28.02.1977
Neðri deild: 53. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 2329 í B-deild Alþingistíðinda. (1718)

67. mál, Lífeyrissjóður bænda

Fjmrh. (Matthías Á. Mathiesen):

Virðulegi forseti. Í sambandi við lausn kjaradeilunnar í febrúarmánuði á s. l. ári gerðu Alþýðusamband Íslands, Vinnuveitendasamband Íslands og Vinnumálasamband samvinnufélaganna með sér samkomulag um málefni lífeyrissjóða, þar sem m.a. var gert ráð fyrir að lífeyrissjóðir á samningssviði þessara samtaka veittu lífeyrisþegum sínum, sem rétt eiga samkv. l. nr. 63 1971, sérstaka uppbót á árunum 1976 og 1977, þannig að lífeyrisgreiðslur þessar yrðu betur verðtryggðar en hafði verið fram að þeim tíma. Í l. nr. 33 20. maí 1976, um breyt. á l. nr. 63 frá 1971, var þessu áformi hrundið í framkvæmd. Jafnframt hafði verið gert ráð fyrir því, að sambærilegar breytingar yrðu gerðar á lögum um Lífeyrissjóð bænda. Hins vegar vannst ekki tími til að bera slíkt frv. fram á síðasta þingi.

Talið var nauðsynlegt til þess að ná sambærilegum greiðslum úr Lífeyrissjóði bænda og þeim, sem þá þegar höfðu verið upp teknar úr þeim lífeyrissjóðum sem ég gat um áðan, að setja brbl. á s. l. sumri og var það gert. Frv. það, sem hér er til umr., er flutt til staðfestingar á þeim brbl., frv. á þskj. 73, og gerir ráð fyrir breyt. á l. um Lífeyrissjóð bænda til samræmis við þær breytingar sem gerðar höfðu verið og ég gat um áðan.

Í hv. Ed. var gerð breyting á frv. eins og það var lagt fram, nánast leiðrétting. Það hafði verið um að ræða misritun í 10. gr. Brtt. er á þskj. 322, að í 10. gr. frv., þar sem stendur að ákvæði 1. gr. skuli gilda frá 1. jan. 1975, komi: ákvæði 2. gr.

Ég tel ekki ástæðu til að fjölyrða meira um frv., en leyfi mér að leggja til að því verði að lokinni þessari umr. vísað til 2. umr. og hv. fjh.og viðskn.