ. hefur ekkert gerst í málinu. Vinstri stjórnin féllst á að stuðningsmenn hennar veittu fylgi sitt ályktunartill., sem ég hygg að hafi verið samþ. einróma, um að setja n. til að vinna að slíkri löggjöf sem hér er um að ræða. Síðan eru fjögur ár liðin og kunnugir vita að störf þessarar n. fóru út um þúfur, hverju sem um er að kenna. Ég er ekki grunlaus um að nm. hafi hreinlega haft of mikið af störfum á sinni könnu, en skal ekkert um það fullyrða.
Ég dreg engan veginn í efa að áhugi sé fyrir hendi, en vil aðeins benda á að þrátt fyrir áhugann innan Sjálfstfl. og þrátt fyrir áhugann innan Framsfl. hafa þessir flokkar ekki tekið frumkvæði hér á Alþ. til þess að gera neitt ákveðið í þessu máli. Þegar hefur komið að raunverulegum aðgerðum hefur oft verið beitt af hálfu þessara flokka þófi eða tilraunum til að eyða málunum. Mér er það minnistætt að á síðasta ári viðreisnarstjórnarinnar, þinginu 1970–71, var hér til umr. frv. að nýjum lögum um Áburðarverksmiðjuna, og ég flutti till. um nýja grein í þeim lögum þar sem fjallað var um að setja skyldi upp samstarfsnefnd, sem allir mæla nú með sem góðu fyrirbrigði, — samstarfsnefnd milli starfsmanna og stjórnar Áburðarverksmiðjunnar. Það fór svo að þessi till. var samþ. með atkv. Alþfl. og þáv. stjórnarandstöðu, ekki náðist samkomulag um þetta atriði innan ríkisstj. og þáv. landbrh., Ingólfur Jónsson, beitti sér af hörku hér í salnum gegn þessu ákvæði. Nú vill svo til að starfsmenn Áburðarverksmiðjunnar bentu mér á það mjög nýlega, að þrátt fyrir þetta lagaákvæði hefði ráðh. verksmiðjunnar aldrei gefið út reglugerð um samstarfsnefnd milli starfsmanna og stjórnar. Starfsmennirnir kusu menn af sinni hálfu, eins og þeir áttu að gera, til að vinna að þessu, en rn. brást og enn í dag, 6 árum síðar, er ekki búið að setja upp þessa samstarfsnefnd. Hygg ég þó að yfirráð Áburðarverksmiðjunnar séu ekki það langt frá stjórnendum og áhrifamönnum í Sjálfstfl. og Framsfl. að þeir gætu ekki, ef þeir hefðu raunverulegan áhuga, ýtt við því að það væri a. m. k. fylgt lögum um þetta mál. Þetta er aðeins dæmi til þess að sanna að það hefur ekki legið á lausu að stíga skref í þessu máli hér á Alþingi.
Rætt hefur verið um það, hvort ástæða sé til að starfsmenn fyrirtækja eigi aðild að stjórnum þeirra eða ekki. Það er vafalaust mikið til í því, sem hér hefur komið fram, að fyrr á tímum og kannske fram til síðustu áratuga hafa atvinnuvegir íslendinga verið þannig, að það lá ekki eins í augum uppi að fara inn á þessa leið eins og hjá þeim þjóðum sem iðnvæddust miklu fyrr en við. En þessar aðstæður hafa á síðustu áratugum gjörbreyst, og það eru sannarlega þegar í okkar þjóðfélagi nokkur hundruð fyrirtæki þar sem rík ástæða væri til að starfsmenn ættu aðild að stjórn fyrirtækjanna. Með því væri þáttur vinnunnar viðurkenndur á móti þætti fjármagnsins og eins og hér var orðað: laðað saman fjármagnið og vinnan. Væri ekki ástæða til þess t. d. í álverinu? Ég býst við að starfsmenn, sem fengju sæti í stjórn þar, hefðu ýmislegt sem þeir vildu koma á framfæri. Væri ekki ástæða til þess í Kísilgúrverksmiðjunni t. d., í Sementsverksmiðjunni eða í Áburðarverksmiðjunni, þar sem ekki einu sinni má setja upp samstarfsnefnd sem lög þegar mæla fyrir um? Þannig gæti ég talið fjöldamörg fyrirtæki. Og ég vil taka sérstaklega undir ábendingu hv. þm. Eðvarðs Sigurðssonar, þegar hann minnti á að það hefði getað skipt sköpum fyrir hóp starfsmanna ef þeir hefðu átt aðild að stjórn Mjólkursamsölunnar hér í Reykjavík síðustu missirin. Dæmi um slíkt verða fleiri með hverju árinu sem líður.
Það er ekki ætlun okkar alþfl.-manna að sækja þetta mál með neinu offorsi þó að við svörum fyrir okkur þegar við mætum andófi og úrtölum gegn málum sem rík ástæða er til að ætla að mjög almennt samkomulag sé um hvað grundvallaratriði snertir. En látum það kyrrt liggja.
Ég vil að lokum ítreka það sem við sögðum í fyrri hluta umr., að það hefur aldrei hvarflað annað að okkur en að Alþ. tæki þetta mál til meðferðar í n. og rannsókn þeirrar n. gæti leitt til margvíslegra breytinga á málinu. Við munum verða reiðubúnir til fullkomins samstarfs um það, að svo miklu leyti sem þess er þörf af hálfu flm., en viljum vænta þess að nú hreyfist þetta mál og menn láti sér ekki nægja orðin ein öllu lengur, heldur byrji að stíga fyrstu raunverulegu skrefin.