26.10.1976
Sameinað þing: 10. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 224 í B-deild Alþingistíðinda. (173)

28. mál, samkomulag um veiðar breskra togara

Lúðvík Jósepsson:

Herra forseti. Það mál, sem hér er nú til umr., ber að með nokkuð sérstökum hætti að mínum dómi. Hér er um það að ræða að farið er fram á staðfestingu Alþ. á samkomulagi sem gert var á s.l. sumri — eða 1. júní — í Osló varðandi fiskveiðiheimildir til handa Bretum í íslenskri fiskveiðilandhelgi. Þetta samkomulag á að réttu lagi að falla úr gildi nú eftir rúmlega einn mánuð. Það má því segja að þetta samkomulag sé að renna út og að samningurinn hafi verið framkvæmdur nokkurn veginn að fullu áður en Alþ. gefst kostur á að taka afstöðu til samkomulagsins. Miðað við venjulegan vinnuhraða þykir mér sennilegt að Alþ. geri ekki betur en svo að hafa skilað þessu máli frá sér í ályktunarformi eftir um það bil einn mánuð. Hér er því í rauninni aðeins um formsatriði að ræða sem hefur enga sérstaka þýðingu málsins vegna.

Eins og fram kom hjá hæstv. utanrrh., sem talaði fyrir þessari þáltill., þá var á sínum tíma fundið að því að þetta samkomulag væri látið koma til framkvæmda áður en Alþ. fjallaði um málið. Og það er rétt sem hann sagði, það munu hafa fallið ýmis orð í því sambandi a.m.k. á þá lund, að það væri mjög hæpið að það stæðist lög og stjórnarskrárákvæði að láta samkomulagið koma til framkvæmda án þess að það hefði fyrst verið borið undir Alþ. og Alþ. tekið afstöðu um málið. Ég er á þeirri skoðun enn að það hefði átt að kalla saman Alþ. á þessum tíma og bera málið þá undir Alþ. Það hefði verið það eina sem var eðlilegt. Og hvað sem því líður, hvort menn geta fundið einhver fordæmi um að á þennan hátt, sem nú er gert, hafi verið staðið að nokkuð hliðstæðum málum áður, þá breytir það engu um eðli þessa máls. Ég vil benda á það, að þegar fyrri samningur var gerður við breta til tveggja ára um veiðiheimildir, þá var það samkomulag, sem þar var gert, lagt fyrir Alþ. og það gekk ekki í gildi fyrr en Alþ. hafði fjallað um málið og samþ. samkomulagið. Það var eins farið að með það samkomulag sem gert var við hreta á sínum tíma, eða árið 1961, í fyrri deilu. Þá var einnig gert ákveðið samkomulag um lausn á þeirri deilu. Það var lagt fyrir Alþ., málið rætt hér ítarlega á Alþ. og það gekk ekki í gildi fyrr en Alþ. hafði veitt heimild til þess, og síðan fóru fram nótuskipti þar á eftir. Þetta gerðist einnig í sambandi við samkomulagið sem var gert við vesturþjóðverja. Það var einnig borið hér upp á Alþ. og samþ.

Hitt er rétt, að dæmi eru til um að samkomulag hafi verið gert um miklu minni háttar heimildir í sambandi bæði við belgíumenn, norðmenn og færeyinga, — það er rétt, — þar sem um hefur verið að ræða að sígilt var í rauninni alveg í kjölfar annars sem ákveðið hafði verið. Það var á sínum tíma mjög fundið að þessu af þeim sem þá stóðu ekki beinlínis í því að gera þessa samninga. Það var fundið að þessum starfsvenjum, og ég held að þær aðfinnslur hafi verið réttmætar, það hefði átt að leggja þetta fyrir og afgr. það með eðlilegum hætti. En hitt tel ég alveg fráleitt, þegar slík frávik eru síðan notuð til þess að réttlæta meiri háttar samninga sem gerðir eru, jafnáhrifaríka og þýðingarmikla eins og t.d. þessa samninga við breta sem ég var að nefna og gerðir voru á sínum tíma. Ég er hræddur um að ef ætti yfirleitt að fara inn á þessa braut, þá þætti mönnum einkennilega á málum haldið, ef stjórnvöld tækju sér þann rétt til þess að semja jafnvel um miklu meira og til miklu lengri tíma og koma svo eftir dúk og disk með málið til þingsins til staðfestingar. Þetta eru óeðlileg vinnubrögð, og það er eðlilegt að menn viðurkenni það hreinlega, en reyni ekki að lemja þar höfðinu við steininn, því ég álít að það sé hættulegt upp á framtíðarvinnubrögð í þessum efnum.

