28.02.1977
Neðri deild: 53. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 2338 í B-deild Alþingistíðinda. (1724)

Umræður utan dagskrár

Ellert B. Schram:

Herra forseti. Þegar ég sit undir ræðum eins og þeim, sem fluttar voru hér af tveim síðustu hv. þm., sannfærist ég betur um það, hversu nauðsynlegt er að hér fari fram a. m. k. einu sinni á ári á Alþ. alvarleg og hreinskilnisleg umr. um mennta- og skólamál. Ég get vel fallist á það, að það geti verið spurning um hvort rétt sé að taka málið upp utan dagskrár með þeim hætti sem gert er hér nú. En ég skal trúa þingheimi fyrir því, að ég sá ekki annarra kosta völ ef þetta mál átti að komast á dagskrá á þeim tíma sem máli skipti og meðan það var í sviðsljósinu. Því til sönnunar vil ég rifja það upp, að ég hef flutt a. m. k. þrjár till. í Sþ., till. til þál., þær voru, a. m. k. einhver þeirra, lagðar fram í nóv. og þær eru ekki enn þá komnar til umr., svo að virða verður mér til vorkunnar þó að ég taki málið upp nú til umr. hér utan dagskrár.

Ég skal taka tillit til anna hæstv. ráðh. og í sjálfu sér biðjast afsökunar á því, hversu seint ég talaði við hann í morgun. Engu að síður hef ég talið að hann hefði getað tjáð sig efnislega um það grundvallaratriði sem ég gerði hér að umtalsefni. Hann vék sér undan því. Ég fer ekki fram á að hann lesi hér upp úr fréttablöðum rn., heldur að hann hefði getað tekið afstöðu til þess og skýrt út, hvort hann væri raunverulega fylgjandi þeirri grundvallarbreytingu sem gerð er hér á prófgerð og einkunnagjöf í grunnskóla. Það er stærsta málíð. Það er kjarni málsins. Hér er verið að breyta í veigamiklum atriðum frá kerfi, sem við þekkjum, til nýs fyrirkomulags, sem ég a. m. k. tel að sé til hins mesta ófarnaðar. Ég sé að hér í salnum sitja mjög margir sem hafa fengist við kennslu meira og minna, þ. á m. hæstv. ráðh., og ég höfða til hans og þessara kennara þegar ég vek athygli á því, að nú er verið að taka upp fyrirkomulag sem gerir ráð fyrir því að hver nemandi sé ekki dæmdur af eigin frammistöðu, heldur sem einn af stórum hópi. Hann er dæmdur af frammistöðu bekkjardeildarinnar og verður að hlíta einhverjum útreikningum tölvu og normalkúrfum sem búnar eru til uppi í rn. Ég held, að þetta atriði sé ekki ómerkilegra en flest annað, jafnvel miklu þýðingarmeira heldur en allt annað sem er í grunnskólalögunum, og ég barma það ef hæstv. ráðh. telur að þetta mál eigi ekki erindi hingað inn á Alþ. Ég er þar algerlega á öndverðum meiði. Ég held að ef hann er ekki tilbúinn til þess að gefa Alþ. möguleika á því að tjá sig um og taka afstöðu til þessarar breytingar, þá verði að beita öðrum ráðum.

Hann vísar til þess, að málið hafi verið kynnt. Vel má vera að það hafi verið gert. Mér er kunnugt um að það hafi verið kynnt. En þá var það bara kynnt sem orðinn hlutur. Skólastjórar og skólamenn fengu að vísu að skoða þessar hugmyndir og kynna sér hvernig ætti að framkvæma þær, en þeir höfðu ekki minnstu áhrif á hvernig þær litu út áður en yfir lauk.

Hæstv. ráðh. sagði líka að það væri ekki rétt að prófanefnd tæki slíkar ákvarðanir. Ég hef hér fyrir framan mig reglugerð um framkvæmd samræmdra prófa í grunnskóla og þar segir í 5. gr.: „Prófanefnd skal setja reglur um framkvæmd, úrvinnslu og einkunnagjöf samræmdra prófa sem rn. ákveður að haldin skuli.“ Auðvitað er það síðan ráðh. að staðfesta slíkar reglugerðir, enda tók ég það fram, að hann bæri ábyrgð á þessari reglugerð, og ég lét þá skoðun í ljós einmitt með hliðsjón af haus miklu lífsreynslu og hans fyrri störfum, að hann hefði ekki fyllilega áttað sig á því hvaða skref hefði verið stigið.

Ég vil lýsa mig algerlega sammála því, sem fram kom í ræðu hv. þm. Jónasar Árnasonar og hv. þm. Páll Pétursson tók undir, að ástæðan fyrir þessum breytingum er sennilega sú sem hann nefndi, að mjög vel menntaðir, hámenntaðir sérfræðingar leggja til breytingar á kerfinu bara breytinganna vegna og vegna þess að þeir hafa lært þetta erlendis, en átta sig alls ekki á því, hvort það eigi við hér uppi á Íslandi eða ekki. Og ég er þeirrar skoðunar, að í okkar tiltölulega fámenna þjóðfélagi sé mjög auðvelt að haga mati á námsárangri nemanda þannig að hægt sé að taka tillit til hvers einstaklings, hugsa meira til hans heldur en að horfa alltaf til heildarinnar og meta starf skólanna út frá skólanum sjálfum, en ekki út frá nemandanum.

Ég skal, herra forseti, ekki tefja lengur þetta mál. Ég er búinn að taka fram, að erindi mitt hingað upp í ræðustólinn utan dagskrár var ekki endilega að leita mikilla svara hjá hæstv. ráðh., heldur að vekja athygli á þessum ákvörðunum og leggja áherslu á að Alþ. fái tækifæri til þess að taka afstöðu til þeirra.