28.02.1977
Neðri deild: 53. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 2324 í B-deild Alþingistíðinda. (1712)

51. mál, skotvopn

Dómsmrh. (Ólafur Jóhannesson) :

Herra forseti. Ég verð að játa að ég er ekki svo vel að mér í þessum efnum að ég geti dæmt um hvor hefur réttara fyrir sér í þessum atriðum og hvort hér sé mikið til af slíkum byssum sem nefndar voru eða ekki. En um hitt hljóta allir að vera sammála, að það sé óheilbrigt og ekki forsvaranlegt að nota skotvopn sem geti sært fugla við fuglaveiðar, en ekki banað þeim, og valdið þannig mjög miskunnarlausri meðferð. Það er rétt, að það er ekki í þessu frv. beint bannákvæði eða ákvæði um hvernig vopnið skuli vera að þessu leyti. Þó mætti e. t. v. koma því undir síðustu mgr. 15. gr., þar sem segir að dómsmrh. geti sett reglur um vopn sem teljist sérstaklega hættuleg. Það má vel vera að þessi vopn, eins og þeim hefur verið lýst hér, yrðu talin hættulegri en vopn eða skotfæri almennt. En ég tel sjálfsagt að hv. allshn. taki þetta atriði til athugunar og setji um það viðeigandi ákvæði ef hún telur ástæðu til og getur fundið form á því.

Annars vil ég segja það út af því, sem hv. 5. þm. Vesturl. sagði varðandi fuglaveiðar og fuglafriðun, að það eru sérstök lög um það efni og þessi lagasetning haggar ekki á neinn hátt við þeirri löggjöf. Og það er alveg rétt, að í þeim lögum, lögum um fuglafriðun og fuglaveiðar, eru bannaðar t. d. tilteknar veiðiaðferðir. Ég man nú ekki hvort breyting var gerð á þeim eftir að samþykkt var þessi alþjóðasamþykkt eða ekki. Ég tel þó líklegt að þeim lögum hafi verið breytt í samræmi við hana. En ef það er ekki, þá er sjálfsagt ástæða til að kanna það efni. En ég held ég fari ekki með rangt mál, að fuglafriðun eins og önnur friðun og þá líklega fuglaveiðarnar líka heyri undir menntmrh., en ekki dómsmrh., svo að það er hans hlutskipti að endurskoða þær reglur, sem má vel vera að sé ástæða til, því að fuglaveiðar með skotvopnum, þar sem menn fara upp um fjöll og firnindi, á nýjum tækjum jafnvel sem ekki voru áður fyrir hendi, geta kallað á nýjar reglur í þessum efnum. En það er sem sagt ekki sérstaklega hlutverk þessa frv. og þeirrar löggjafar, sem hér er um að ræða, að kveða á um þau efni, heldur yrði það að gerast, að ég held, í þeim lögum sem fjalla um fuglafriðun og fuglaveiðar. En náttúrlega er fleira friðað en fuglar og fleira veitt en fuglar og getur þurft að athuga fleira í því sambandi.