Það hefur verið áður gripið til þess óyndisúrræðis, sem ég kalla, að stjórnvöld geri samkomulag og beri það fyrir sig að kalla ekki saman þing eða leita ekki eftir formlegu samþykki á Alþ. í trausti þess að fyrir liggi öruggur meiri hl. meðal þm. fyrir málinu En ég álít að það eigi ekki heldur að skáka í neinu slíku skjóli. Það eru eðlileg vinnubrögð og ber að varast.

Aðfinnslur mínar í þessum efnum eru því þær sömu nú og áður. Ég tel að þetta hafi verið óeðlileg vinnubrögð sem beri að forðast. Og það kemur auðvitað best fram nú, þegar það liggur fyrir að þetta þýðingarmikla samkomulag, sem þarna var gert, er raunverulega búið og liðið þegar það er lagt fyrir Alþ. til staðfestingar.

Af þessum ástæðum er það svo að það er í rauninni til lítils í sjálfu sér að vera að ræða hér í löngu máli þetta samkomulag sem hér liggur fyrir. Það er búið og gert, og þar getur maður aðeins deilt um það hvort þarna hafi verið rétt að málum staðið og hér hafi verið heppilegur málatilbúnaður yfirleitt.

Ég álít að það sé fremur þunnt af hálfu hæstv. ríkisstj. að setja málið upp á þann hátt sem hún gerir í grg. þessarar till., þar sem settar eru fram ýmsar fullyrðingar og samanburður sem vægast sagt verður að telja að sé hæpinn eða lítið segjandi í þessu tilfelli. Því er í fyrsta lagi slegið föstu í þessari grg. með till. að breska ríkisstj. hafi fallist á að viðurkenna 200 mílna fiskveiðilandhelgina við Ísland. Við vitum það, að af hálfu breta hefur engin slík viðurkenning komið formlega fram. Þeir hafa beinlínis skotið sér undan að segja þetta eða vilja viðurkenna það. Þetta hefur hins vegar verið túlkun frá hálfu íslenskra stjórnvalda sem stóðu að þessari samningagerð. Þau hafa viljað túlka samkomulagið að það fæli í sér viðurkenningu, en hitt vitum við mætavel, að bretar fengust ekki til þess og hafa ekki fengist til þess að gera það formlega. Af þeim ástæðum m.a. vitum við að bretar halda enn áfram og vilja enn ræða málið, vilja enn fá möguleika þrátt fyrir þessa samningagerð sem fór fram í Osló á s.l. sumri. Sama er að segja um að réttlæta þetta samkomulag með því að það hafi fólgið í sér allverulega minnkun á afla breta, og þá er sú minnkun miðuð við það hvað bretar veiddu samkv. samkomulagi fyrir alllöngum tíma. Það er bent á að bretar muni hafa veitt á fyrsta ári samkomulagsins, sem gert var haustið 1973, á árinu 1974 aðallega, þá hafi þeir veitt 140 þús. tonn og svo á síðara árinu 115 þús. tonn, en nú sé samið um það sem megi áætla að jafngildi 50 þús tonna ársafla. Þessi samanburður er auðvitað alveg út í hött. Það eina, sem þarna kom til greina að gera einhvern samanburð á, það var hvað nú var samið um handa bretum og hvað það var sem bretar höfðu að öllum líkindum aðstöðu til þess að veiða miðað við þær aðstæður sem voru á þessum tíma. Hinn samanburðurinn kemur þessu máli ekkert við.

