01.03.1977
Sameinað þing: 57. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 2343 í B-deild Alþingistíðinda. (1729)

115. mál, viðgerðar- og viðhaldsaðstoða flugvéla á Keflavíkurflugvelli

Fyrirspyrjandi (Jón Skaftason):

Herra forseti. Ég vil þakka hæstv. ráðh. fyrir þau svör sem hann gaf við fsp. minni. Það, sem mér fannst einna eftirtektarverðast við svör ráðh., var það, að hann upplýsti að nú stæði til að skipa n. til að vinna að þessum málum, athuga þessi mál og reyna að marka einhverja stefnu í sambandi við framkvæmd þeirra. En sá var einmitt tilgangurinn með flutningi þáltill. minnar á síðasta þingi að koma þessum málum á einhverja hreyfingu.

Því miður verð ég að segja það, að mér finnst að þetta hafi gengið hægar en skyldi, því að sannleikurinn er sá, að þarna getur verið um mikið hagsmunamál að ræða ef þessari aðstöðu verður komið upp hér. Ég veit að sumir hv. alþm. minnast þeirra upplýsinga sem finna mátti í álitsgerð Hagvangs hf. um þessi mál, en ég gat hennar að nokkru leyti þegar ég mælti fyrir þáltill. þessari.

Mér er það fyllilega ljóst, að það er ekki hægt að taka þau viðhaldsskýli, sem nú eru á Keflavíkurflugvelli, af bandaríkjamönnum einhliða. En hugsanlegt hefði verið að byrja samninga við þá um þessi atriði fyrr, ef það hefði getað orðið líður í því að koma þessari aðstöðu upp fyrr en ella.

Mér er fyllilega ljóst að það kostar verulega mikið fjármagn að byggja ný skýli þarna suður frá og koma annarri aðstöðu í það lag sem æskilegt er, og fjárhagur hins opinbera hefur nú um sinn verið ærið þröngur, þannig að ég skil það út af fyrir sig. En ég var ekki alveg vonlaus um að það væri hægt að koma upp þarna bráðabirgðaaðstöðu til að brúa þetta bil, bráðabirgðaaðstöðu sem gæti veitt flugvirkjum miklu betri vinnuaðstöðu en þeir hafa og þjónað flugi okkar sem vaxandi og mikilvægum hlekk í atvinnulífinu.

En sem sagt, ég þakka hæstv. ráðh. svör hans, og ég vil treysta því að sú n., sem er sett á laggirnar eða stendur til að setja á laggirnar til að athuga þessi mál, byrji að starfa sem allra fyrst, og ég vænti þess að innan tíðar megi einhverjar till. í þessum efnum sjást og e. t. v. koma til umr. á hv. Alþingi.