Áætlað er að það felist í þessu 6 mánaða samkomulagi heimildir handa bretum sem jafngildi um 50 þús. tonna ársafla. Það má vel vera að það reynist svo. En ég er samt hræddur um að ef samkomulag af þessari gerð hefði staðið í 12 mánuði, þá hefðu bretar veitt meira en sem nemur 50 þús. tonnum. En það skiptir ekki heldur neinu höfuðmáli í þessum efnum. Hitt er mín skoðun, að eins og komið var málum 1. júní, þegar samkomulagið við breta var gert í Osló, þá hafi allt bent til þess að afli þeirra mundi verða minni á næstu 6 mánuðum en þarna var samið um. Bretar voru, eins og þeir viðurkenndu sjálfir að lokinni þessari samkomulagsgerð, komnir að því að verða að breyta um stefnu, verða að gefast upp í deilunni við okkur. Það var viðurkennt af þeim einmitt í umr., sem fram fóru eftir að samkomulagið var gert, að staðan í landhelgismálum væri orðin þannig að það væri alls ekki stætt á því fyrir breta, eins og komið væri, að halda þessu áfram. Og það er einmitt út frá þessu sjónarmiði sem það er mín skoðun að bretar hefðu gefist upp eða orðið að hverfa af miðunum hér með minni afla raunverulega á næstu 6 mánuðum en þeir fengu samkvæmt samkomulaginu. En það er þó að mínu áliti ekki heldur aðalatriðið. Það er vissulega þýðingarmikið að geta náð því fram að draga úr veiðimagni breta hér um 5 eða 10 þús. tonn. En það skiptir þó ekki sköpum. Hitt var það þýðingarmikla í málinu, að líta á hvaða almenn áhrif þetta samkomulag hlyti að hafa í för með sér.

Það lá alveg augljóst fyrir, að hefðum við ekki gert þetta samkomulag við breta, þá var samningurinn við vestur-þjóðverja fallinn niður. Með því að gera samkomulagið við breta 1. júní var verið að framlengja samkomulag, sem áður hafði verið gert við vestur-þjóðverja, í eitt og hálft ár. Þá var verið að framlengja það að þeir hefðu hér veiðirétt skv. fyrra samkomulagi þar til í lok nóvembermánaðar á næsta ári. Sá samningur — það lá samningslega fyrir — átti að falla úr gildi. Við gátum losað okkur við þann vandræðasamning. Í þeim samningi fólst það, eins og komið var, að þarna var um að tefla að losa sig við u.þ.b. 90 þús. tonna afla sem þjóðverjar fengu rétt til þess að taka á okkar miðum með þessu Oslóarsamkomulagi. Auk þess er svo skoðun mín að bretar hafi fengið með samkomulaginu meiri afla en þeir hefðu fengið ef ekkert samkomulag hefði verið gert.

Þetta allt gerir það að verkum að ég taldi fyrir mitt leyti og tel enn a.ð það hafi verið rangt að gera þetta samkomulag, og sérstaklega rangt vegna þess að það lá ekki ótvírætt fyrir að bretar viðurkenndu okkar 200 mílna fiskveiðilandhelgi og ætluðu að haga sér samkv því og hverfa héðan að fullu og öllu án einhverra hótana eða annarra vafninga 1. des. n.k. Mér dettur ekki í hug að neita því, að hefði það legið algjörlega fyrir, þá var lítandi á þetta mál, þó að hins vegar samningurinn við vestur-þjóðverja hafi þar alltaf verið í veginum.

Af þessu, sem ég hef sagt, þá er þó aðalatriði málsins þetta: Hvað gerist í þessum málum 1. des. n.k., eftir rétt rúmlega einn mánuð? Það er kjarni málsins. Um það atriði urðu nokkrar umræður í Nd. Alþ. fyrir fáum dögum, og þá var af minni hálfu spurt um það hvað ríkisstj. hygðist þarna fyrir. Ég benti á að það lægi fyrir að bretar töluðu opinskátt um að þeir yrðu að reyna að ná samkomulagi við íslendinga um áframhaldandi rétt sér til banda og þeir væru raunverulega í kapphlaupi varðandi afgreiðslu vissra mála í sambandi við samkomulag innan Efnahagsbandalagsins, — í kapphlaupi um að undirbúa mál þannig að þeir gætu tekið upp samningaviðræður við íslendinga um áframhaldandi veiðirétt hér, — þetta lægi fyrir. Við vissum það líka, að af hálfu Efnahagsbandalagsins var um það rætt, að ef þar næðist samkomulag um stefnu í fiskveiðimálum, þá ætlaði bandalagið að leita eftir þessum samningaviðræðum við íslendinga. Því spurði ég um það: Hvernig ætla íslensk stjórnvöld að standa að þessum beiðnum frá hálfu Efnahagsbandalagsins eða frá hálfu breta?

Ég tel að það hafi komið fram nokkuð skýr svör um það að ríkisstj. ætlaði að taka upp viðræður við breta eða Efnahagsbandalagið varðandi málið á þeim grundvelli að leitað yrði eftir möguleikum til þess að gera svonefnda gagnkvæmisréttarsamninga, þ.e.a.s. að aðilar Efnahagsbandalagsins eða bretar fengju ákveðinn rétt hér í okkar fiskveiðilandhelgi, en við þá samsvarandi rétt eða einhvern rétt til veiða í þeirra landhelgi. Þetta kom fram í þessum umr, var tekið fram af hæstv. sjútvrh. og staðfest af hæstv. utanrrh., að það væri ætlunin að ganga til þessara viðræðna. Það var reynt að sveigja til. svo að mjúklega sé nú orðað, merkingunni í því sem ég sagði, á þann hátt að ég vildi ekki tala við menn, ég vildi bara sýna þeim ókurteisi. Það var auðvitað rangt og er rangt. Ég hef ekkert á móti því að við tölum við fulltrúa breta eða tölum við fulltrúa Efnahagsbandalagsins. Ég sé enga ástæðu til þess að við séum að sýna þeim á nokkurn hátt ókurteisi. En það breytir ekki því, að við eigum að gera það upp skýrt og greinilega hver er okkar afstaða í málinu eins og það liggur fyrir. Við eigum að marka þá stefnu alveg ótvírætt. hvort við teljum að það séu möguleikar á því, eins og sakir standa að fara að gera slíka gagnkvæmissamninga við þessa aðila eða ekki.

Ég hef tekið eftir því að bæði hæstv. sjútvrh. og hæstv. forsrh. — og það kom m.a. fram í stefnuræðu hæstv. forsrh. sem flutt var í gærkvöld, — þeir tala ævinlega um að það beri að skoða það mjög vandlega hvort við eigum ekki að gera slíka gagnkvæmisréttarsamninga við breta eða Efnahagsbandalagsaðila. Og forsrh. lagði áherslu á það, að í þeim efnum mætti ekki hafa aðeins í huga skammtímasjónarmið, heldur bæri að hafa í huga framtíðarmöguleika okkar í þeim efnum.

Ég álít fyrir mitt leyti að þetta sé afleit afstaða og stórhættuleg. Ég get ekki skilið hana á annan veg. Samkomulag. sem nú yrði gert við breta eða aðila Efnahagsbandalagsins, hlyti að vera, eins og málin standa nú, um þann rétt, sem við treystum okkur til að veita þeim eins og sakir standa, og þann rétt, sem þeir gætu veitt okkur eins og sakir standa nú til veiða í sinni landhelgi. Við eigum hreint ekki að semja um það nú að hleypa hretum áframhaldandi inn í okkar fiskveiðilandhelgi eða öðrum þjóðum Efnahagsbandalagsins til þess að veiða við þær aðstæður sem nú eru hér hjá okkur, vegna þess að e.t.v. getum við fengið að veiða síld í Norðursjó innan landhelgi breta eftir 4–5–6 ár. Slíkt nær vitanlega engri átt. Ég benti á það og bendi á það enn, að það leikur enginn vafi á því, að þó að bretar færi nú fiskveiðilandhelgi sína út í 200 mílur og öll Efnahagsbandalagsríkin geri það, þá geta þau ekki boðið okkur rétt til veiða á sínu svæði sem neinu máli skiptir fyrir okkur eins og sakir standa. Síldveiðimöguleikar í Norðursjó eru svo litlir eins og sakir standa nú, að nýlega hefur nefnd fiskifræðinga á vegum Alþjóðahafrannsóknaráðsins lugt beinlínis til að stöðva allar síldveiðar í Norðursjó nú um nokkurt skeið. Fiskifræðingarnir mæla með því að veiðarnar verði stöðvaðar með öllu. Við vitum það af reynslu okkar að þessi veiði er afar lítils virði eins og nú er komið, og að ætla að jafna rétt okkar til slíkra veiða, eins og nú standa sakir, saman við veiðiheimildir handa bretum til þorskveiða hér við Ísland er auðvitað fráleitt. Við ættum aldrei að senda frá okkur neina fulltrúa til viðræðna við breta eða fulltrúa Efnahagsbandalagsins sem villast eitthvað í þessum efnum, sem þetta er eitthvað óljóst fyrir.

Það hefur stundum verið á það minnst að það gæti komið til mála gagnkvæmisréttur fyrir okkur íslendinga varðandi 200 mílna fiskveiðilandhelgi við Grænland. Það, sem ég hef sagt varðandi það, er að ástand fiskstofnanna við Grænland nú er svo lélegt að þó að við íslendingar höfum haft rétt og höfum þann rétt í dag að mega stunda þar veiðar upp að 12 mílum, þá dettur okkur ekki í bug að notfæra okkur þá heimild, af því að þarna er ekki um neina veiði að ræða, ekki sem getur borgað síg að gera út á. Ef fiskveiðilandhelgin við Grænland yrði færð út í 200 mílur og hér yrði um ákveðna miðlínu að ræða á milli Íslands og Grænlands, þá hefur á a.m.k. tveimur stöðum á þessu svæði stundum komið til þess að við höfum leitað yfir þessa miðlinu. Þar er þekkt karfaslóð sem þó liggur að miklum meiri hluta á íslenska yfirráðasvæðinu heldur en því grænlenska, og þar höfum við stundum veitt nokkurn karfa. Þetta væri hugsanlegt. En eins og sakir standa nær engri átt að gera einhvern kaupsamning um þetta svæði og fórna þorski eða ufsa eða karfa hér á Íslandsmiðum fyrir slíkt.

Sama er að segja um norðursvæðið. Að nefna að slíkt hafi komið fyrir nú á s.l. sumri eða hausti, þegar menn stunduðu loðnuveiði fyrir norðan land, að sumir loðnubáta okkar hafi komið mjög nærri því eða jafnvel farið inn fyrir miðlínumörkin, þar sem var talið að gæti verið líklegt að hægt væri að fá loðnu, það er auðvitað líka alveg fráleitt að fara að færa slíkt fram. Þetta hefur engu máli skipt hjá okkur og eru engar líkur til þess að við getum farið að kaupa slíkt neinu verði. Auk þess liggur það svo fyrir, að danir hafa tekið skýrt fram að fiskveiðilandhelgin við Grænland fellur ekki á neinn hátt undir áhrifasvæði Efnahagsbandalagsins. Þar er eingöngu um réttindi að ræða sem varða dani sem slíka og þó sérstaklega grænlendinga. Hér er því alls ekki um það að ræða að við förum að taka upp samninga við fulltrúa Efnahagsbandalagsins eða fulltrúa breta varðandi þennan rétt, eins og nú standa sakir. Slíkt er ekki heldur til í dæminu.

Við vitum svo að ástandið hér hjá okkur á fiskimiðunum er þannig, að það eru uppi till. um að við eigum að herða enn að okkur sjálfum, draga enn meira úr veiðimöguleikum okkar af því að okkar fiskstofnar séu svo veikir. Það eru enn till. á ferðinni um að við þurfum að stöðva okkar megin fiskveiðiflota um lengri eða skemmri tíma.

Ég hef sagt það, að ég deili ekki á hæstv. sjútvrh. eða ríkisstj, fyrir að hafa ekki gengið lengra en gert hefur verið varðandi það að setja hömlur á veiði íslendinga, þrátt fyrir þann vanda sem við stöndum frammi fyrir í sambandi við fiskstofnana. Ég held að það sem gert hefur verið, sé það mikið til þess að draga úr okkar veiðum og sýna varasemi af okkar hálfu að það hafi varla verið ástæða til þess að gera, eins og sakir stóðu. Ég tel hins vegar að við hefðum getað náð meiri árangri en við höfum náð til þess að vernda okkar fiskstofna með því að vera enn harðari í sókn okkar gegn útiendingunum. Við hefðum getað dregið meira úr þeirra veiði. En um það standa deilur, hvort svo sé eða ekki. Ég álít að miðað við allar aðstæður höfum við þó lagt svo mikið á okkur að það hafi varla verið forsvaranlegt að ganga öllu lengra.

Hitt geri ég mér alveg ljóst, að eigi að síður er hætta vofandi yfir varðandi okkar fiskstofna og að það er hugsanlegt að við leggjum of mikið á þá, að sóknarþungi okkar sé of mikill. Mér dettur ekki í hug að neita því. En einmitt út frá því sjónarmiði álít ég að við verðum, þegar við stöndum frammi fyrir slíkum vanda, að gæta vel að okkur og veita ekki útiendum aðilum leyfi til fiskveiða við Ísland, ekki til veiða á einum fiski umfram það sem er í rauninni alveg nauðsynlegt. Af því er ég á þeirri skoðun að við eigum í fyrsta lagi að standa alveg fast á því að 1. des., þegar samningarnir við breta eiga að renna út, þá ljúki þeirra veiði hér við land innan okkar fiskveiðilandhelgi algjörlega. Og við eigum að segja þeim það hreint út í upphafi, þó við tölum við þá: Við getum ekki við ykkur samið. Við höfum ekkert að láta. Það kemur ekki til mála, eins og sakir standa, að framlengja þetta samkomulag — ekki deginum lengur.

Ég verð að segja varðandi þá, sem túlka samkomulagið frá Osló þannig að í því liggi fyrir skýlaus yfirlýsing breta fyrir okkar 200 mílna fiskveiðilandhelgi, hvernig stendur á því að þeir eru eitthvað að hika við að taka þessa afstöðu undir þessum kringumstæðum? Hvernig getur það verið, ef það liggur algjörlega á borðinu að við eigum þennan rétt, bretar eru búnir að viðurkenna hann? Þá er ekkert annað en segja þeim það: Haldið ykkur við það sem þið hafið viðurkennt. Málið er búið. — Hitt er í rauninni, eins og ég hef sýnt fram á, ekkert annað en útúrsnúningur og í rauninni rangfærslur, að halda því fram að við eigum núna að ganga til samkomulags við breta um einhvern gagnkvæmisrétt vegna þess að það sé í þágu okkar. Slíkt er ekki í þágu okkar eins og málin standa.

Eins og ég hef sagt áður, þá vitanlega segir þessi afstaða ekki á nokkurn hátt að við getum ekki eins og alltaf metið okkar aðstæður upp á nýtt eftir þrjú ár, fjögur ár, fimm ár. Ef við teljum að þá sé komin upp sú staða að við höfum efni á því að veita útlendingum einhverju rétt á okkar miðum og að við höfum eftir einhverju að sækjast á annarra miðum, þá er vitanlega málið opið eins og alltaf að taka það þá upp. En að snúast í kringum þetta nú er fráleitt og getur ekki verið af neinum eðlilegum ástæðum.

Ég hef einnig sagt það, að við eigum auk þess að segja hreint út við breta nú strax og við Efnahagsbandalagið að svona sé ástatt, þetta sé okkar afstaða, og þá eigum við einnig nú þegar að losa okkur við alla veiðiheimildarsamninga sem í gildi eru. Ef þarf að segja einhverjum af þeim samningum, sem í gildi eru núna, upp með 6 mánaða fyrirvara, þá á að nota þann 6 mánaða fyrirvara tafarlaust, ekki draga það um einn dag. Ég hef líka lýst því yfir að einu aðilarnir, sem ég tel að kæmi vissulega til athugunar, við þyrftum öll að skoða það vandlega, hvort við treystum okkur til þess miðað við núverandi aðstæður að veita einhverja sérstöðu hér, eru færeyingar, þrátt fyrir það hve illa stendur á hjá okkur. Það er mál út af fyrir sig. En við eigum ekki að blanda því saman við veiðirétt banda neinum öðrum. Það er alveg óeðlilegt.

Hinu verður auðvitað ekki hnikað, það liggur fyrir og verður sennilega ekki breytt, að vesturþjóðverjar hafi þann rétt, sem þeir hafa tryggt sér með samningi sem illu heilli var gerður og mjög bitnar á okkur nú, að þeir haldi þessum rétti út samningstímabilið. En ég segi, að komi upp nokkrir möguleikar hjá okkur til þess að losa okkur við þann samning, þá á einnig að notfæra sér það.

Eins og við munum, þá var á sínum tíma allmikið um það rætt að við ættum að gera samning við breta, m.a. til þess að koma í gagnið svonefndri bókun nr. 6 við Efnahagsbandalagið. Það er rétt. Þessi bókun nr. 6 hefur komist í gagnið. En hver skyldi hafa orðið var við mikinn og merkilegan árangur þar af? Auðvitað er það rétt, að það gat vitanlega ekki farið svo að það yrði ekki um eitthvað minni háttar að ræða, en auðvitað hefur framkvæmdin á þessari bókun ekki skipt okkur neinu teljandi máli. Það var ekkert sem rak á okkur til þess að fórna hér fiskveiðihagsmunum vegna þessarar bókunar. Við höldum áfram að eiga okkar viðskipti í aðalatriðum við þjóðir utan þessa svæðis með meginútflutningsvörur okkar. Þó að bókun 6 kæmi til framkvæmda, þá opnaðist þarna enginn nýr markaður miðað við aðstæður. Sú bókun gat í rauninni aldrei haft áhrif nema á tiltölulega lítinn útflutning okkar, og hann var það lítill að það var vitanlega ekki verjandi að fara að gera þennan samning af þeim ástæðum.

Ég hef sagt það hér áður, að það er í rauninni heldur gagnslitið að ræða hér í löngu máli staðfestinguna á þessu samkomulagi sem gert var í Osló. Samkomulagið hefur verið í gildi. Það er að renna út, verður án efa runnið út um það leyti sem Alþ. er tilbúið að afgr. þessa till. ef að líkum lætur. Það er því í rauninni alveg tómt mál. Þetta er borið undir Alþ. aðeins að forminu til og á mjög óaðgengilegan og óeðlilegan hátt, sem sagt þegar öllu er lokið.

Ég sé því ekki átæðu til þess að ræða þetta öllu frekar en ég hef gert. Ég segi aðeins það, að afstaða mín og okkar alþb.- manna er sú, að það hafi verið rangt að gera þennan samning, m.a. af þessum ástæðum sem ég hef hér greint. Samningurinn fól það raunverulega í sér að það var verið að framlengja samninginn við vestur-þjóðverja í eitt og hálft ár. Það var hægt að losa síg við hann. Þar með var verið að gefa ávísun á veiði upp á 90 þús. tonn sem við gátum losað okkur við. Og samningurinn við breta frá 1. júní í Osló hefur ábyggilega að mínum dómi tryggt bretum meira en þeir hefðu annars fengið, en breytti stöðu málsins að öðru leyti ekki á neinn hátt vegna þess að þeir voru komnir að því að gefast upp, eins og þeir hafa sagt sjálfir. Þeir urðu að taka upp nýja stefnu. Af þessum ástæðum erum við andvígir þessu samkomulagi. Það liggur alveg fyrir. Við teljum að það hefði betur ekki verið gert.

En á hitt leggjum við auðvitað höfuðáherslu eins og málið liggur fyrir nú, að það er ekki þessi samkomulagsgerð, það er ekki þessi veiðiheimild breta í 6 mánuði, hún er ekki aðalatriði málsins. Aðalatriðið er þetta: Hvað á að taka við 1. des? Það er illt til þess að vita, að það skuli ekki vera hægt að fá hér skýra afstöðu og alveg ótvíræða um það hvað þá á að gerast. Ef lítið yrði á málið á svipaðan hátt og ég hef túlkað hér, þá á að vera hægt að lýsa því yfir og segja bretum og Efnahagsbandalagsmönnum það fyrir fram, að við höfum ekki um neitt að semja. Frá 1. des. falla réttindi breta hér niður að fullu og öllu og við sjáum sem sagt engan gagnkvæmismöguleika eins og málin liggja nú fyrir og því verði þetta að ske.

En hæstv. ríkisstj. virðist ætla sér að halda öðruvísi á málinu. Hún byrjar eins og stundum áður á því að segja: Við ætlum að ræða við þá. Við ætlum að hlusta á mennina. Við ætlum að athuga hvað þeir hafa að bjóða. — Og heldur áfram og teflir síg inn á hættusvæðið. Ég fyrir mitt leyti treysti henni ekki til þess að fenginni reynslu að fara með þessi mál og geri því kröfu um það fyrir mitt leyti að hún segi til um það fyrir fram hvað hún ætlar að gera. Og það er til lítils gagns að hæla sér af samningunum frá Osló og telja að þar hafi verið fólgin í fullkomin viðurkenning, ef ekki á þá að notfæra sér þá viðurkenningu, eins og nú er einmitt ástatt fyrir okkur varðandi fiskveiðar í okkar fiskveiðilandhelgi.